Fyrirsögn

Oleeee ole ole oleeeeeeeee....
Afsakið bloggleysið, allt að verða kreisí í vinnunni og annarsstaðar... Einn daginn vakir maður í 32 tíma og þann næsta 26´tíma.... Eru þetta þá ekki orðnir dagarNIR í fleirtölu?
Eeeeeeeeen síldin og vaktirnar stóðu stutt og nú er maður aftur komin í þetta sama gamla farið.

Vei góð byrjun á bloggi.

Við nokkrar dömur gerðumst menningarlegar í gærkveldi og skelltum okkur til Rey í bíó...
Þetta hljómar svona eins og í gamla daga þegar fólk brá sér í kaupstað að horfa á kvikmynd haha... Snilld.
Fórum á American Dreamz sem var vægast sagt hrottafengilega LEIÐINLEG, samt góð ferð, sérstaklega á leiðinni heim þar sem að það var búið að loka göngunum vegna viðgerða og við þurftum að keyra sjálft skarðiðHlæjandi  Haha, eins og ég sagði, alveg eins og í gamla daga;)

Fengum reyndar sjokk þegar við komum á Eskifjörð, en þar fer fram atburður sem vert er að skrá á spjöld sögunnar, VERIÐ AÐ MALBIKA AÐALGÖTUNA.... Til hamingju, kominn tími til... Þetta var klárlega versta gata landsins.

Jææææææææææja... Þetta var blogg dagsins, heyrumst.

Kv Jónína
30. júní 2006 klukkan 00:48
Jónína Harpa Njálsdóttir
Atli Már skrifar ...
Já ég efast ekki um að það hefur verið gaman að skrölta yfir skarðið í gær meðan við vorum að sópa göngin :P Ég hefði pottþétt hleypt ykkur í gegn hehe ;)
30. júní 2006 klukkan 03:21
mamma skrifar ...
Þið eruð svo menningarlegar elskurnar:) er það ekki svo Seyðis í kvöld:) Gleðilegt þetta með aðalgötuna á Eskifirði....jibbý....ég hélt bara að það væri búið að friða hana ;) Góða skemmtun í kvöld og keyrið varlega, KNUS.
30. júní 2006 klukkan 22:57
Bjarney skrifar ...
sæl yngismey! maður hefur vart séð þitt fagra fés á undanförnum dögum, sey sey og svei svei! en já húrra eskfirðingar, núna fær maður ekki lengur sona Ace Ventura jungle fíling þegar maður keirir í gegnum bæinn;)
01. júlí 2006 klukkan 19:04
Ace Ventura jungle fíling HAHAHAHA snilld Bjarney snilld, þetta voru réttu orðin til að lýsa þessu heheh:D Snilldsnilld
02. júlí 2006 klukkan 00:00
inga ţórey skrifar ...
nenni ekki að skrifa neitt.. bless
03. júlí 2006 klukkan 01:37
Kamilla Mjölla skrifar ...
Síldin er góð.. annars væri Siglufjörður ekki til ;)
03. júlí 2006 klukkan 03:11
jonina skrifar ...
Satt er það Kamilla hehe...
03. júlí 2006 klukkan 19:30

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Stađur: Neskaupstađur
  • Atvinna: Nemi og skíđaţjálfari
  • Hjúskaparstađa: Ég á sćtan kćrasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur