24desember

Gleðileg jól allir

Hóhóhó hvað segja bændur! Oh shit ég er orðinn svo ömurlegur bloggari... spurning um að bæta sig í þessu eða hætta... ved ikke man.
Jólin að koma á morgun... einhvernvegin er ég ekki að meðtaka það því að jólaskapið hefur ekki náð hámarki enn! Kannski bara ekki komið yfir höfuðl... Er þó allt að koma því að það er allt orðið svo rosalega fínt hérna heima og allir að brasa eitthvað, pakka inn síðustu pökkunum og eitthvað:)

Í gærkvöldi fór ég á jólagleði í Egilsbúð sem var hið fínasta þó að fólk hafi mestmegnis setið og spjallað! Einmitt á þeirri samkomu fékk ég að heyra hvað bloggið mitt væri ömurleg frá einum aðila hér í bæ uss.... Skelli kannski inn myndum frá þessum fagnaði við tækifæri!

Jólafríið er búið að fara í allt og ekkert....  Hálsbólga dauðans hefur MIKIÐ látið á sér kræla... hef bara ekki fengið annað eins og vissi ekki að maður gæti grenjað svona mikið í öllum bara út af HÁLSBÓLGU... Eins og einhver aumingjaskapur sé í gangi en þetta er nu bara rosalegt hehe.

Ball annan í jólum... Allir þangað! Rosalega hlakka ég til hehe! Laaangt síðan ég hef farið á svona almeinilegt ball sem ég reikna með að þetta verði!

Ég ætlaði nu aldeilis að taka gelluheitin á þetta í gær... Skellti mér í ljós og svona... STeinsofnaði og það í gamla bekknum svo ég BRANN í framan feitast og er hérna eins og umferðarljós.

Vonum að það lagist hið snarasta;) Eftir þetta fór ég (eða mamma) að lita á mér augabrúnirnar... En það vildi nu þannig til að þar sem að húðin var svo sár og aum eftir ljósin tók hún 100x hraðar við litnum en venjulega og útkoman var ískyggilega dökkar augabrúnir hehe... Gaman að þessu;)

Jæja best að fara að koma sér í háttinn... Heyrði að jólasveinninn ætlaði að gefa mér í skóinn í nótt og ég verð nú að vera sofnuð áður en hann kemur!!!

Gleðileg jól allir!!!Koss


Ahahahahha

Kveðja,
JólaJónína

24. desember 2007 klukkan 00:24
Jónína Harpa Njálsdóttir
2 athugasemdir
10desember

Þetta er mannskemmandi

Jæja.
Hér í húsi er allt á rúi og stúi því það er verið að taka baðið í gegn, djöfull verður þetta flott þegar þetta klárast!! Vegna þessa þarf maður að troða sér inná annað fólk í bænum og fá að fara í sturtu hjá því hehe. Ég er búin að banka uppá hjá Svanhvíti Ara nágranna og ömmu og svona og fengið að fara í sturtu!
Hjá ömmu fékk ég líka lánaðar bækur! Jájá maður verður nú að hafa eitthvað að lesa í prófavikunni, ætti nú að vera að lesa skólabækur en neinei ég glugga í þær síðar.
Einu sinni sat ég ALLAN daginn og las eins og versta nörd og ætla ég að reyna að taka þessa iðju mína upp aftur, allavega eitthvað svona! Maður er nú í tölvunni allan daginn að tala við sama fólkið á msn um ekki neitt eða metast um við aðra hvor sé búinn að læra minna fyrir próf þann daginn o.s.fv.
Ég er líka farin að standa sjálfa mig að því að vera MJÖG sorgleg, sem sagt búin að skoða allar mögulegar bloggsíður sem hugsast getur og er einnig byrjuð að skoða blogg oft á dag hjá ca 90 ára gömlum kalli!!! ahahah! Til þeirra sem hafa áhuga:
www.mannvitsbrekka.blog.is ! Klárlega bitrasti maður Íslands!!
Ég held að hámarki sorglegheitana sé náð á þessum tímapunkti!!Hlæjandi
Byrjaði nú reyndar þegar ég sá þessa síðu inná blogginu hans Gillz, en þessi gamli maður var eitthvað að tjá sig um þann mann, einkar skemmtilegt.

Skíðaæfingarnar eru byrjaðar og er það bara stórskemmtilegt! Ég kemst í jólafrí á föstudaginn... Hver getur leikið í jólafríinu??

Sjáááumst;)

10. desember 2007 klukkan 14:10
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir
07desember

Fjall!!



Afhverju er ég ekki þarna AKKURAT NÚNA?????

Ég fór reyndar í gær!! Og það var ÆÐISLEGT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég er ekki að ná því!!HlæjandiHlæjandi

Annars ætlaði ég bara að deila þessu með ykkur!!!

Ég er farin að elda pasta!

ALLIR Í FJALLIÐ!!!!!

Vi sesSvalur
07. desember 2007 klukkan 17:49
Jónína Harpa Njálsdóttir
4 athugasemdir
03desember

Yfirhafnaæði

Já komiði sæl!
Tvö próf búin af 7.... niiice þetta kemur;)
Ég held að ég sé að verða geðveik! Þegar ég sé eitthvað nýtt flott frá cintamani, 66°Norður, zo on eða bara name it þá VERÐ ég að eignast það og eyði þar af leiðandi öllum mínum peningum í þannig vörur!
Ég var að missa mig einmirr yfir þessari úlpu:
Cintamani

Og hvað..... Þetta endaði ekki öðruvísi en ég labbaði í henni út! Svartri reyndar! Og djööööööööfull elska ég hana ég gæti sofið í henniHlæjandi

Og þó að ég eigi nú þá þessa úlpu og 3 aðrar auk þess að eiga fullt af jökkum og anorökkum þá vantaði mig nú auðvitað EKTA skíðaúlpu ha... fer nú ekki að fara í þessu á skíði neinei. Þannig að ég pantaði AÐRA úlpu og snjóbuxur til að fá í jólagjöf!!! Þessi bláa! Shiii love it!


En af úlpum yfir í annað.... Er einhver til í að flytja með mér?
Þá er ég að tala um einhvern stað þar sem að bæði hægt að vera bara á ströndinni að tana sig.... (læt gríðarlega flotta mynd síðan á Mallorca fylgja) ooooooooooog....





.... skella sér á skíði... Sama daginn?
Læt hérna MJÖG flotta mynd af mér fylgja, þetta er klárlega svipurinn sem fólk heillast af...


Pæliði í hvað það væri gaaaaaaaman.
Vakna, fara á skíði, koma síðan þreyttur heim og fara að tjilla á ströndinni!!
Það er til einhver svona staður, ég veit það! Þarf bara að finna hann.

Enjábless.

-Djónæn

03. desember 2007 klukkan 12:54
Jónína Harpa Njálsdóttir
13 athugasemdir
30nóvember

Óveður!!

SvalurHlæjandiJæja það er nú ljóta veðrið hehe.
Kannski bara fínt þar sem að síðasta skóladeginum er lokið og maður þarf að fara að lesa lesa lesa lesa lesa lesa lesa lesa lesa lesa!! Fyrsta prófið á mánudaginn og það ekki í auðveldari áfanga en ÍSL303! Fullt af óskiljanlegu drasli sem maður þarf víst að koma inn í kollinn á sér, völuspá, hávamál, Helgakviða hundingsbana ofl ofl brááááðskemmtilegt
Svalur

Ég var að skoða www.oddsskard.is og ég gat nú ekki betur séð en að það stefni allt í opnun á næstunni! Kannski bara á þriðjudaginn!!! Ooog ég er miðri prófaviku huhh!
Reyndar finnst mér æði ef við getum farið að drífa krakkana á almeinilegar skíðaæfingar, þessar þrekæfingar eru orðnar heeeeeeldur þreyttar.

Ég verð komin í jólafrí þann 14. des! Hvað á maður þá að gera??? Einhverjar hugmyndir??

Ég held að ég sé aftur að fá "blogg-andann" sem mig hefur vantað svo lengi.. Kannski bara af því að það er að koma prófavika HEHE!

Ég þarf að fara að vinna í því að finna einhverjar myndir og drasl til að setja hingað inn, blessuð síðan er gjörsamlega að rotna!

Jæja,þú last -þú kvittar;)

Kv,
Jónína Harpa

30. nóvember 2007 klukkan 19:04
Jónína Harpa Njálsdóttir
8 athugasemdir
21nóvember

Tilefni til að blogga

Já eitt af aðaltilefnum til að blogga er auðvitað þegar maður á að vera að læra eins og núna, daginn fyrir lokapróf í sögu....!
Það er bara ekki fyndið hvað ég á erfitt með að BYRJA að læra... Er síðan dugleg þegar ég bara loksins byrja. Hræðilegar afsakanir alltaf hreint.
Strax eftir skóla eða kl. 15:15 VARÐ ég nú bara að fara að kaupa mér peysu í staðinn fyrir að læra jájájá bráðnauðsynlegt. Síðan þegar ég kom heim langaði mig auðvitað svo hriiiiiikalega að fara í  nýju peysuna og þá var auðvitað nauðsynlegt og hreinlega "tilvalið" að fara í sturtu áður en ég færi í nýju hreinu peysuna..... 
Hófst ég síðan handa við að gera hina ýmsu tilgangslausu hluti eins og að naglalakka mig, búa um rúmið, taka pínu til ofl. ofl....
Jæja eftir þetta allt saman lallaði ég inn í herbergi... eitthvað vantar nú. Já. Ég get nú ekki farið að læra án þess að hafa nammi til að borða með þannig ég skrepp út í búð og kaupi nammi.... nammið er LÖNGU búið en ég er ekki enn farin að læra neineinei hvað er AÐ.

Ég þarf á námsskeiði í sjálfsstjórn að halda!
21. nóvember 2007 klukkan 16:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
9 athugasemdir
14nóvember

Svefn - afar áhugavert.

Við erum að tala um það að við lifum í samfélagi þar sem að við höfum allt til alls og maður ætti ekki að vera að kvarta yfir einu eða neinu. Það er fullt sem maður getur gert til að reyna að hafa gaman og svona... En hvað.. Ég er komin í þann gírinn sem gerist á hverju ári...... Lífið er farið að snúast um að leggja sig!

Já þannig er með með ávexti að nú er náttúrulega farið að dimma áður en skólinn klárast á daginn og það er myrkur þegar maður fer í skólann og þá er eins og ALLIR séu alltaf þreyttir. Eða þúst... Æji þið skiljið.

Well. Ég er komin í þann pakkann að t.d á mánudagsmorgun, þá vaknaði ég eftir minn átta tíma svefn alveg ofur þreytt (maður ætti nú að vera ferskur eftir 8 tíma)... Og hvað var það fyrsta sem ég hugsaði?? Það var: Djöfull hlakka ég til á fimmtudaginn, þá er ég nefninlega í löngu gati í skólanum og ég ætla að leggja mig! Ég sem sagt plana svona fram í vikuna.. ekki eitthvað áhugavert heldur "leggitíma".
Vá hvað þetta er ömurlegt blogg. Ég ætla samt að halda áfram. Síðan er líka annað.. Ég hef nú reyndar bloggað um þetta áður, en ég er byrjuð að rugla saman hvað gerist í draumi og hvað í raunveruleikanum. Ég er hérna að tjá fólki eitthvað og það skilur EKKI NEITT um hvað ég sé að tala og þá fatta ég að þetta gerðist ekki í alvörunni heldur dreymdi mig þetta. Góð saga.

Rosa góður pistill maður hahaha njét en já bæbæ kvittvitt:)
14. nóvember 2007 klukkan 19:47
Jónína Harpa Njálsdóttir
10 athugasemdir
10nóvember

Okei aahahahahahahaahahahahahaha

Ég var búin að læsa síðunni því ekki hefur verið mikið um skemmtileg skrif hérna uppá síðkastið.... Hinsvegar  fékk einn hlutur mig til að hlæja óstjórnlega mikið áðan.....
Málið er að þegar ég á að vera að læra heima sækir ALLT annað hugsanlega áhugavert (og óáhugavert) að gera heldur en að einbeita sér að lærdómnum... Welll, Jónína sorglega ákvað að "googla" sjálfa sig....

Hvað haldiði að það hafi verið það fyrsta sem kom upp?

.........MYND AF MICHELIN MANNINUM!!

Eeeeeeeen fyndið! Ég er grenjandi hahaha!

SES
10. nóvember 2007 klukkan 17:05
Jónína Harpa Njálsdóttir
3 athugasemdir
04nóvember

Bloggið

Heil og sæl heil og sæl!
Það er nú ekki frásögufærandi nema það að það var skellt sér á bæði Pallaböllin! Jájá það má nú ekki láta þetta fram hjá sér fara fyrst það er eitthvað að gerast á annað borð! Þetta var náttúrulega algjör snilld, þó fannst mér 16 ára betra, veit ekki afhverju, var örugglega bara þreyttari á laugardeginum þar sem ég var að þjóna fyrir ballið og svona:)
Myndir frá atburðum þessum er hægt að sjá á heimasíðu Lovísu eða
www.lovisaj.bloggar.is

Helgin sem nú er að líða undir lok hefur heldurbetur verið viðburðarrík líka ha...  Það er búið að vera klikkað að gera, skellti mér á 1stk 12tíma næturvakt í síldinni frá föd til lau.. Síðan var auðvitað það sama, að þjálfa á sjálfum laugardeginum og síðan skellt sér í þjónadjobbið. Ég man ekki eftir að hafa lagst á koddann í gær ég sofnaði svo fljótt heheHlæjandi
Um hádegi í dag vaknaði ég svo hress og kát og fór á sjóinn með föður og veiddum við um 70kg af fiski á mettíma, ekki slæmt það!! Bara snilld.
Látum nokkrar afbrigðilegar myndir frá 16 ára palla fylgja, þó hvet ég fólk eindregið til að skoða allar myndirnar hjá Lotts!



Holgóma systkinin víðfrægu


Best að troða sér með á myndina hahahaha


Eitthvað öfugsnúin þessi

SES;)
04. nóvember 2007 klukkan 20:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
9 athugasemdir
22október

Gleði og glaumur

Já vitiði ég held að ég verði bara að fara kynnast imbakassanum uppá nýtt. Núna þegar maður er búinn að vera vanur því í eitt og hálft ár að geta ofsótt einhvern og skipað honum að leika við sig alla daga öll kvöld þá er ég gjörsamlega AÐGERÐARLAUS svona fyrir utan það að vera á MSN og tala um ekki neitt við einhverja öll kvöld. Held að þetta sé hin fínasta hugmynd;) Núna hljómar þetta eins og ég eigi ekki aðra vini eða eitthvað hehe en fólk er annað hvort í arbejde eða með kæró sem er auðvitað skiljanlegt;) GRENJI GRENJI  djöfulsins aumingjaskapur og grenj er þetta hahah! Nú er ég hætt.
En svona í sambandi við sjónvarpið samt hætti ég eiginlega að horfa á það þegar ég flutti til DK og byrjaði eiginlega bara ekkert aftur að fylgjast með neinu eftir það!! Hvað er að manni..?

EN WELL nú er Páll Óskar  í búð Egils næstu helgi bæði fös og lau! Það er nú ekkert nema gleði í kringum það, ekki oft sem það er eitthvað að gerast! Fólk er að velta fyrir sér hvort að það eigi að fara á 16 eða 18 ára ballið eða bæði??? Aaaaahhhh sjáum til lemur allt í kjós!
Bootcampið búið sem er frekað leiðinlegt! Ég er ánægð með árangurinn hérna, 20cm takk fErerJÞað er alltaf alveg kreisí að gera í skolen og svona.... Og eiginlega ekkert nýt tað frétta svo ég kveð að sinni. Veriði sæl.
22. október 2007 klukkan 21:12
Jónína Harpa Njálsdóttir
9 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur