Jæja sagði maðurinn þegar hann vaknaði...

...hann sagði ekki meira þann daginn.
Þessa setningu á afi hennar Lovísu.
Jæja.
Það er margt að gerast og mikið um breytingar framundan held ég barasta:(:(:( Gott og slæmt:)
Stefnir allt í það að við förum úr íbúðinni um mánaðarmótin!!!Búhú... Við sem vorum orðin svo sátt og búin að koma okkur LOKSINS almeinilega fyrir. En svona er það að búa með tveimur fátækum námsmönnum.. neh segi svona:)
Þá er það er bara heim til mömmu, ég og Birkir og taka síðan upp þráðinn aftur næsta haust þegar ég þykist ætla að skella mér í háskóla.

En annars gengur allt sinn vanagang.
Bauð pabba og family í mat á mánudaginn... bara snilld, tróðum okkur 8 manns í litla eldhúsið, eldaði rétt sem heitir Stjarna Indlands Veeeeeeeeery gúd;)
Það er nú alveg á hreinu að ég á sætustu systur í heimi... Veit bara ekki um meiri krútt hehe. Ég skelli inn myndum bráðum:)

Jæja bara smá rugl frá mér... Tjáá;)
18. september 2008 klukkan 14:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
Lovísa skrifar ...
Nei anskotinn ég trúi ekki að ég komi bara ekki aftur í heimsókn til ykkar! OSEISEI
en afi kallinn kann flottustu settningarnar,efa samt að þetta sé hans,en floooott.
Jæja ég ætla að fara læra hnoða dúkkur með hinum verðandi flugfreyjunum. gleði
bæbæ
18. september 2008 klukkan 14:13
Gullveig. skrifar ...
þú ert svo myndarlega í eldhúsinu jónína. það er alveg rosalegt :) á meðan ég sit heima og borða pizzu eða brauð með kæfu.. ég sem ætlaði að vera svona myndaleg. tja kanski þegar ég verð búin að kaupa mér hnífapör ( það má fresta öllu get ég sagt þér). allavegana. kveðja úr storborginni kóparvogur.
18. september 2008 klukkan 15:37
Vilborg skrifar ...
Það verður nú bara ágætt að fara aftur heim. Samt leiðinlegt afþví að þetta var orðið ýkt kósý hjá ykkur:) en farðu svo að kíkja í heimsókn, kveðja úr bænum:)
19. september 2008 klukkan 12:20
Jónína Harpa skrifar ...
Newwwwwwwwwwws!
Verðum í íbúðinni fram í des jeeeij:D:D
22. september 2008 klukkan 11:04

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur