Jæja, nú fer skólinn að byrja sem þýðir að maður fer örugglega að blogga meira, hehe! Ég er alveg að vera vangefin á þessari síðu eins og ég gef örugglega sagt áður, en ég er alltaf að reyna að setja inn myndir en aldrei tekst það! Ég náði í stundatöfluna í dag en hún er eins og ostur, öll í götum OG árekstrum, þetta er náttúrulega alveg vangefið. Ætla að reyna að breyta þessu á morgun.Núna er vinnunni á hótel Eddu lokið og var haldið lokahóf á sunnudagskvöld eftir öll þrifin!Alveg æðislegt, byrjuðum á að fara í heitan pott....... Ég eins og gremlings á þessari mynd ahahaha
...síðan í hálfgert dekur á hótelinu, fótabað með einhverju voða dæmi, handamaski og andlitsmaski! Fengum líka dýýýýrindis mat t.d humar, svínalundir og kókosrækjur! Gæti það verið betra? Vantaði Siggu í mannsmynd þarna en hún fékk að vera með á ljósmynd!
Fyndnar við hahaha! Hún fékk að koma með í pottinn og sat með okkur við matarborðið hehe! Tek það fram að hún er ekki dáin heldur var farin suður í skólann!! Andri var að fá sér nýja kærustu en það er voðalega flott Acer talva! Stríð á milli mín og tölvunnar hehe! Neinei segi svona. Bara smá grín hjá mér Andri minn. Jæja, mín er búin að læra póker. Ég er búin að horfa á strákana í þessu endalaust oft og aldrei skilið neitt, alltaf talað um að olsen olsen sé meira ég, en síðan tókst mér að læra þetta! Finnst þetta reyndar MJÖG asnalegur leikur og er Monicu brandarinn OFURFYNDNI(nei) um mig oft tekin upp þegar gripið er í spilin! Haldiði að mín sé ekki að fara til Reykjavíkur á morgun með familíunni! Bara svona skottúr, brúðkaup og svona! Ég hlakka til að fara í brúðkaup, hef ekki farið í þannig síðan ég var lítil og man næstum ekkert eftir því. Jæja, ég ætla að taka rölt með ipodin, var að setja svo skemmtileg lög hehe! HeyrummmstJ P.S ÉG náði að setja inn myndir!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Tékkið!
22. ágúst 2007 klukkan 21:45
Jónína Harpa Njálsdóttir 7 athugasemdir
Hæ hó og jibbí jei! Versló var æði! Vinnan stóð klárlega uppúr! Nei ætli það hafi ekki verið böllin! Bara snilld! Búúú á þá sem beiluðu:) Brekkan var líka snilld, veit einhver um myndir frá því??? Væri gaman að sjáá.. Ég var að skoða barnalands- síðuna hjá systrum mínum sætu.... sjáiði bara! Hanna Sigga
Haha! Þetta er náttúrulega bara æðislegt!
Síðan er það Hrafnhildur Ásta:
Í siglingu við Rauðubjörgin!
Ég fór út á sjó með pabba eftir vinnu í fyrradag, það var orðið dimmt og svona. Mikið rosalega var það magnað, fórum út að norðfjarðarhorni og það eina sem að maður sá var Norðfjarðarviti, vitinn á Dalatanga og einhver annar viti... Ég spurði pabba hey hvaða viti er þetta? Og hann án nokkuruar umhugsunar: HÁLVITI! Ahahaha þetta fannst mér nú fyndið! En mér leið svolítið svona eins og í einhverri bíómynd, allt svart og svona blikkandi ljós lengst í burtu allstaðar hehe... æji vá engum finnst þetta merkilegt!
Væri ég ekki til í að vera á fiskideginum mikla á Dalvík hjá henni Völlu guð... Ójú! Það væri náttúrulega bara best! En maður getur ekki verið allastaðar, ég er hvort sem er að gera svo skemmtielga hluti hérna heima, vinna og taka lokapróf í sumarskólanum mínum.... Hversu skemmtilegt
Ég er að spá í að byrja að vera aktívari í blogginu VISES!
-Jónína Harpa
12. ágúst 2007 klukkan 12:50
Jónína Harpa Njálsdóttir 9 athugasemdir
Sælinú sykurpúðar! Nú sit ég útá palli með tölvuna með sólina í augunum.... niiiice. Er að njóta þess að vera í fríi í dag en þar sem að það er svo mikil vöntun á hótelinu það sem eftir er af sumri er ég að vinna á morgun og kvöldvöktum alla helgina og það sem eftir ef af sumrinu! Dálítið mikið svekk að missa eiginlega af allri verslunarmannahelginni en það verður að hafa það, þetta verður ekki síðasta verslunarmannahelgin vona ég
Ég held að málið sé fyrir alla að drífa sig austur, klárlega besta veðrið hér held ég hehe! Barasta komið, 15 stiga hiti og sönní veððer jeje!
Í dag er stefna sett á rölt upp á garða með yngsta bróður minn hann Tuma og síðan í ræktina því ekki hefur verið mikill tími fyrir þaaað undanfarið! Í kvöld er það síðan footballers wife´s hittingur þar sem að strákarnir eru að fara í eitthvað grill eða mat og konunum ekki boðið frekar en fyrri daginn þannig að fólk reddar sér
Haldiði að stelpan sé kki búin að skrá sig í BOOTCAMP í vetur!! Haha! Ég er að deyja úr spenningi yfir þessu, samt dáldið stressuð, alveg týpískt ég að fara að grenja yfir því að geta ekki gert einhverja æfingu hahahaha! En þetta verður snilld vonandi!
Síðustu daga er maður klárlega búin að vera í vitlausri brók þ.e.a.s fýlubrókinni yfir allri þessari vinnu en eins og ég segi maður verður að rífa sig uppúr því og reyna að hafa gaman að þessu;)
Þetta var klárlega mjög jákvætt blogg og hvet ég alla til að leggja orð í belg hér fyrir neðan! Sí jú um helgina alle sammen!
02. ágúst 2007 klukkan 14:03
Jónína Harpa Njálsdóttir 6 athugasemdir
Jæja hvað segja bændur?? Nú sit ég hér heima hjá FAnnari, Andri og FAnnar að horfa á mynd, Salóme að taka sér blund og ég í tölvunni... Félagslynda fólk!!! En að öðru..
Þau hlaut að koma að því! ég náði að klúðra einhverju í vinnunni! í gær tókst mér að hella hálfri flösku af Fanta í hárið á einhverri útlenskri stelpu, sem betur fer var þetta fjölskylda sem gat hlegið að þessu, aðrir hefðu labbað út grenjandi eða eitthvað! Samt sem áður mjög vandræðalegt!!
Í fyrradag hélt ég á á L.ung.A ásamt fleira fólki! Það var mjög gaman svona fyrir utan tónlistina sem var alveg svakaleg, allt svona búmmbúmm tónlist sem er ekkki hægt að dansa við nema að maður sé á eiturlyfjum!
Móment kvöldsins var samt klárlega eftir ballið þegar heim var komið! Málið var þannig að ég kom heim klukkutíma á undan Andra, hann var í rútunni... Á ballinu hafði ég verið með fasta fléttu og síðan tekið hana úr mér á leiðinni heim, var því eins og versta útigangsbarn með hárið ALLT útí loftið bara eins og afró.. Well, ég kom heim til Andra og hvað og hvað.... HÚSIÐ VAR LÆST...!!! Ég þurfti þá að taka til minna ráða og finna stiga og klifra INN UM GLUGGAN! Well ég fann stiga og byrjaði að klöngrast inn um hjónaherbergisgluggan, eins og indversk gleðikona að reyna að brjótast inn með hárið út í loftið, í sokkabuxunum og háhæluðu skónum niiiiiiiiiiiice! Hrundi inn á endanum!
Nú er mér spurn kæra fólk...Á ég að hætta að blogga hér og byrja að blogga á myspace eða bara halda áfram hér??? Hvad segiði??
ÉG við kommennnnnnnnnnnnnnnnnnnt;)
Sí ja
23. júlí 2007 klukkan 22:41
Jónína Harpa Njálsdóttir 7 athugasemdir
Djí.... Djöfull er maður latur að blogga á sumrin.... Greinilega meira að gera núna heldur en í tímum í skólanum HEHE! Það er búið að vera nóg ða gera hjá mér, pabbi búinn að kaupa eitt stykki hús til að gera upp þannig núna er ég í vinnu hjá honum þegar ég er ekki hér á hótelinu! 12-14 klst af vinnu á dag hvað er það milli vina,..
Já annars... ÉG Á AFMÆLI Í DAG! Við héldum afmæli síðasta laugardag sem heppnaðist með ágætum, þar var grillað, setið, spjallað og borðað kökur... sweeet!
Ég er ein heima.... mamma, Jóhann og Sigurbergur bara í ferðalagi... Þetta hefur orðið til þess að síðan á laugardaginn (þegar afmælið var) hef ég ekki ennnt að elda neitt eða gera neitt þannig það eru næstum bara búnar að vera kökur í ölll mál síðan.... Ógeðslegt eða?? Já ég held það bara!
P.s..... Mest lesið á mbl: Emilía hætt í nylon! Gosh ég er að pæla í að leggjast niður og grenja! Í þessari sömu grein kemur fram að hún hafi gift sig síðustu helgi?? Hvað er þessi gella gömul ég bara spyr???????????? Ég verð að fara að drífa mig að verða fullorðin og gifta mig og eignast börn og bara allt svo að maður verði ekki eftir á djíí!
En jæja fólkið sem e´g var að bi´ða eftir búið að tékka sig inn, ætla að skunda heim!
Vi ses!
17. júlí 2007 klukkan 23:03
Jónína Harpa Njálsdóttir 7 athugasemdir
Sælar! Er ekki lengur inn að blogga? Ég fór í ruglið og fékk mér myspace um daginn og nú sit ég eitursvöl allan daginn og reyni að fá mér vini og e-ð ... Voða gella eitthvað... Skil samt afskaplega lítið í þessu!
Hin langþráða stelpuútilega var farin um helgina og var þar margt brallað og mikið talað og bara gaman, ég mun skella inn myndum við tækifæri:D
Annars er ég alveg á bömmer mér finnst sumarið að verða búið hehe!
Ég ætla að drífa mig í ræktina núna enda var ekkert borðað nema snakk og nammi ALLA helgina og síðan náttúrulega var afgangur og ég hellti skriljón kílíum af kit kat kúlum í mig korter í sjö á leið í vinnuna í morgun.... ógeð!!
En well fylgist með þegar myndirnar koma inn! Takk fyrir helgina folks... ... Addið mér á myspace ! hehehe
-Djó næn
09. júlí 2007 klukkan 10:54
Jónína Harpa Njálsdóttir 4 athugasemdir
Erum við tumi ekki bara sætust? Tja allavega hann!;) Mig langar í útilegu. Við stelpurnar erum svona að plana það að fara þarnæstu helgi! Langar eiginlega bara strax núna um helgina:O En það er vinna vinna vinna.... Hverjum langar að vinna fyrir mig?
Eftir 2vikna frí í ræktinni (eða frí og frí, meira svona letikast að nenna ekki að mæta) fór ég aftur hér í fyrradag. Ég mætti gallvösk og tók bara mínar þyngdir sem ég var með síðast.... --> Afleiðingin var sú að ég er rétt byrjuð núna að gera sest niður, harðsperrur í rassi létu á sér bera! Dálítið svakalegt að mínu mati eftir 2vikna pásu sko.....
Ég fór á Jet black Joe síðustu helgi það var bara ekkert spes myndi ég segja? Sumir ekki sammála mér en það lá bara eitthvað illa á mér þetta kveldið;)
Síminn minn er fatlaður þessa dagana, er með sjálfstæðan vilja, skellir á fólk í tíma og ótíma og kemur með skrítið urg svona annað slagið m.a á nóttunni. Skemmtilegt nokk ég meina þetta er tilbreyting hehe.
Ég er búin að vera svona 20 mín að skrifa þetta stutta blogg sökum ritstíflu svo við látum þetta gott heita! boj
27. júní 2007 klukkan 15:21
Jónína Harpa Njálsdóttir 9 athugasemdir
Vá er maður algjör aumingi ég er alltaf að vinna bara hálfan daginn en kem samt engu í verk, ekki einu sinni að blogga!!
Ég kom reyndar alveg slatta í verk í hittifyrradag en þá fór ég í vinnuna frá hálf sjö til u.þ.b 2 og fór síðan til Akureyrar, keypti mér bíl, fór í Brynju og keyrði síðan aftur heim og var komin um 00! Talandi um að vera feitabolla og geta ekki sleppt Brynju í 20 min Akureyrarferð en ég meina þetta er bara partur af prógramminu þú skilur;)
Prins Polo er sem sagt seldur og það komu næstum tár þegar ég sá stelpurnar keyra í burtu á honum en það lagaðist nú allt eftir að ég var búin að kaupa þann nýja sem er btw Toyota Corolla árgerð 2003:)
Ég átti frídag í dag og í tilefni að því vaknaði ég með ælupest og ógeð! Alltaf jafn gaman að vera veik, elskaða.
Eins og þeir sem þekkja mig vita að ég hlæ mest af sjálfri mér og finnst ég oft vera mjög fyndin þegar aðrir eru með hneykslissvip og spurja hvort að ég sé vangefin. Ég var að lesa blogg sem að ég gerði í júní í fyrra sumar og ætla að birta það hér:
!ðaþ í amít fa ITTALS róf ðaþ ða ívþ ggolb aðajggeg atteþ á tnemmok áf anelidne liv gÉ
.ilib í ttog re atteþ ða ginnaþ kab á rutfa afirks ða ívþ á ðiel agelsðegó niðro re gÉ
.ikke sllA .uním ilat AGUFÖ usseþ ðem ðgienhnykmas és gé ða adlah óþ ikkE .rugufö fláh és ruðam ða amen ðagnaþ ikke agelurúttán ref ruðam ne ,raðrajfraðyeR lit gé róf naðíS ;)
ðijyerG !!!ðitildna í ksif kkéf nnah ða ívþ ðem iðadne atteÞ . alÓ iranúR munoh fa itlenie í ðgöl gé rav raþ go amítukkulk 8 í munitsyrfsual á rav gé ða mes raþ anunniv í róf ,rugad "ruðajggeg" arev ða niúb re atteÞ
Haha mér finnst þetta bara fyndast í heimi að ég hafi nennt þessu. Ég man svo þegar ég gerði þetta, ég sat AKKURAT hér þar sem ég er núna í stofunni heima og var að reyna að tala við alla afturábak á MSN en engum fannst þetta sniðugt og ég bara ein í hláturskasti. Fékk síðan smá móral eftir á þegar hláturskastið hætti yfir því hvað ég var örugglega pirrandi.
En nóg í dag, vildi bara hleypa lífi í þessa síðu hittumst heil en ekki hálf!
21. júní 2007 klukkan 22:53
Jónína Harpa Njálsdóttir 14 athugasemdir
Mikið rosalega er gaman að sjá fólk kvitta sem maður hefur ekki talað vil lengi! Héðan er hið fínasta að frétta, búin að vera mikil vinna en maður hefur ekkert nema gott af því! Búin að vera tvö kvöld í salnum á Eddunni og fer aftur í kvöld... Mér finnst bara búið að ganga nokkuð vel, er allavega ekki búin að missa súkkulaðitertu í andlitið á einhverjum eða súpu í klofið á einhverjum hehe!
Ég hef á tilfinningunni að ég sé að kúka uppá bak í enskunni allavega í sumarskólanum, ekkert smá hvað maður hefur verið ofverndaður því að ég fer bara í ruglið ef að það er ekki kennari til að tyggja hvert einasta orð inní hausinn á mér!
Bara stutt hjá mér í dag... lærdómurinn/dauðadómurinn kallar..... Heyrumst:)
Kv. Jónína Harpa
14. júní 2007 klukkan 13:07
Jónína Harpa Njálsdóttir 7 athugasemdir