14mars

OOOOOONeeeeeeeeeei

Ohh. Ég var að pæla. Svona ef að maður nær EINHVERNTIMAN að klára stúdentinn, hvað ég á svo að læra???
Mér finnst ógeðslega margir búnir að ákveða það og eitthvað en ég er bara eins og álfur uppá hól og veit ekki neitt.
Ekki það að ég þurfi að ákveða það núna ooooooneeeeeeeei því ég er ekki að fara að klára stúdentinn í bráð oooneeeeei.
Ég bara fæ ógeðslega oft svona vonleysis tilfinningu um að ég geti aldrei orðið neitt,sérstaklega eftir þýskutíma HEHE.

En ahh. Einn jákvæður puntur. Loksins búin með íslenskuritgerðina mína, þvílíkur léttir.

Ert þú búin að ákveða hvað þig langar að læra (ef þú ætlar að læra meira og ert í framhaldsskóla)??
14. mars 2007 klukkan 22:13
Jónína Harpa Njálsdóttir
9 athugasemdir
11mars

HUHH

Jáá það er sunnudagur í dag. Mér finnst þeir sjaldnast skemmtilegir. Á sunnudögum er ég oftast að rembast við að læra það sem ég hunskaðist ekki við að læra á föstudaginn, eða er að læra fyrir próf sem á að vera í næstu vikur. Og það er einmitt það sem ég á að vera að gera núna en er að blogga þetta tilgangslausa blogg í staðinn.

Það er alls ekki neitt í fréttum. Snjótroðarinn er bilaður og VESEN, og það hefur ekki verið svona mikill snjór í mörg ár. HNUSS. Mér lýst ekkert á þetta.

KVeðja Jónína
11. mars 2007 klukkan 13:12
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir
06mars

Sól og snjór

Á sunnudaginn skellti ég mér á skíði eins og svo oft áður. Ég fór með mömmu og Sigurbergi. Veðrið var ÆÐISLEGT og ég held að myndirnar tali bara sýnu máli. Fleiri í albúminu (sjást líka betur þar).
















Finnst ykkur þetta ekki magnað?? Skoðið betur í albúminu.







06. mars 2007 klukkan 20:46
Jónína Harpa Njálsdóttir
16 athugasemdir
01mars

Hóstasaft

Öll hóstasöft/hóstasaft bla bla sem ég hef "smakkað" um æfina hafa mér fundist ógeðslega góð á bragðið! Síðan núna í fyrradag þá kláraðist hóstasaftið og ég auðvitað sendi móður út í apótek eftir meiru. Well, hún fékk hóstasaftið sem var best fyrir mig. Ég bara jess nýtt hóstasaft og ætlaði að fá mér en NEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEI þetta er mesti hrottafengni horbjóður sem ég hef smakkað! Liggur við að maður fái ælupest aftur við að drekka það! Góð saga.

Annars er ég að gera fullt af verkefnum í skólanum um barnabækur og svoleiðis, bæði í barnabókaáfanganum ÍSL633 og í uppeldisfræði. Mér finnst alveg snilld að vera að læra um þetta.
Núna er ég t.d að lesa Jón Odd og Jón Bjarna og ég bara gæti drepist úr hlátri þetta er svo mikil snilld. Ég var eitthvað að tala um það við mömmu og hún sagði að hún hefði líka átt erfitt með að lesa þetta fyrir mig og Sigurberg þegar við vorum lítil, var við að fá hlátuskast heheHlæjandi
Það er nú gott að það sé gaman að læra svona einu sinni allavega.

Ég held að Skarðið sé alveg klikkað núna, kannski ég komist í dag og þjálfa 9-11ára, verð þá bara í litlu, erum að æfa það að kýla í svigi, bara snilld að kenna þettaSvalur, þau eru ekkert smá duglegHlæjandi

Þetta var hálf skrítið blogg, vona að einhver hafi nennt að lesa, heyrumst og sjáumst eða annað hvort allavega!!!

-Jónína Harpa
01. mars 2007 klukkan 11:53
Jónína Harpa Njálsdóttir
16 athugasemdir
27febrúar

Júhúú

Júhú! Ég held að mér sé loksins að batna. Ekki búin að geta hreyft mig né komið neinu niður án þess að það komi STRAX upp aftur (jammeeeeeeeey)  síðan á laugardaginn!! Sem er algjöööööööööööööör viðbjóður.
Ég vona að ég komist í skólann á morgunBrosandi

Sorry ég bara nenni ekki að blogga sælar:)
27. febrúar 2007 klukkan 15:34
Jónína Harpa Njálsdóttir
2 athugasemdir
24febrúar

aæfasf

Svaðalegir beinverkir, smá æla, mikil ógleði, alltof heitt eða allt of kalt, hausverkur og enn meiri beinverkir. Kannast einhver við það? Örugglega margir því það eru ALLIR veikir!!

Ég skellti mér eitil fersk á skíði í morgun, síðan á bílasýningu hjá Heklu að skoða Kia Ceed og FOKK mig langar svo í!!! Óska eftir bílatyrk, hvað er það milli vina?

En já, eftir skíðin var ég með einhvern hausverk og ákvað að taka smá blund eins og oft áður, en vaknaði síðan bara ógeðslegri en allt!! Gaman að þessu!!

Andri kom nú til mín áðan og breiddi tvær sængur yfir mig og eitt teppi og dældi í mig verkjalyfjum!! Sætur
Hlæjandi

24. febrúar 2007 klukkan 20:18
Jónína Harpa Njálsdóttir
5 athugasemdir
20febrúar

Tumi þumall

Hann Jeremías Tumi, hundurinn á heimilinu er alveg æði.
Sigurbergur er að æfa á harmónikku og alltaf þegar hann æfir sig stillir tumi sér upp við hliðiná honum og fer að GÓLA alveg svakalega, sem sagt syngja með!! Ógeðslega fyndið að sjá. Ég náði myndbandi af því á síman áðan en kann bara ekki að taka það út af símanum til að setja það hingað inn.

Núna eru þemadagar í skolen þannig að það er bara ekkert að læra heima og svona... Undur og stórmerki!!!
Ég er reyndar ekki að nenna að fara á HÖFN á einhverja austfirska ólimpíuleikam en maður verður að láta sig hafa það;)
Sorry ekkert merkilegt blogg varð bara að setja eitthvað hérna inn. Ég er farin að í ræktina BLESS
.Glottandi
20. febrúar 2007 klukkan 13:50
Jónína Harpa Njálsdóttir
10 athugasemdir
16febrúar

Titill

Já góðan dag.
Eins og flestir vita sem þekkja mig æfði ég nú skíði í mörg ár og hafði ROSALEGA gaman af, allavega oftast.
Ég fór m.a 2 sinnum til Geilo í Noregi í æfingabúðir, geggjaðasta skíðasvæði ever og fullt af skemmtilegu fólki og góðir þjálfarar.

Hluti af þessum æðislega stað..


Inga Þórey, ég og Silja á góðri stundu á skíðamóti fyrir tja... nokkrum árumHlæjandi


Jæja, ég hætti nú þegar ég flutti til DK í eitt ár en fylgist samt alltaf eitthvað með hvað er að gerast í öllu þessu dæmi.
Núna nýlega hafa 2 stelpur, sem voru einmitt að æfa í Geilo, gjörsamlega FLOGIÐ á hausinn við æfingar, önnur lamaðist og hin hryggbrotnaði og ég veit ekki hvað og hvað.
www.arnaokkar.bloggar.is og www.iris-geilo.bloggar.is

Var það kannski til hins betra að maður hætti þessu?
Já núna á ég eftir að fá komment um að ég eigi ekki að blogga um svona því ég er nú þjálfari.

En svona er þetta bara, það er alltaf eitthvað að gerast, ekki bara í skíðaheiminum.

En hey allir þið, farið varlega hvað sem þið eruð að gera!
Ég varð bara að blogga um þetta, mér varð svo um þegar ég fór að skoða myndir á annari síðunni.

En allavega, blogginu lokið í dag og takk fyrir að lesa litlu lömb!

P.s, komnar fleiri myndir frá Þorrablóti VA, fullt af myndum eftir en þetta er alt svo svipað eitthvað að ég nenni ekki að setja fleiri;)

P.s2:
ÉG ER ALLS EKKI AÐ HVETJA KRAKKA TIL AÐ ÆFA EKKI SKÍÐI
, ÞAÐ ER ALVEG ÓTRÚLEGA GAMANHlæjandi

16. febrúar 2007 klukkan 19:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
10 athugasemdir
13febrúar

Fatty

BrosandiHey..... Hvað er merkilegt við næstu daga? Jú... konudagurinn er á sunnudaginn... Það fer líka að líða að valentínusardeginum(á morgun).... EN ÞAÐ ER BARA PRUMP, ÞVÍ Á MÁNUDAGINN NÆSTA ER...........

..............HlæjandiBOLLUDAGUR!!!!!!!!Hlæjandi.........
  Húrra, húrra, húrra!!

Einn merkilegasti dagur ársins að mínu mati! (Hæ fattí bomba segi ég nú bara).

Ef að þið haldið að ég sé alveg félagslega dauð, því ég sést ekki á götum úti eða annarsstaðar þá er ástæðan fyrir því að það er ekki þverfótað fyrir prófum þessa dagana!
Svona er það bara stundum:)

Nú fer ég að huga að karli.
Sælar.
13. febrúar 2007 klukkan 22:32
Jónína Harpa Njálsdóttir
13 athugasemdir
10febrúar

Jee

Að stilla klukkuna sína á 05- eitthvað finnst mér hryliilegur hlutur.
Ég stillti mína einmitt á 05:50 í morgun og dreyf mig upp í fjall að vinna.
Verð nú bara að segja að þetta var alveg fínt!! Var samt orðin svoooolítið þreytt þegar ég kom heim að verða 16. í dag.
Þá var lagst upp í sófa og tekinn blundur og núna rétt í þessu var ég að enda við að borða dýrindis læriHlæjandi
Við tekur lærdómur og síðan held ég að ég fari bara að sofa, sama rútína á morgun. Hressandi.

Börnin mín, og sérstaklega Lea... Þegar ég var búin að setja 30 myndir inn síðan fyrir þorrablótið gat ég ekki sett fleiri! Þetta er eitthvað fatlað, reyni seinna. En bíðið, það muu koma fleiri;)

Fleira var það ekki í dag, hittumst heil.

JóNíNa HaRpA
10. febrúar 2007 klukkan 19:48
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur