Jááá þar sem ég, virðulegur skólaritari nefndi í síðasta bloggi... Þá er ég komin í nýja vinnu, sem sagt skólaritari haha!
Og það er nú ekki frásögufærandi (Bjarney, þú veist hvað ég er að fara), nema hvað, að mín er orðin sundlaugavörður líka!
Og talandi um það, þá er maður námsmaður í ofanálag!!! Jáááá það er ekki talandi um duglegheitin HAAAAAAA.
En svona að öllu gamni slepptu þá gengur bara ansi vel að samtvinna þetta allt saman!
Allir í Nesskóla voðalega nice, sundlaugin bara fín og skólin gengur alveg glimrandi... Bara gaman:)
Nú eru allir fluttir nema ég og Rósa..... búhú! Hvað er fólk að æða til Reykjavíkur? Fussum svei... Þetta þýðir bara klárlega að maður þarf að skella sér í borgarferð áður en langt um líður...!!
Ég, Bjarney(sem flytur btw á morgun:() og Rósa tókum gott kvöld hér á laugardaginn get ég sagt ykkur.
Fyrst var það matur hjá Rósu, dýrlegur pastaréttur, alveg frábært:)
Síðan lögðumst við á meltuna, allar þrjár saman í nýja stóra og flotta rúminu hennar Rósu:):) Við skelltum ævintýri gljúfrabúana í og lágum og hlustuðum alveg eins og í "gamla daga" þegar við vorum alltaf að leika á Hlíðargötunni!!:) Bara snilld.
Eftir það var það ís og aðalbláber sem þarf nú ekkert að lýsa betur.... deeeeelicious!!
Eftir ísinn fengum við þá snilldar hugmynd að bjalla í hana Svönu og tékka hvort að hún væri ekki til í smá tyrklands reunioun! Hún var að sjálfsögðu meira en til og héldum við þá heim til mín og "fengum okkur í pípu" (VATNSPÍPA allir... ekki panika!!)
Er ekki með myndirnar frá kvöldinu, þær lýsa stemningunni auðvitað best hehe!!!
Þetta var að sjálfsögðu bara snilld allt saman og ég vona að við náum að hafa eitthvað stuð í vetur þrátt fyrir að næstum allir séu fluttir.... beilerarnir ykkar
Bið að heilsa öllum, yfir og út, upp og niður...
-Joe-nine
01. september 2008 klukkan 15:26
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

Já, verðum að gera gott úr þessu hausti þrátt fyrir fámenni.