23mars

Halló heimur... Nú eru páskarnir gengnir í garð! Ég myndi segja að þetta væru svona "ekta páskar" þ.e.a.s svona eins og ég man eftir þegar ég var lítil. Allir á skíðum í sól og blíðu og borða nestið í skottinu!! Skemmtilegt:)
Ég byrjaði páskafríið á að fara á bókasafnið og sit nuna heima löngum stundum að lesa hehe! Nörd.
Ananrs er nú helvíti mikið að gera hjá mér þessa páskana. Skíðadeildið að sjá um eitthvað dæmi og síðan er ég að vinna á milli í skálanum á tvöfaldri yfirvinnu, já það verður gaman um mánaðarmótin:)
Ein mynd síðan í dag:

Sparifatadagur í fjallinu:)
Ég er komin með rosa skíðabrúnku í framan, freknur líka útum aaallt. Sá hvað það kom einstaklega vel út þegar ég klæddi mig fínt fyrir ball núna á föstudaginn, brún í framan og hvííít á bringunni hehe

En hvað er ekki hægt að laga með brúnkukremi og smá sólarpúðri

Ég verð ekki söm eftir þessa páska eða sem sagt vaxtarlag mitt. Jájá, mín á 4 páskaegg og þar af tvö númer 10...

Hjæællp.
Annars verð ég að fara að verða duglegri í ræktinni. Besta form sem ég hef verið í var eftir bootcampið, þá var ég einnig 15kg léttari en ég var þegar ég var feitabolla.....! En eftir að bootcampið kláraðist hefur mín ekki skellt sér í ræktina nema með mjöööööög löngu milllibili og alltaf furða ég mig á því hvað ég er orðin mikill aumingi.. Skrítið hehe

Jæja, mamma er að elda einhvern dýýýýýrindis mat sem ég ætla að fara fram og kíkja á.
Sjáumst,
Jónína Harpa Njálsdóttir
04febrúar
Jæja bændur, loksins ákvað ég að blogga!
Búin að sitja hérna og vera að læra í sálfræði... mjög dugleg!
Ég ætla að vona að enginn sé að njósna núna því hann myndi fá áfall, gleymdi hárinu í handklæðinu eftir sturtu þegar ég var að læra svo það er hálfþornað allt í klessu, ekkert einasta hár liggur niður með hausnum... sexy lady!
Ég fór í ræktina áðan...... AHHHHHHh þriðja skipti á þessari önn, hvað er það?
Jú, það hefur verið mikið að gera, skóli og skíðaæfingar! Ekki nógu góð afsökun samt...
Það hefur snjóað ekkert smá mikið núna og bara vont veður og engin skíðaæfing þannig mín skellti sér í ræktina og váááááá aumingi.is, var að kúka á mig með einhver 3kg lóð í einhverjum æfingum þarna grínlaust. Þetta þarf að bæta.
Well alltaf þegar það er vetur og mikill snjór hugsar maður hvað það verði gott þegar sumarið kemur og öfugt, reyndar kann ég massa vel við snjóinn en þegar maður er svona hvítur og myglaður eins og á þessum dögum keeeeeeeemst maður ekki hjá því að hugsa um MARMARIS SEM ER EFTIR 106 daga! JÚHÚ!!!!!

Ég útá Marmaris!



AHHHHHHHH mig grunar að þetta verði svo næs.... samt svo langt þangað til!!!
JÆJA ALLIR AÐ KVITTA FYRIR KOMUNA!!
MANGE TAK, HILSEN,
JÓNÍNA HARPA NJÁLSSEN.
24desember
Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem einn fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og dapur. "Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi" sagði hann og horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna. "Eina von ástvinar ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð hefur ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er
jafnframt eina vonin í þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni en þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann". Ættingjarnir sátu hljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir
dálítinn tíma spurði einn þeirra. "Hvað kostar heili?" Læknirinn svaraði strax. "Karlmannsheili kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað og fimmtíu þúsund". Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en karlmennirnir forðuðust að horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki hamið forvitni sína og spurði
þeirrar spurningar sem alla langaði að spyrja að. "Af hverju er karlmannsheilinn svona mikið dýrari"?
Læknirinn brosti umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði þetta fyrir öllum hópnum. "Þetta er bara þetta venjulega verð sem sett er upp, við getum ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru notaðir"!!!
HEHE! Gleðileg jól:)
Minni á bloggið fyrir neðan sem ég skrifaði í gær!