10júní
Aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Ég er svo að verða kraftvangefin!! ÉG er búin aðs tija hérna í klukkutíma eða meira og reyna að henda inn myndum síðan í dag, þetta er alltaf voða lengi að lóda og gera og græja en hvað en hvað.... ENGAR MYNDIR. Svona tölvudrals gæti gert mig óða. Náði að setja nokkrar inn undir nafninu "Fyrstu sumarmyndirnar 07".
En jæja nú byrjar bloggið.
Hæhæ!
Já nú er öldin önnur en í síðasta bloggi! Ég held að sumarið sé að koma!
Dagurinn í dag var allavega helvv "sumarlegur" að mínu mati!;)
Fyrst var það vinna, eftir það var það sólbað á pallinum, labbitúr út í Urðir með Andra (já þið lásuð rétt, Andri Þór Magnússon fór í labbitúr!!), síðan tróð ég mér með strákunum í golf, síðan var það grill og eftir það tónleikar á Reyðarfirði! Vá löng setning!
Sem sagt fínasti dagur!! Svona eiga sumrin að vera!
Dagurinn er reyndar ekki að enda eins vel, ég skellti mér í sjoppuna, það er jú afsláttur, keypti nammi fyrir allt of mikið og hámaði það ein í mig á allt of stuttum tíma! Þannig nú er ég með mesta nammiógeð í heimi!
Labbitúrinn í urðirnar í dag var góður, smá myndabrot:) :

Voða krúttó!

Rosa gaman hjá Andra HEHEHE


Að sjálfsögðu var Jeremías Tumi með!

Andri er þarna uppi hahaha... klifri klifr!
En well.....
Sigurbergur og Jóhann fóru í kajakróður í Reyðarfirði í dag og er gist í nótt og haldið áfram á morgun! Mamma gistir með, skutlaðist með A-húsið í Reyðarfjörðinn! Sjæse ég væri svooo til í að vera með en það er ekki hægt að gera allt:) Fer bara með næst! Hérna voru þau að fara í hádeginu, sæta fjölskylda!:


Sumarskólinn gengur bara lala! Ég er ekki með neinn gífurlegan sjálfsaga en ég verð að hunskast til að læra;)
Er byrjuð á hótel Eddu, mjög fínt það sem er búið, erum ólíkar stelpurnar sem vinnum þarna sem er bara allt í lagi, vinnum vel saman held ég og ekkert vesen hingað til!
Mér finnst bloggin mín orðin alveg hundleiðinleg þegar ég les þau yfir... blogg "andinn" eitthvað að hverfa..... sjáum til hvað verður úr þessari síðu!
Sjáumst, kv Jónína Harpa
P.s Ég var svo klikkað lengi að gera þetta blogg að ég á það skilið á fá kvitt frá öllum sem nenntu að skoða;) GUTE NACHT
02júní
Hæhæ sæta fólk!
Alle gúdden að frétta af mér!
Okei... Núna er kominn júní, sem sagt, sumarið er komið. Þegar maður hugsar um sumarið á veturnar þá man maður alltaf bara eftir góðu sólardögunum, dögunum sem var frí í vinnunni og eitthvað.
Well eins og ég sagði þá er sumarið komið núna sem ég er búin að vera að bíða og bíða eftir.... en hvað en hvað.. ég er ennþá að bíða eftir eitthverju "skemmtilegu" svona eins og skemmtilegu hlutirnir bara eigi að byrja að GERAST núna. Sumarið er komið en samt ekkert... skemmtilegt. HAHA æji vá skilur mig einhver? Bull.
Well eins og ég sagði þá var Akureyrarferðin mögnuð! Þó að ég sé búin að vera að tala um sumarið væri ég alveg til í vetur líka bara til að geta byrjað að kenna krökkunum allt það gagnlega sem ég lærði á námskeiðinu!! Hehe!
Ég lennti reyndar í mestu vonbrigðum lífs míns, en eins og ég talaði um í síðasta bloggi var stefnan sett á Brynju en þegar þangað var komið var LOKAÐ! Líf mitt hrundi í þúsund mola.
Í gær fór ég og heimsótti tvær konur sem búa í íbúðum aldraðra í Breiðabliki, ég var fengin til að fara með þær í bæinn og svona ca. 1x í viku! Það er bara gaman sko og ætlum við einmitt að fara á krúsið núna á eftir hehe!! Þegar ég var að fara hitti ég síðan ömmu Andra og bauð hún mér í heimsókn og spjölluðum við örugglega í hálftíma! Bara snilld.
Sjómannadagshelgin gengin í garð! Alltaf smá líf í bænum þá! Reyndar er veðrið horbjóður en fólk má ekki láta það á sig fá!
Stefnan er sett á ball á Esk í kvöld með Í svörtum fötum og hlakka ég mjög svo til!!! Fyrsta 18 ára ballið mitt var einmitt með ÍSF í Köben þegar ég var í 9 klasse(10bekkur á Ísl) í Danmörku! Það var mjög töff samkoma og var ég manna hörðust þarna inni, í henson peysu merkt JÓNÍNA ´89 HAHAHAHA!
Það var einmitt sama kvöld og þegar ég byrjaði að heilsa einhverri konu á fullu og byrja smá að spjalla því ég kannaðist svo við hana... vissi bara ekki hvaðan.... Jújú þá var það einmitt Ísland í bítið konan sem hafði skellt sér til DK á ball! Ég skeit á mig.
En jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt! Kem máske með myndir af dansleiknum!
Ekki vera feimin við að kvitta hver sem þú ert!
Sí ja!
21maí
Mér finnst þetta dálítið sniðugt sá þetta einhversstaðar;)
Var mamma þín vond? Mín var það! Við áttum
verstu mömmu í heimi. Þegar aðrir krakkar
borðuðu nammi í morgunmat fengum við
hafragrauut. Þegar aðrir krakkar fengu djús og
kex í hádegismat fengum við samlokur og
ávexti. Þú getur rétt ímyndað þér hvað hún gaf
okkur í kvöldmat! Mamma vildi alltaf vita hvar
við vorum ALLTAF, það hefði matt halda að
við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru
vinir okkar og hvað við vorum að gera með
þeim. Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum
við að vinna. Við þurftum að vaska upp, búa um
rúmin,læra að elda, taka til, fara út með ruslið
og vinna fullt af öðrum leiðinlegum störfum.
Við vorum viss um að hún lægi vakandi á
nóttunni bara til að hugsa um hvað hún ætti að
láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf
segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert
nema sannleikann. Þegar við vorum unglingar
gat hún lesið hugsanir okkar. Það var ERFITT
líf! Þegar allir fengu að fara á djammið og
skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við ekki að
gera neitt fyrr en við vorum 16 ára. Út af
mömmu okkar misstum við af svo mörgu sem
aðrir krakkar gerðu. Ekkert okkar hefur verið
tekið fyrir að stela í búð, eyðileggja eigur
annarra eða verið handtekið fyrir glæpi. ALLT
henni að kenna. Við urðum aldrei full byrjuðum
aldrei að reykja, vorum aldrei úti allar nætur,
gerðum aldrei þessa þúsund hluti sem margir
unglingar gera. Núna erum við flutt að heiman
og við gerum okkar besta til að vera vondir
foreldrar eins og mamma okkar var. Ég held að
það sé það sem er að heiminum í dag. Það er
bara ekki til nóg af vondum mömmum lengur.
Ég stefni á að verða vond mamma einhverntíman SEINNA;)
07maí
Ég á mér ekki líf og svaraði því nokkrum léttleikandi spurningum!
Ef að þú átt þér ekki heldur líf, endilega kíktu á þær hérna til hliðar og upp!!:)
04maí
Það vill oft þannig til að í prófavikunni blogga ég óvenju oft! Þá á þeim tíma sem ég á að vera að læra!! Það var einmitt á þessum tíma árs sem ég stofnaði fyrst bloggsíðu haha! Sérkennilegt hvað maður finnur sér allt til dundurs annað en að læra í prófavikunni! Las meira að segja einhvern kosningapistil áðan sem ég skildi reyndar ekkert í en það er nú allt önnur ella.
Well, fjölskyldan farin til Noregs og maður er hér heima lærandi allan liðlangann daginn.
Svakalegt lífernið á manni hérna, finnst ég alltaf eiga það voðalega skilið að borða nammi í prófavikunni, liggur við að hver dagur endi á nammiógeði! Djöfulsins viðbjóður! Fer þó alltaf í mat til pabba á kvöldin, fór reyndar til tengdó í mat áðan, helvíti skondið að sitja þarna með þeim þegar Andri er bara á EI KEI að spóka sig

Fjarðabyggð er einmitt að keppa úrslitaleik í Lengjubikarnum við Aftureldingu í þessum töluðu orðum.
Þessi lið áttust við í annari deildinni síðastliðið sumar og vann KFF báða leikina fyrst á Eskifjarðarvelli 4-1 og svo 5-1 í Mosfellsbænum. Óskandi að þeir standi sig jafn vel núna er það ekki!
AHAHAHA á ég að trúa því að ég hafi sagt þetta? Jújú, ein að lesa KFF.is
Eins og margir vita er ég anti-fótboltisti (whaat) nr1 þannig þetta er atburður sem vert er að skrá á spjöld sögunnar að ég minnist á fótbolta í mínu bloggi.
Bikiniið fræga er komið í hús. Ég ætla að geyma það að vígja það í sundlauginni eins og stúlka ein komst að orði. Náttúrulega alveg magnað að máta það sjálfur eftir að hafa séð það á svona feitri og ljótri manneskju haaa...

Það er samt ógó töffó maður.
Voðalega er þetta blogg orðið langt.
Ég er algjörlega komin í ruglið. Ætla að hlífa ykkur sem nenntuð að lesa og hætta núna!
KVITT VÆRU VEL ÞEGIN lömbin mín

Sjáumst í hringrásinni!