13janúar
Gammósíur eru alveg ótrúlega góðar!! Móðir splæsti á mig einum slíkum um daginn fyrir skíðin.
Nú er ég nýkomin af skíðum, sit hér svalari en allt í gammó, ótrúlega háum sokkum og míkróflíspeysu frá sextíuogsex. TÖFF TÖFF TÖFF.
Síðasta vika er búin að vera brjálæði, skóli til hálf fimm, brunað heim, í skíðafötin og komin upp á skarð fyrir kl.17! Þá er æfing til 19 og komin heim um hálf átta.
Á þessu tímabili dags er ég mjög geðgóð eða þannig vegna þreytu og bitnar það á heimalærdómi og fólki sem ég umgengst. Gaman fyrir það!
Þetta lagast nú þar sem að ég og Jói Tryggva skiptum þessu á milli í næstu viku held ég;)
Þetta var tilgangslausasta blogg ever, hélt að bloggandinn væri kominn yfir mig en hann hefur eitthvað dottið niður aftur.
Við hittumst hress.
Kv. Jó9
07janúar
Komiði sæl.
Ég vil afsaka bloggleysi síðustu misseri. Nú er um að gera að herma eftir öllum og gera lista yfir árið.
Þar sem að öll ættin er að koma í mat eftir 19 mínútur ætla ég að reyna að hafa þetta í styttri kantinum og taka bara aðalatriðin.
- Þetta ár var að mínu mati frábært.
- Ég prófaði nýja hluti, fór til AK í skóla og líkaði rosalega vel!

- Kynntist fullt af nýju fólki í framhaldi af því! -Get því miður ekki sett inn myndir af öllum hehe:D
- Kynntist m.a Valgerði sem er besta manneskja sem ég hef kynnst held ég!

- Prófaði að búa á heimavist sem er snilld.

- Prófaði að vera meira sjálfstæð.
- Ég varð 17. ára, fékk bílpróf og eignaðist minn fyrsta bíl:D PRINS PÓLÓ!!

- Ég fór til Mallorca með fjölskyldunni í tan-meðferð!

- Ég og Andri byrjuðum sama ÚLLALLA!!!!!Ein myglaðasta mynd sem náðst hefur af mönnum!!!:

- Og margt margt margt fleira!
Ég nenni ómögulega að rifja meira upp, 365 dagar er heeeeeeeeeelvíti mekeð!
Nú er síðan um að gera að byrja nýtt ár með nýjum hlutum og áherslum er svo má að orði komast.
Plan ársins 2007 er allavega að vera í VA og standa sig.
Einnig er ég byrjuð að þjálfa skíði, 8 ára og yngri og 9-13 ára.
Nokkrar æfingar eru að baki og mér lýst alveg rosalega vel á þetta.... Koma nokkrir íslandsmeistaratitlar frá mér innan skamms!! Djöst kidding;)
Standið ykkur í kvittinu folks!!
Kram, Jónína Harpa!
27desember
- Gleðileg jól.
Það sem af er af jólunum (segir maður þetta svona?) hefur verið fínt.
Eða reyndar finnst mér ekkert "fínt" við RAUÐ JÓL en það verður að hafa það
Ég fékk margt fallegt og flott í jólagjöf, Cintamanivesti, skíði, húfur og vettlinga, ilmvötn, skíðalúffur, veski, bol, snyrtivörur og fleira sem ég nenni ekki að skrifa hér. Allt flott og gott
Takk fólk!!
Fór og prófaði nýju skíðin mín í dag og eru þau alveg frábær!!
Á morgun á að fara að gera einhvern samning um að ég verði eitthvað að þjálfa skíði í vetur... Það verður nú örugglega gaman
Ég nenni ómögulega að skrifa meira í þetta sinn.... heyrumst:)
P.s jólakveðjan mín til ´þín er hér.... : http://www.elfyourself.com/?userid=a4b6fa33987b48042dd0ebdG06122408 Njótið!!
16desember
Já því er haldið fram að ég sé í jólafríi. Frá skólanum jú, en sjitt hvað ég er ekki í fríi frá öllu öðru.
Er byrjuð að vinna í súnbúðinni frá 9 -18 sem er bara fínt -allir koma og kaupa hjá mér
Það sem eftir er af deginum veit ég síðan ekki hvað ég hef verið að gera, tíminn bara flýgur. Hef hitt Andra í kannski 5 klst samanlagt vakandi síðan við komum hjem. Gaman að að þessu.
Sögur herma að Petrína sé mætt í bæjinn, -láttu sjá þig kona!
Einnig er orð á götunni um að allt sé fullt af snjó á Oddskarði!! Ég ætla að drífa mig á sunnudaginn, -allir koma með mér á skíði!
Égnenniekkiaðbloggameirabæ.
