Fjallagarpur!!!

Hæhæ og hóhó:)

Ég keypti ræktarkort fyrir 2 vikum og hef bara farið tvisvar... Gengur ekki!
Í fyrra skiptið fór ég og hjólaði og labbaði og blabla, og lyfti síðan hendur.
Dagurinn eftir var hræðilegur þar sem að ég gat ekki einu sinni lyft höndunum og sett í tagl!! Hahaha. Talandi um sjálfsblekkingu og halda bara maður sé massaðri en allt fyrsta daginn!ÖskrandiSaklaus

Í annað skiptið ákvað ég að lyfta fætur og fara mér rólega... En það var sama sagan. Það var frekar erfitt að setjast niður og þess háttar nokkra daga á eftir....

En jæja.
Á þriðjudaginn var sko gaman:)
Þá fóru ég, Birkir Rafn og þrír í viðbót í eitthvað sem upphaflega kallaðist "smá gönguferð"... Þessi litla og stutta gönguferð breyttist síðan bara í heljarinnar fjallgöngu!Hlæjandi Löbbuðum uppá Lolla (fyrir ofan Grænanes) og síðan út með mestöllu fjallinu og niður aftur, á innan við 3 tímum, með pásum.... duglegheit:D
Því miður var ég ekki með myndavélina... Arr!
Þetta var mjög sérstakt og algjör snilld vegna þess að við lögðum ekki af stað fyrr en kl. 19:30 um kvöldið of það var komið niðamyrkur, þoka , rigning og vindur þegar við komum upp hehe! Gott aðv era vel klædd:D

Í gær var frekar strembinn dagur eins og á örugglega eftir að verða dálítið oft í vetur:)
Það var skólinn að sjálfsögðu fyrir hádegi, vinna í Nesskóla síðan frá 12-16 og síðan sundlaugin frá 17-21Hlæjandi Stuðstuð!
Þegar ég kom heim beið mín síðan rosaleg máltíð ala Birkir, Önd, piparsósa og brúnaðar kartöflur nammmminamm, myndarlegur.isGlottandi

Þetta var bara lítið og le´ttleikandi innskot í bloggheimin, hittumst heil og eeeeekki vera feimin við að kvitta, enn og aftur:)

-Djónínas
04. september 2008 klukkan 13:48
Jónína Harpa Njálsdóttir
bryndís skrifar ...
jájájá alltaf gaman að svona duglegheitum :)
04. september 2008 klukkan 18:25
Saló skrifar ...
Vááá hvað það er langt síðan að ég hef kíkt á svona blogg... en þú ert alltaf dugleg sæta og bíddu ertu nú líka byrjuð að vinna í sundlauginni?? Ussss krafturinn í þér þarna;) Heyrumst sæta, sakna þín;*
05. september 2008 klukkan 14:57
Lovísa skrifar ...
djóninas er töff nafn!
09. september 2008 klukkan 11:02
María skrifar ...
ómæómæ DUGNAÐURINN í þer kona!!!
En heyrðu heldur ekki að spá þín sé að rætast núna er ég búin að fá tilboð um vinnu og svo er ég að bíða eftir 2 öðrum svörum, sem mér líst vel og búin að fá skriljón meil um að það sé verið að skoða umsóknina mína...
En ástarkveðjur til klakans og svo verður þú að heimsækja okkur og hjálpa mér að kenna Hinrik dönsku:p
11. september 2008 klukkan 14:15
Pálína skrifar ...
úffff... slafr.... Önd... piparsósa... vóóóóó!!! tekur hann menn í námskeið í þessu??
13. september 2008 klukkan 08:24

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Stađur: Neskaupstađur
  • Atvinna: Nemi og skíđaţjálfari
  • Hjúskaparstađa: Ég á sćtan kćrasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur