Aaaa þetta er ágætt:D
Ahhhh djöfull er þetta nice, þvílíka blíðan dag eftir dag þegar maður vaknar og þá verður maður alltaf hressari yfir daginn. Brynju ferðunum hefur líka fjölgað ískyggilega í þessu veðriHitti Ollu, Gumma, ömmu og afa í gær.... Þau eru hérna í einhverri íbúð og ég fór og borðaði með þeim og svona.... Helvíti gaman að hitta þau!
Fórum líka í bónus... Þar gerði ég mig að nettu fífli..... Eins og einhverjir vita þá er það orðinn bara svona vani að Inga sé kölluð Slinga, Petra Petrína, Valgerður Valla guð og svona... En jæja ég var í bónus með ömmu og co og þar var kona að kalla á manninn sinn bara "Jói!!" Og ég bara "JÁ???" OG HÚN LEIT Á MIG EINS OG ÉG VÆRI KRAFT-VANGEFINN FÆÐINGARFÁVITI HAHAHA!! Fokka hell þetta var svo fyndið, og auðvitað var ég bara ein að hlæja þetta sem að gerði þetta enn asnalegra
Síðan voru það Hvanndals í gær. Fór með Esteri og Völlu, held nú að þær hafi ekkert verið að fíla þetta í botn en vóó hvað mig langaði bara að sleppa mér, allir sátu bara þarna eins og aumingjar og hreyfðu sig ekki... Hvað er að ykkur fólk? Þetta er svo mikil snilld
Eftir það var það smá rúntur, hægt að orða það þannig að maður hafi verið ágætlega vindbarinn, enda á BLÆJUBÍL haha... Ekkert horft á mann neinei. En eins og allir vita þá er ég svo mikill nagli að ég lét þetta ekkert á mig fá, enda líka ekkert frost úti.....
En jæja.... Ætlaði bara að henda nokkrumorðum hérna inn, og já það liggur bara ágætlega vel á mér í dag
Síðasti tíminn á önninni kallar... heilbrigðisfræði...... Sjáumst í stríðinu folks
Kv. Jói nokkur níundi.
28. apríl 2006 klukkan 16:21
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

Ég sá þig fyrir mér með flaksandi hár þegar þú fórst á þessum bíl hehe :)
Jiiiiii skólaárið er að verða búið :S:)