Letihelgi dauđans
Hæhæ og hóhó Gilitrutt heiti ég.Sælt veri fólkið!
Hér hefur farið fram ein sú mesta letihelgi í manna minnum, já ég er ekki búin að gera "en skid" þessa helgi svo að maður SLÁI UM SIG með dönskunni.
Á föstudaginn kom Mette í heimsókn til mín, rosalega er hún dugleg:) Ekki allir sem væru svona sprækir fljótt eftir að hafa brotið hryggjarlið og hnéskel í 8 búta o nei:)
Ég er með fréttir að færa.... Já, haldiði að hún Silja Hrönn vinkona mín hafi ekki rétt í þessu verið að hampa ÍSLANDSMEISTARATITLI í samhliðasvigi á Landsmótinu á Ísafirði. Djöfull er ég ánægð með kellu
Í tilefni af þessu ætla ég að skella inn GAMALLI og góðri mynd frá Björnsmóti hérna fyrir löngu af Ingu Þórey, mér og Silju en þetta voru klárlega bara snilldar tímar!!

Hérna er síðan nýrri mynd af kjééééllunni sem ég er svo stolt af:)

Okei bæææ:)
30. mars 2008 klukkan 14:17
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

