17október

Kúkur

Var að rekast á þetta á bloggflakkinu mínu! Las þetta fyrir löngu og ég er ekki frá því að ég hafi hlegið enn meira þegar ég las þetta í 5 skiptið haha.
Það er náttúrulega nauðsynlegt að hafa þetta í huga þegar fólk situr á dollunni hvers konar nafn kúkurinn ber.  Maður grenjar haha!!!

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Sprengja-æðí-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.

Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.

Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.

Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...


Njótið!!!

17. október 2007 klukkan 13:46
Jónína Harpa Njálsdóttir
13 athugasemdir
13október

.....

Jæja...
Viðburðamikill tími síðan síðast var bloggað en þar er kannski hæst á baugi að ég og Andri erum ekki lengur kæróGráta Þó held ég að við séum góðir félagar og kannski er þetta bara betra svona hver veit...Fýldur

Mín fór í klippingu síðasta þriðjudag og breytti dálítið, maður er búin að vera með eins hár síðan um fermingu þannig það var tími til kominnHlæjandi Ég er bara nokkuð sátt með útkomuna.
Það er kvef og viðbjóður í manni þannig maður er að kúka á sig í bootcampinu, kafnar úr hori í hverju skrefi! Bara vika eftir að hugsa sér.... Og ég sem ætla alltaf að taka mig á í næstu viku og fara að gera þetta almeinilega huh....
Saló og bara allir heima þessa helgi, vetrarfrí í skólum og svona þannig það er bara gaman!
Ég er að fara að þjóna í einhverri veislu núna á eftir sem verður eflaust skemmtilegt, ég átti einmitt metið í því að klúðra hlutunum á Eddunni í sumar hehe neinei...

En jæja. Ég bið að heilsa.
13. október 2007 klukkan 17:26
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir
09október

Kósýheit par exelans

Afsakaðu allan þennan reyk inni...(8)

Hæ.
Menningarferðin var hin ágætasta þrátt fyrir lekandi rútu sem ætti heima á forngripasafni, hafa verið hent útúr íbúðinni, rafting í frosti, siglt á kind ofl. ofl.

Talandi um kósýheit þá sit ég inní sólstofu þar sem hiti er í gólfi, með aukahitara á, í hettupeysu með trefil, í kaninusokkum sem keyptir voru í Kaupfélagi Skagfirðinga (það náttúrulega VERÐUR að fylgja með sökum töffleika) undir teppi með popp í annari og kók í hinni að reyna að gera ritgerð í stjórnmálafræði! Svo að ég minnist á veðrið þá er vindur og slydda!
Er þetta ekki bara niiiiiiiiiceHlæjandi

Danke.
Jónína Harpa
09. október 2007 klukkan 14:17
Jónína Harpa Njálsdóttir
5 athugasemdir
01október

Blogg og myndir

Heil og sæl!Jæja... Góóð helgi að bakiJÁ föstudaginn skellti ég mér á lokahóf KFF og var ein af 4 stelpum þar eða eitthvað... verí fönn. Næstum allar myndir þaðan voru ljótar eða hreyfðar og verða því ekki birtar hérJ

Laugardagurinn fór í ég man ekki hvað, allavega ekki lærdóm:S Góður rúntur með Vilbó og Lottó (ahaha) um kveldið.

Í gær vaknaði ég svo um hádegi og fór á Kajak með Sigurbergi og Jóhanni í geeeeeeeðveiku veðri! Geðveikt
J
Þegar við vorum síðan að ganga frá kajökunum og svona hringdi faðir vor í mig og spurði hvort að ég vildi sigla með honum og Hrafnhildi í Mjóafjörð og að sjálfsögðu skellti ég mér með. Bara snilld, svo gott veður! Hitti ekki krimmana tvo sem sagt er að aðhafist þarna en hittum aftur á móti mann sem sagði okkur að annar þeirra hefði alltaf verið að tala um einhverja skútu langt áður en skútan kom til Fáskrúðsfjarðar með allt drullið! Fyndið!
Er að skella inn nokkrum myndum frá gærdeginum (sunnudegi), kíkið í albúmið... smá sýnishorn..






Heyrumst!
-Jónína Harpa 
01. október 2007 klukkan 11:08
Jónína Harpa Njálsdóttir
10 athugasemdir
27september

Grenjublogg

Búhúú mig langar svo í menningarferðina:(
Stelpurnar búnar að leigja íbúð, andri að fara til barcelona og ég verð ein í Nesk!
Og hef aldrei farið í menningarferð:(
Hundleiðinlegt að vera í vinnu.
Grenji grenj.
Kveðja grenjuskjóða.
27. september 2007 klukkan 22:04
Jónína Harpa Njálsdóttir
4 athugasemdir
26september

Ging gang gúllígúllígúllígúllí vass vass ging gang gú ging gang gú...

Rosalega hlakkar mig til þegar...
 
--Snjórinn kemur!
--Og ég fer á skíði
--byrja að þjálfa krakkana á skíðum
--fer á snjósleða
--allir eru að festast út um allan bæ HEHE
-- skelli mér kannski á gönguskíði?
--fer út að leika í snjónum ofl ofl.

En það er nú langt í svona mikinn snjó held ég....

Er ekki einhver til í skíðaferð með mér?
Eða bara sólarlandaferð?
Eða kannski bæði?
Bæði í einu?


En já bæ.

26. september 2007 klukkan 15:05
Jónína Harpa Njálsdóttir
3 athugasemdir
23september

Pirringur


Smá upptalning hérna...  Bara fyrir mig þá finnst mér ógeðslega pirrandi ...

-að þurrka mér eftir sturtu
-Allskonar bíb hljóð sem koma þegar hurðir opnast og lokast í búðum
-Fólk sem talar ENDALAUST
-Fólk sem lýgur endalaust
-Alltof sjálfselskt fólk
-Slyddu
-Hengja upp sunddótið
-setja utan um sængurver
-Bíla sem rúnta 700 ferðir fram hjá húsinu mínu á kvöldin með ofur háa búmmbúmm tónlist
-Ofl.,ofl,. ofl........

Ég á það líka til að láta bara einhverjar ákveðnar manneskjur pirra mig alveg OFUR mikið og tuða um það allan daginn út og inn...

..En þá er komið að pointinu..
Ég var úti í búð um daginn og það var eitthvað endalaust pirrandi hljóð sem heyrðist alltaf í einhverju þarna og ég sagði við manneskjuna sem ég var með:
"Djöfull er þetta pirrandi hljóð!!!!!"
... Þá sagði maður sem stóð fyrir aftan mig og ég þekki ekki neitt

-það er ekki hljóðið sem er pirrandi heldur ert það þú sem lætur hljóðið pirra þig..!

Og sveimér þá... lesið þessa setningu aftur, það er svo mikið til í henni að maður fer næstum því að hlæja hvað maður er sjálfur oft að gera sér lífið leitt með því að láta eitthvað pirra sig..!

Fínído, mjög gáfulegt blogg takktakk

-Jónína Harpa
23. september 2007 klukkan 21:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
10 athugasemdir
17september

bloggeddíblogg

Sælt veri fólkið.
Ég dáist af sjálfri mér fyrir elju mína við að blogga!. Talandi um að standa sig vel! Ég mun bæta mig ég mun bæta mig.... Sjáum hvernig það gengur!
 
En það er nú ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, eins gott, því það væri nú sorglegt ef u.þb hálfur mánuður væri alveg tíðindalaus. Ó nei Ó nei.
Eins og ég minntist á í síðasta bloggi er mín byrjuð í bootcamp og verð ég að segja að þetta er mesta snilld sem ég hef prófað. Brosið er bara fast framan í manni eftir hvern tíma. Ég ætla ekki að taka aumingjan á þetta eins og ég gerði hérna um árið... En það var þegar ég skellti mér í body pump tíma og ætlaði svo sannarlega að vera svöl og massa þetta...
Eitthvað fór þetta nú örðuvísi, ég fékk gríðarlegar harðsperrur sem lýstu sér þannig að ég gat t.d ekki sest í bíl, á klósettið eða hvar sem maður gat hugsað sér að setjast í svona eina og hálfa viku... þurfti að HLAMMA mér allt til að öskra ekki og reyna á lærin við þessa gríðarlegu hreyfing. Ég mætti semsagt í tvo tíma og ákvað síðan að þetta væri asnalegt og hætti. Horfði síðan á hina sem voru í þessu fá árangur.
Góð saga Jónína.

En já.. Ég get ekki sagt sömu gleðisöguna um skólann en það tímabil sem maður tekur alltaf rétt eftir að skólinn byrjar "égætlaaðveraógeðslegaduglegískólanumþessaönnoglæraalltafheimaþágenguralltafalltmiklubetur" - tímabilinu, ER LOKIÐ.
T.d í gær,

ákvað ég að gefa lærdóminn upp á bátinn eftir að ég uppgötvaði að ég var búin að lesa ca. 5 kafla í njálu (sem eru alls í mesta lagi 10bls) á u.þ.b. einum og hálfum tíma en hafði hins vegar náð góðum árangri í að skanna bloggsíður hjá hinum og þessum aðilum sem ég þekki ekki rassgat.

Ég var meira að segja svo langt leidd að ég var byrjuð að lesa gömlu bloggin og myndirnar á 8-SKY síðunni sem var svo fræg hér um árið.. Minnir mann á skemmtileg dramamál sem komu upp í kjölfarið ..... sem kveikti hjá mér löngun til að blogga.

Furðulegt alveg hreint hvað manni dettur ýmislegt áhugavert í hug til að skoða eða gera, einmitt þegar maður ætti að vera að læra.

Manni leiðist kannski aðra daga og getur ómögulega látið sér detta í hug eitthvað til að gera. En núna, þegar maður á að vera að læra á fullu hinsvegar, sér maður skyndilega að það er aldeilis frábært úrval af alls kyns afþreyingu á boðstólnum!

Skyndilega grípur um mann gríðarleg löngun til að taka til, eða skoða alla tenglana á B2, lesa moggan.. name it.

Ég læt nú samt ekkert verða af öllu sem mér dettur í hug, eins og ástandið á herberginu mínu gefur til kynna. Ástæðan fyrir því að ég framkvæmi þetta ekki er yfirleitt sú að ég á að vera að einbeita mér að því að læra. Þess vegna getur maður stolist á netið af og til eða spjallað á msn án þess að vera beinlínis að hætta að læra. Lýtur mjög vel út þegar maður er búin að vera inn í herbergi í 4klst, kemur síðan fram AHHHHHHH og teygir úr sér eins og maður sé búinn að vera að læra eins og mofo í 4 tíma none stop.

Að ég skuli vera að tjá mig um þetta hér... Skömm að þessu... En kannast ekki einhver við þetta??

Síðasta hálfa mánuðinn er ég í stuttu máli búin að: vera í boot camp, fá harðsperrur, vera í skólanum, fara á fótboltaleik, festast á skarðinu (já í september), vera á skíðaþreki með litlu ofl ofl....

Í endan ætla ég að deila með ykkur tveim skemmtilegum myndum síðan á laugardagskvöld:


FLOTT UNDIRHAKA JÓNÍNASvalur


Svertingi und hvítingi!



Ég bloggaði- þið kvittið þannig gengur þetta fyrir sig er maður að heyra;)

Með lærdóms-baráttukveðju... JÓNÍNA HARPA.

17. september 2007 klukkan 10:31
Jónína Harpa Njálsdóttir
7 athugasemdir
10september

Boot Camp

Boys and girls..... BOOT CAMPIÐ AÐ BYRJA Í DAG!

.......Spennandi að sjá hvernig það verður úffffff........

10. september 2007 klukkan 11:29
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir
02september

Blogg

Jæja!
Skólinn kominn á fullt!
Það var busun um daginn, heldur subbulegri en þegar ég var busuð, þá fékk ég kannski smá sinnep á puttan! Busarnir þetta árið voru aðeins skrautlegri:



Gaman að þessu

Núna er ég orðin svo hrikalega tæknileg að ég kann að setja myndir úr símanum mínum í tölvuna! Finally. Sorry samt hvað þær eru allar óskýrar! KÍKIÐ Í ALBÚMIÐ!!!!
Um daginn  var líka farið í skólagönguna skemmtilegu, klikkað flott útsýni sjeeett man!



Nú fer að styttast í bootcampið! Hlakka til kvíði fyrir bæði í einu.... !

Inga Þórey og fjölskylda að flytja úr bænum! Synd og skömm!

Bryndís fóstursystir flúin til Ak í skóla! Svolítið skrítið að koma heim til pabba og Ólafar og engin Bryndís!
Hinsvegar hef ég verið að passa systur mínar þær Hrafnhildi og Hönnu Siggu dálítið undanfarið sem mér finnst æðislegt og Hanna Sigga er byrjuð að segja nafnið mitt í tíma og ótíma!! Greinilegt hvað maður er skemmtilegur!Svalur



Jæja! Best að drífa sig í rúmið!
Kvittið endilega ef þið lítið inn eeeeeeeeeeeeeeeeelskurnar!

-Jónína Harpa

02. september 2007 klukkan 23:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
9 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur