Ný vinna og læti
Já góðan og blessaðan daginn allir saman.Nú er sumarvinnunni minni í Alcoa lokið og mín bara komin í aðra!
Ég er byrjuð sem skólaritari í Nesskóla og líkar bara ágætlega, er að komast inní allt og læra:)
Ég verð að vinna hérna 50% með þesssum tveimur fögum sem ég á eftir í stúdentinn!
Margt er að frétta en ég held nú að það komist ekki allt fyrir í einu bloggi...
Við Birkir skelltum okkur í útilegu á Fiskidaginn Mikla á Dalvík um helgina og var það bara snilld:)
Brunuðum af stað með hústjaldið hennar mömmu sem klikkar auðvitað aldrei:) Geggjað tjald!
Þar hitti ég Völluna mína og fjölskylduna hennar sem er alltaf svo gaman og kósý að koma til:)
Ég vona að ég nái að fara í fleiri útilegur í sumar...
Ég er svona að komast á það að ég fari bara aftur að þjálfa í vetur... Það er svo erfitt að sleppa þessum krökkum haha! Aaaaalgjörir gullmolar:)
Börker splæsti í svakalegan bíl um daginn sem að á að fara að krúsa á á næstunni, en fyrst ætlum við að mála hann og gera hann fínan:)
Þetta var bara smá innskot í bloggheiminn....... heyrumst fljótlega aftur lesendur góðir, munið að kvitta;)
Kveðja Jónína...
12. ágúst 2008 klukkan 11:20
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
