04maí

Hvanndalsbræður

Jáá, þeir eru snilld..... Alveg argasta snilld, það leiðinlega við þetta allt saman er samt að það vill enginn koma með mér á tónleikana með þeim í kvelle.... Skrítna fólk.  Ég er bitur.

Síðan er það stæ prófið á morgun, ég er búin að vera að læra eins og bavíani en samt kann ég ekki neitt og veit ekki hvað ég er að gera.  Þar fara tvær einingar held ég... Óákveðinn  Lýst ekkert á þetta rögl... Er að fara í aukatíma nú á eftir, sénsinn samt að maður fari að læra einhverjar rommsur þar á klukkutíma ef að maður gat ekki lært þetta á heilum vetri!

Ætla að enda þetta á mynd af meisturunum.....


Hilsen Jónínaaa
04. maí 2006 klukkan 21:44
Jónína Harpa Njálsdóttir
7 athugasemdir
03maí

Blessuð prófin

HlæjandiJæja maður ákvað að drattast í eina bloggfærslu eða svo.... Hér færðu þetta mamma mín.Brosandi

En já, það er allt gott að frétta, prófin komin á milljón og svona...  Búin með íslensku og síðan er það dansk i morgen;)  Eftir það eru síðan BARA eftir stærðfræði, enska, heilbrigðisfræði, íþróttir og lífeðlisfræði....

Gaman að segja frá því að ég eignaðist litla systur í fyrradagHlæjandi   Hún er algjört æði, langaði ekki að sleppa henni þegar ég fór og kíkti á krílið.... Hér er mynd af okkur systrum....... Svipur með okkur eða hvaðSvalur


Annars veit ég ekki hvað ég á að segja.... Hefur ekki gerst mikið meira síðustu daga vegna prófanna.....
Það helsta sem hefur gerst síðustu daga var í dag þegar hann Benjamín nokkur félagi minn náði að segja mér 4 sögur af ÖMMU SINNI í einum kaffitíma.... Já það er ekki á hverjum degi sem að maður fær að heyra sögur af henni Lillu Páls Hahahhahahaa.....

En jæja... Slinga er að fara að klippa á mér toppinn þannig að ekki láta ykkur bregða ef að ég verð snoðuð næst þegar ég hitti ykkur, stelpan gæti farið hamförum með skærin....... NEEEEEEEEI djók, þetta verður magnað;)

En heyrðu Vi ses og óskið mér góðs gengis í geggjuðu prófunum;)

03. maí 2006 klukkan 00:53
Jónína Harpa Njálsdóttir
13 athugasemdir
30apríl

Jónína og Valgerður skelltu sér í fjallgöngu 29.04.06


Jáá... þetta var labbitúrinn okkar Völlu sem við fórum í today í stuttu máli.... Þetta var alveg geggjaðHlæjandi
Verður alveg pottþétt endurtekið við tækifæri!

...Eina sem að vantaði voru þoturassar til að renna sér niður fjalliðSvalur

Fleiri myndir getiði séð í "myndir" og "Jónína og Valla í fjallgöngu".
Tókum líka einhver vídjó en ég kann ekki að setja þau á netið...

HlæjandiEn það er gaman að leika sér og fólk ætti að gera meira af því.Hlæjandi

Væri gaman að fá komment...

Góða nótt og sofið rótt, kveðja Jónína HarpaKoss
30. apríl 2006 klukkan 06:00
Jónína Harpa Njálsdóttir
11 athugasemdir
29apríl

Lesið þetta, en líka nýtt blogg fyrir neðan...

Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur.

Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.

Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna.


Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.


Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.


Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.

Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá og sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Þú hefur þá safnað um þig vinahring.

Ákvað að setja þetta hérna í staðinn fyrir að senda ykkur þetta sem að lesa þetta og vita að þeir eru vinir mínir í e-maili... 


Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður.

.

Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu!

29. apríl 2006 klukkan 00:08
Jónína Harpa Njálsdóttir
4 athugasemdir
28apríl

Aaaa þetta er ágætt:D

Ahhhh djöfull er þetta nice, þvílíka blíðan dag eftir dag þegar maður vaknar og þá verður maður alltaf hressari yfir daginn.  Brynju ferðunum hefur líka fjölgað ískyggilega í þessu veðriHissa  Skil ekkert í þessu ástandiSvalur

Hitti Ollu, Gumma, ömmu og afa í gær.... Þau eru hérna í einhverri íbúð og ég fór og borðaði með þeim og svona.... Helvíti gaman að hitta þau!
Fórum líka í bónus... Þar gerði ég mig að nettu fífli..... Eins og einhverjir vita þá er það orðinn bara svona vani að Inga sé kölluð Slinga, Petra Petrína, Valgerður Valla guð og svona...   En jæja ég var í bónus með ömmu og co og þar var kona að kalla á manninn sinn bara "Jói!!"  Og ég bara "JÁ???"   OG HÚN LEIT Á MIG EINS OG ÉG VÆRI  KRAFT-VANGEFINN FÆÐINGARFÁVITI HAHAHA!!  Fokka hell þetta var svo fyndið, og auðvitað var ég bara ein að hlæja þetta sem að gerði þetta enn asnalegraHlæjandi

Síðan voru það Hvanndals í gær.  Fór með Esteri og Völlu, held nú að þær hafi ekkert verið að fíla þetta í botn en vóó hvað mig langaði bara að sleppa mér, allir sátu bara þarna eins og aumingjar og hreyfðu sig ekki... Hvað er að ykkur fólk?  Þetta er svo mikil snilldHlæjandi

Eftir það var það smá rúntur, hægt að orða það þannig að maður hafi verið ágætlega vindbarinn, enda á BLÆJUBÍL haha... Ekkert horft á mann neinei.   En eins og allir vita þá er ég svo mikill nagli að ég lét þetta ekkert á mig fá, enda líka ekkert frost úti.....

En jæja.... Ætlaði bara að henda nokkrumorðum hérna inn, og já það liggur bara ágætlega vel á mér í dagHlæjandi

Síðasti tíminn á önninni kallar... heilbrigðisfræði...... Sjáumst í stríðinu folksSvalur

Kv.  Jói nokkur níundi.
28. apríl 2006 klukkan 16:21
Jónína Harpa Njálsdóttir
7 athugasemdir
26apríl

Abbabbabb

Daginn.

Ætla hér að skella inn einni mögnuðustu mynd sem hefur verið tekin í sögu myndavélana.... En þetta eru ég og Benjamín félagiSvalur


Þarf að segja meira eða sjæææææææse.

Hilsen Jónína

26. apríl 2006 klukkan 18:22
Jónína Harpa Njálsdóttir
6 athugasemdir
24apríl

Stórfrétt og skrítinn dagur!

Já ég ætla hér að byrja á því að sýna ykkur FLOTTA bílinn sem að ég gerðist svo djörf að fjárfesta í hér síðasta laugardag!!

Já mér þykir þetta sannkölluð glæsikerra með meiru og það er ekki hægt að halda neinu öðru fram, þó að nokkrir hafi nú reynt.  Ég hef fengið að heyra setningar eins og "vá djöss drusla", "djöfull á þessi ekki efti rað komast neitt", "JÓNÍNA, maður kaupir sér ekki Póló!!!" 
En iiiiiiiiiiissss ég hlusta nú ekki á svona kjaftæði, þetta er sannkölluð eðalkerra, þið eigið eftir að komast að því drengir mínir, bíðið bara;)

En annars er þetta alveg búinn að vera mega dagur... Byrjaði á að ég vaknaði hressari en allt og vakti síðan Slingu og Völlu guð með undurfögrum söng.  Ég er svo geggjaður herbergisfélagi sjaaattSvalur
Síðan byrjaði skólinn á stærðfræði þar sem ég er reyndar að drulla á mig, verður jú einhver að vera í því hlutverki.... Síðan var það gat og ég kom heim og við Valla lögðumst í stóraðgerðir eða fatasaum.  Já eða nei ekki saum.  Meira svona upprakningu (að rekja upp). Og já mamma ég ætla ekki að segja meira þú varst ekkert kát þegar ég gerði svona nokkuð síðast heheHlæjandi

Síðan er ég núna bara á svaka simfóníudjammi hérna, lagaúrvalið í tölvunni minni er gífurlegt og Valla ræður sér ekki fyrir kæti hérna.  Magnað.

En ég þakka fyrir mig og endilega haldið áfram að vera svona dugleg að kvitta þetta er æðislegtSvalur

-Jónína Harpa
24. apríl 2006 klukkan 23:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
15 athugasemdir
24apríl

Ágætis byrjun ha?

Já krakkar mínir það er allt gjörsamlega að verða vitlaust hérna.
Ákvað að skella mér á nýja síðu því að ég er alveg að fá uppí kok á þessu "naglbíturinn". Hvað segiði um þetta??
En já, síðustu dagar hafa verið magnaðir, mor, stedfar og lillebror hafa verið hérna á Andrés og maður er búinn að vera í fjallinu í góðum gír.  Sólbrenna allsvaðalega og svona.... eftir 2 daga breyttist rauði liturinn í smá brúnann en síðan í morgun vaknaði ég og var byrjuð að flaggna.... Jess, hversu frábært getur þetta orðið;)
Ég verð nú að segja að ég held að það hafi verið miklu skemmtilegra á Andrés þegar ég var á rétta aldrinum til að keppa þar heldur en núna.... Höllin er orðin svo LEIÐINLEG maður... Maður situr þarna og klappar í 1 og 1/2 tíma.... Ekki einu sinni myndband.... Iss piss, það verður nú eitthvað að endurskoða þetta sko.  Fór samt í nettann fýling þegar ég heyrðu DUDUDUUUUUUUU -lagið.  Var í fílingi í kannski fyrsti 10 skiptin en þegar þetta fór að nálgast 100 skiptin þá var maður orðinn nett-geðveikur.
Jæja, þetta var ágætis byrjun eins og segir í titlinum, ætla að henda einhverju fleiru hérna inná, endilega tjáið ykkur í skoðanir svo að ég sjái hvort að það kemur einhver hingað inn.

Kær kveðja JónínaHlæjandi
24. apríl 2006 klukkan 03:03
Jónína Harpa Njálsdóttir
15 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur