07júlí
Við erum að tala um það að veðrið á Neskaupstað City er alveg að gera sig þessa dagana... Búin að vera að grillast út á palli í dag og náði mér í svaðalegann rauðann lit sem breytist vonandi í brúnann....
Ég mun halda norður yfir heiðar (ekki Heiðar Austmann samt) á morgun og hlakka ég mikið til..
Síðasti ökutíminn afstaðinn... Spennan magnast...
Berrössuð;)
04júlí
Já félagar, það er klipping á morgun, ekki veitir af, maður er orðinn eins og reitt hæna um höfuðið.
Stóra smurningin er hvernig klippa skal....
Ég hef reynt að spurja fólk en alltaf kemur sami brandarinn: Bara snoða stelpuna!
Spurning hvort að það ætti ekki að breyta eitthvað, hef verið eins síðan um fermingu liggur við!!
Síðan er náttúrulega alltaf einn möguleiki fyrir hendi en það er að taka upp pottaklippinguna góðu að nýju, maður hlítur að vera helvíti krúttlegur (krúttleg) svona núna eins og hérna í denn er það ekki;)

Annars er alltaf jafn gaman í vinnunni... Maður er í hláturskasti allann daginn sem er ekki leiðinlegt... Síðan útborgunardagur í dag sem er heldur ekkert leiðinlegt.... Já lífið er bara helvíti skemmtilegt þessa dagana;)
Ég og Inga skelltum okkur á typpatal á Seyðis um daginn og JESÚS... Hvað þetta var fyndið hehe.
Líða fer að bílprófi og síðan Mallorca 10 dögum eftir það sem er frábært:)
Stefni hinsvegar á norðurlandið næstu helgi að hitta hana Völlu mína... Hlakka til að sjá þig:D:*
Hittumst heil.... Hilsen Joe nine;)
P.s..... Væri gaman að vita hverjir væru að lesA??
30júní
Oleeee ole ole oleeeeeeeee....
Afsakið bloggleysið, allt að verða kreisí í vinnunni og annarsstaðar... Einn daginn vakir maður í 32 tíma og þann næsta 26´tíma.... Eru þetta þá ekki orðnir dagarNIR í fleirtölu?
Eeeeeeeeen síldin og vaktirnar stóðu stutt og nú er maður aftur komin í þetta sama gamla farið.
Vei góð byrjun á bloggi.
Við nokkrar dömur gerðumst menningarlegar í gærkveldi og skelltum okkur til Rey í bíó...
Þetta hljómar svona eins og í gamla daga þegar fólk brá sér í kaupstað að horfa á kvikmynd haha... Snilld.
Fórum á American Dreamz sem var vægast sagt hrottafengilega LEIÐINLEG, samt góð ferð, sérstaklega á leiðinni heim þar sem að það var búið að loka göngunum vegna viðgerða og við þurftum að keyra sjálft skarðið
Haha, eins og ég sagði, alveg eins og í gamla daga;)
Fengum reyndar sjokk þegar við komum á Eskifjörð, en þar fer fram atburður sem vert er að skrá á spjöld sögunnar, VERIÐ AÐ MALBIKA AÐALGÖTUNA.... Til hamingju, kominn tími til... Þetta var klárlega versta gata landsins.
Jææææææææææja... Þetta var blogg dagsins, heyrumst.
Kv Jónína
25júní
Fann ekki afsakið hlé merkið þannig þið getið horft á stillimyndina í staðinn
Með kærri kveðju, Jónína
22júní
Afhvjeru segir maður gefa upp öndina? Afhvjeru ekki "gefa upp andann" Það meikar miklu meiri sens, eða hvað?... Er annars ekki verið að tala um að hætta að anda? Eða hætta, eða deyja eða gefast upp eða... Já ég er hætt.
Gæti ég þá ekki alveg eins sagt gefa upp gæsina?
Setning dagsins er klárlega: Ertu búin að fá þér karlmann? HAHAHA enginn fattar. Þessi setning varð til þess að ég tók 1 og hálfs tíma hláturskast í vinnunni í dag;)
Er farin að borða mat, kv Jónína Michelin maður

21júní
(Titillinn á að hljóma eins og í þarna auglýsingunni)
Sit hér í gríðarlegum fíling, aðal áhugamálið þessa dagana er www.textavarp.is , allavega er það síðan sem ég er inná núna. Stelpan sem átti sér ekki líf.
Eða jú kannski frystihúslíf? Alveg er það magnað þarna innfrá, maður lenndir í pásu með bara "fólki af erlendum uppruna" ...Hvernig á ég að orða þetta allt? Ég ætla ekki að fara að vera með einhverja fordóma hérna.... En allavega já þegar maður lenndir í þannig pásu, kannski með einum íslending líka, þá getur myndast nokkuð mögnuð stemning.
Gott dæmi um það var í dag þegar ég var með Rúnari í pásu og við vorum einu íslendingarnir þarna, allt í einu stóðu 4 pólverjar þarna (menn á aldrinum 20 og eittthvað og upp í 50 og eitthvað), gláptu á mig og Rúnar, bentu og HLÓGU! Já, það er gott að það er einhverntíman hlegið af manni, allavega eru brandararnir ekki að virka, nema þegar maður fær svona samúðarklapp á öxlina (gerist æ oftar)
Maður skildi auðvitað ekki neitt í neinu og myndaðist frekar asnaleg stemning.
Þetta er alls alls ekkert einsdæmi.... Samt betra fyrirkomulag á þessu hjá köllunum, þeir standa og hlæja og benda... En konurnar... HEHEHE... Þær standa svona 7 saman í hóp og HVÍSLA á útlensku (svo að maður heyri nu örugglega ekki hvað þær segja )og benda! BWAHAHAHHAHA
EKKI EINS OG MAÐUR MYNDI SKILJA ÞÓTT AÐ ÞÆR TÖLUÐU VENJULEGA HAHAHAA!!
Já svona er stemningin svakaleg
Hehe vá hvað það er enginn að hlæja að þessu við að lesa þetta, þetta er samt ógeðslega fyndið þegar þetta gerist...
Bið að heilsa og afsakið leiðinlegt og einhæft blogg...Kv Jónína
15júní
Úllalala... Helgarfrí mætt á svæðið
Frystihúsið er ekki alslæmt skal ég ykkur segja.... Hættum fyrr í dag og síðan alveg frí á morgun en samt á launum... Ljúft. Ætlum að taka rölt og hlæja af fólkinu sem er að vinna hjá bænum...Múhaha.
Það er blessuð blíðan, hélt á tímabili að ég ætlaði að bráðna gjörsamlega niður í malbikið, hélt líka að ég ætlaði að frjósa föst á tímabili... Þetta fór eitthvað að rokka á milli seinnipartinn;)
Kenndi min söster að hjóla í dag, gekk helvíti vel, mætti halda að hún hafi fengið allar gáfurnar og hæfileikana frá mér
Annars er bara allt frábært að frétta.... Mynd í lokin af Rósu, mér og Saló... Merkilega misheppnuð en í leiðinni virkilega kúl

Tekið af
www.orninn.com/birkir FULLT af fleiri myndum þar:)
Hilsen Jónína
ARG SALÓ SÉST EKKI Á MYNDINNI OG ÉG GET EKKI LAGAÐ ÞETTA:/:/:(
12júní
Haha í hverju var þetta aftur? Ball ball ball hahaha.... Man örugglega enginn eftir þessu nema ég hehe..Jú Lovísa pottþétt.
Við vinkonurnar skelltum okkur til Esk í gær á ball með Kung Fu... Fórum seint seint inn en þegar við dröttuðumst loksins var þetta alveg feikilegur dansleikur svona fyrir utan nokkra hluti.
Svona svo að ég tali um drengja úrvalið þarna þá var það ekki upp á marga fiska og ef að þið viljið nánari lýsingar, haldið þá áfram að lesa.
Aðal gæjinn á svæðinu var klárlega náunginn sem hoppaði út um allt í rauða íþrótta-samfestingnum, sem var b.t.w í tísku á árunum 1974-75 en hann var u.þ.b 30-40 ára og hélt að hann væri alveg með þetta og væri aðal maðurinn á svæðinu.
Síðan má auðvitað ekki gleyma "how you doing" náungunum sem að mættu keikir frá Kárahnjúkum og buðu á barinn hægri vinstri við lítinn fögnuð viðstaddra.
Sem sagt allt alveg geggjað.
Ég er farin á rúntinn með faðir vor.
Sælar.
11júní
Bara láta vita að ég er ekki dáin.
Sjómannadagshelgin runnin upp og starfsmannahátíð Síldarvinnslunnar haldin í gær.... Allir voða fínir og allt fínt og flott og mikið af fullu gömlu fólki hehe.
Mjög fáar myndir voru teknar en þær sem teknar voru bæði fyrir þetta og á þessu heppnuðust HRYLLILEGA þannig að þeim verður ekki skellt á veraldarvefinn punktur.
Dagurinn í dag var magnaður... Fór út á sjó í gæslu, sækja kappróðrarbátana og svona... Mikið er maður duglegur.
Eitthvað fór nú samt úr böndunum þarna á tímabili þar sem að kom ruuusaleg alda eftir Glæsi þarna og við bara á Skottu og ef ég á að lýsa þessu einhvernveginn þá flaaaaaaaaaaaaaaauuuuuuuuuuuuuuuuuuuugggggggggggggggggggg ég og lennti svona líka helvíti vel (illa) á bakinu og í botninn á bátnum. Veivei geggjað. Bakið í messi. Svana ætti að geta lýst þessu betur hehe..
Síðan var náttúrulega kepp í kappróðri þar sem að við stelpurnar töpuðum fyrir strákunum... Kemur.... Aldrei að vita nema að við fáum pening samt, lemur í kjós á morgun;)
Í kvelle er það síðan ball á Esk, verður tekið gott gellutrip
Meira hvað bloggin verða alltaf ómerkilegri og leiðinlegri með hverjum deginum...
Takk fyrir að lesa takk takk takk
Hilsen Hlunkur Njálssen
06júní
Hæhæ! Jæja þá er þessi 4 daga og ljúfa helgi afstaðin og vinnan byrjuð við mikinn fögnuð allra. Grútsní og Snafskí mættu allavega keikir til vinnu í morgun hahahaha! Okay, enginn hlær, enda er þetta sorglegur frystihússhúmor.
Ætti kannski bara að halda honum fyrir mig eða allavega svona innan hópsins;)
En já, fór til Sandvíkur með unglingadeildinni frá fös-sun, stórfín ferð þarna á ferðinni og eru komnar nokkrar myndir í albúmið Á eftir að bæta nokkrum við.
Þetta var fámennt en góðmennt, bættust reyndar tveir við á laugardagskveldið, Auður frænka og Pálmi... En þau voru sérlegir sendiboðar með nammi.
Ég og Rósa áttum mjög erfitt á tímabili vegna nammiskorts hahaha. Það var alveg geggjað veður og bara já... Magnað allt saman;)
Sérlega skemmtilegt atvik átti sér stað á laugardagskveldið... Ákváðum að fara að spila Rommý... Voða kósý stemning og svona.... En neinei, lá við að þetta leystist upp í skítafílu og allir færu grenjandi heim hahahaha.
Ég viðurkenni að ég var með þeim tapsárari þarna enda er þetta bara asnalegt spil!!!
Getið fengið nánari lýsingar á ferðinni inná www.blog.central.is/gerpirung
Enda þetta á mynd af mér og Rósu

Jæja... Fleira var það ekki að sinni... Takk fyrir lesninguna ef að einhver las og veriði sæl:)
Kv. Jónínaaaa