Ágætis byrjun ha?
Já krakkar mínir það er allt gjörsamlega að verða vitlaust hérna.Ákvað að skella mér á nýja síðu því að ég er alveg að fá uppí kok á þessu "naglbíturinn". Hvað segiði um þetta??
En já, síðustu dagar hafa verið magnaðir, mor, stedfar og lillebror hafa verið hérna á Andrés og maður er búinn að vera í fjallinu í góðum gír. Sólbrenna allsvaðalega og svona.... eftir 2 daga breyttist rauði liturinn í smá brúnann en síðan í morgun vaknaði ég og var byrjuð að flaggna.... Jess, hversu frábært getur þetta orðið;)
Ég verð nú að segja að ég held að það hafi verið miklu skemmtilegra á Andrés þegar ég var á rétta aldrinum til að keppa þar heldur en núna.... Höllin er orðin svo LEIÐINLEG maður... Maður situr þarna og klappar í 1 og 1/2 tíma.... Ekki einu sinni myndband.... Iss piss, það verður nú eitthvað að endurskoða þetta sko. Fór samt í nettann fýling þegar ég heyrðu DUDUDUUUUUUUU -lagið. Var í fílingi í kannski fyrsti 10 skiptin en þegar þetta fór að nálgast 100 skiptin þá var maður orðinn nett-geðveikur.
Jæja, þetta var ágætis byrjun eins og segir í titlinum, ætla að henda einhverju fleiru hérna inná, endilega tjáið ykkur í skoðanir svo að ég sjái hvort að það kemur einhver hingað inn.
Kær kveðja Jónína
24. apríl 2006 klukkan 03:03
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

En þetta er fínasta síða, svoltið litlaus... veit ekki hvor síðan mér finnst skemmtilegri. Maður er orðinn svo vanur blog.central síðunum!