31maí
Ég er jólasveinninn...!
Veivei... Aðal einkenni síðasta sumars er komið í ljós hjá mér en það er blessuð vöðvabólgan!
Er eins og krypplingur herna og get varla lyft upp höndunum því að þá er eins og einhver sé að reyna að saga af mér axlirnar. Sleppi því kajak í kvelle, en einnig stendur til boða að fara út á Skottu en neeei... Verð heima með poppskál mér við hönd í staðinn;)
Fór á bátanámskeið með Björgunarsveitinni um daginn þar sem að ég og aðrir voru að gera góða hluti og þar vil ég helst nefna Svönu, en sú unga dama var að gera góóóða hluti
Hahahaha... Tók eitt lengsta hláturskast sem ég hef tekið lengi þarna, sem var samt ekki beint heppilegt þar sem að maður þurfti að einbeita sér að því að halda sér fastri... Hahaha djöfull hló ég samt!!!
Annars held ég að sumarið sé bara komið í Neskaupstað City... Er búin að koma heim tvo daga í röð eftir vinnu og sofna værum blundi í sólinni hérna úti á palli, og dreyma þar af leiðandi eitthvað BULL því að sofna í sól er ekki það besta....
Annars verður alveg kyngilmögnuð helgi næstu helgi, heilir 4 dagar... Á stefnuskránni er að skella sér til Sandvíkur.... Síðan á að skíra systu og alle græjer...
Var að komast að því að þetta er búið að vera alveg ógeðslega langt og leiðinlegt blogg þannig að þetta er orðið nóg í bili.....
Veriði sæl.....
06maí
Ojj. bar. a.Var að horfa á Ripley´s bílív it or not (já enskan er ekki mitt sterkasta fag) og þar var verið að tala um skíðasvæði.... Náði ekki hvar þetta var en það var eitthvað vandamál með hvað ætti að gera við skólpið, koma nefninlega svo gríðarlega margir á þetta skíðasvæði á hverju ári að þetta var orðið vandamál.
Það fóru einhverjir gaurar í málið... og hvað og hvað.... Það var ákveðið að ENDURVINNA SKÓLPIÐ OG BÚA TIL SNJÓ ÚR ÞVÍ!!!! Allt drullið bara sett í gegnum einhverjar hreinsivélar og síðan bara skellt í byssurnar!!
Halló þetta er ógeðslega sick, fólk þekkti "endurunna" snjóinn frá hinum vegna þess að hann var aðeins BRÚNN.
Pælið í því... Maður færi í skíðaferðalag í jolly fíling og síðan myndi maður kannski fljúga á hausinn og munnurinn á manni myndi fyllast af snjó... Og þá bara "MM KÚKUR!!" Ég fékk æluna aaalveg uppí kok!
Ég er ennþá bara að ná þessu.
Annars er ég stödd hjá Benjamín félaga núna, eða kallinn er í sturtu og maður heyrir fagrann söng hingað fram í sambland við flaut. Nokkuð gaman að því sko. Aðal lagið þessa mínútuna er sígildi smellurinn "Ein ég sit og sauma"... gott lag, gott lag:)
Annars bara bið ég að heilsa í bili, þurfti bara að deila þessum viðurstyggilega og mjög svo hrottalega horbjóði með ykkur.
Sælar. Kv Jónína Harpa