Stórfrétt og skrítinn dagur!

Já ég ætla hér að byrja á því að sýna ykkur FLOTTA bílinn sem að ég gerðist svo djörf að fjárfesta í hér síðasta laugardag!!

Já mér þykir þetta sannkölluð glæsikerra með meiru og það er ekki hægt að halda neinu öðru fram, þó að nokkrir hafi nú reynt.  Ég hef fengið að heyra setningar eins og "vá djöss drusla", "djöfull á þessi ekki efti rað komast neitt", "JÓNÍNA, maður kaupir sér ekki Póló!!!" 
En iiiiiiiiiiissss ég hlusta nú ekki á svona kjaftæði, þetta er sannkölluð eðalkerra, þið eigið eftir að komast að því drengir mínir, bíðið bara;)

En annars er þetta alveg búinn að vera mega dagur... Byrjaði á að ég vaknaði hressari en allt og vakti síðan Slingu og Völlu guð með undurfögrum söng.  Ég er svo geggjaður herbergisfélagi sjaaattSvalur
Síðan byrjaði skólinn á stærðfræði þar sem ég er reyndar að drulla á mig, verður jú einhver að vera í því hlutverki.... Síðan var það gat og ég kom heim og við Valla lögðumst í stóraðgerðir eða fatasaum.  Já eða nei ekki saum.  Meira svona upprakningu (að rekja upp). Og já mamma ég ætla ekki að segja meira þú varst ekkert kát þegar ég gerði svona nokkuð síðast heheHlæjandi

Síðan er ég núna bara á svaka simfóníudjammi hérna, lagaúrvalið í tölvunni minni er gífurlegt og Valla ræður sér ekki fyrir kæti hérna.  Magnað.

En ég þakka fyrir mig og endilega haldið áfram að vera svona dugleg að kvitta þetta er æðislegtSvalur

-Jónína Harpa
24. apríl 2006 klukkan 23:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
Óttar skrifar ...
Til hamingju með nýja bílinn! :D þetta er nú alveg rétti tíminn til að vera fá sér bíl, bensínið að hækka uppúr öllu valdi og svona... ;) En ef maður á pening til að kaupa sér bíl þá hlítur maður að eiga pening til að kaupa bensín ;)
24. apríl 2006 klukkan 23:22
Svana skrifar ...
Congrats með bílinn.. ef þetta er ekki bara The Bíll þá veit ég ekki hvað:) mér finnst hann bara svalur;)
24. apríl 2006 klukkan 23:36
Inga Þórey skrifar ...
jáhh, takk fyrir góðan söng elsku ástarbossinn minn;* ég lofa að pissa ekki aftur undir hahahahha.....:D
24. apríl 2006 klukkan 23:44
Eyjólfur skrifar ...
Hahaha... "Síðan var það gat og ég kom" ... hvurs lags lýsingar eru þetta eiginlega hjá þér Jói minn? bwahaha... :)
24. apríl 2006 klukkan 23:47
Jonina skrifar ...
Eyjólfur! Þvílíku sora hugsanirnar usssssssssss!!!
25. apríl 2006 klukkan 00:08
Lovísa skrifar ...
náttla bara úbertöff skilluru;P Þú verður algjörlega með þetta á þessum sko;) svalasti póló-eigandi landsins;)

og gott að þið skemmtið ykkur við sinfóníudjammið og hja doktornum og svoleiðis;)

c ya ;p
25. apríl 2006 klukkan 00:21
Kiddi skrifar ...
jájá ég hef mínar skoðanir á þessum blessaða bíl, en hehe til hamingju með hann bara:P
sjáááumst
25. apríl 2006 klukkan 00:39
Ragna:) skrifar ...
Öss ég vil bara byrja á því að óska þér til hamingju með nýja síðu, að vera komin inn á svona flott eins og ég;) allir að færa sig frá blog.central hehe:P

Og síðan vááá bara æðislegur bíll og til hamingju með það....þú verður að koma með hann hérna austur þar sem við verðum flottastar á Póló og Skoldilac (nýtt nafn þúst svona eins og Cadillac eða Pontiac....minn er náttlega ekkert verri:P)

En annars flott bara og við sjáumst...vonandi í sumar;)
25. apríl 2006 klukkan 00:45
Auður skrifar ...
Tillykke med din flotte bil! Den er ligeså cool som min gamle Fiat he he he
Hilsen
25. apríl 2006 klukkan 01:15
Mamma skrifar ...
Já hann er sko bara flottur þessi bíll :) Ætli flestum þyki hann ekki nógu góður ef þeim vantar far..he he.
En takk fyrir bloggið elskan og gangi þér vel i skólanum. KNUS OG KRAM
Gott hjá þér Auður að nota dönskuna....ætti bara vera lengra svo ungdómurinn fái að æfa siga aðeins;)
25. apríl 2006 klukkan 01:30
Vilborg skrifar ...
Þetta er sko eðalvagn:) Ég lýg ekki þegar ég segi að það sé smá öfund hérna í gangi, eins gott að þú skutlir mér á vagninum í sumar;)

En annars heyrumst við
25. apríl 2006 klukkan 02:31
Arnór skrifar ...
jói, hvvaða helvítis drusla er þetta! neinei þú ýtir honum bara upp gilið og þá er þetta fínt
25. apríl 2006 klukkan 02:50
Valgerður skrifar ...
Jiii...strumpalögin voru að gera sig :D

Þetta er bara rugl í fólki, þetta er fínasti bíll :)

Og þú fórst í eyðu Jói minn. Eyðu, ekki gati. Þá er heldur engin hætta á að það misskiljist fyrir fólki eins og Jolli :P
25. apríl 2006 klukkan 03:41
Saló skrifar ...
Mér finnst bíllinn þinn sko geggjaður;);) og nei það er GAT allavega á Neskaupstað hehe:D
25. apríl 2006 klukkan 21:17
Eyjólfur skrifar ...
Ég er í gati.. hvað meiniði? þið eruð náttúrlega í ruglinu..
Nf. Jolli
þf. Jolla
þgf. Jolla
ef. Jolla
Valla Guð.. koma svo :)
27. apríl 2006 klukkan 01:12

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur