...
Við verðum í íbúðinni fram í des! VEI:)Ég fór í göngur í Breiðdalnum um dagin.... djöfull var það gaman! Alltaf jafn skerí samt hvað þessar kindur GLÁPA alltaf í augun á manni!!!!
Doppa er hjá okkur núna og það er svo gaman:) Við gerum svo mikið þegar hún er hehe. Fórum t.d í gær út að labba í mííígandi rigningu uppí skórækt hehe... Hressandi.is. Komum síðan heim og bökuðum dýrindis pizzu:)
Ég get svo svarið það... við fórum ALLTOF svöng í búðina í gær...þetta bara má ekki haha!
Keyptum Bayonesskinku haha! Hátíðarmatur dauðans:) Bara gaman samt, ætlum að elda þetta í kvöld með brúnuðum kartöflum og sósu og eitthva mm... segjum til að bara að þetta sé til að ... fagna fyrstu snjókomunni hér niðrí bæ!? Já það er góð og gild ástæða hehe. Mmmm hlakka til:)
Jæja, er að stelast til að blogga í vinnunni, best að fara að koma einhverju í verk:)
-Jónína Harpa
P.S afhverju blogga ég bara um mat? Alltaf? Lýsir þetta sjálfri mér ekki bara of vel...:S
30. september 2008 klukkan 12:30
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
