Detti mér allar dauðar lýs úr höfði.

Sæl veriði. Þetta blogg er nú tileinkað Seyðfirðingi nokkrum sem sofnar varla á kvöldin vegna bloggleysis hér á síðunni minni, en blogg mín eru auðvitað þau skemmtilegustu á landinu.

Þar sem að mér er lífsins ómögulegt að muna eitthvað hnittið eða skemmtilegt frá síðustu dögum ætla ég að koma hérna með ansi skondinn lista sem ég fékk sendan á hinu nútímalega MYSPACE en það er ein af viðbjóðs - síðunum sem láta mann hanga endalaust í tölvunni þegar maður á að vera að læra.

Hér hafiði listann:

Til að gera konu hamingjusama, þarf bara að vera:
1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur..og gleymir aldrei að:
44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hana ekki
49. horfa ekki á aðrar konur og um leið þá verðurðu líka að:
50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

Það er mjög áríðandi:
að gleyma aldrei:
1. afmælis dögum
2. brúðkaupsdögum
3. plönum sem hún hefur ákveðið


Til að gera karlmann hamingjusaman:
1. Gefa honum að borða
2. Sjá til að hann fái það reglulega
3. og þegja svo....


Þar hafiði það! Þetta er svooo satt eitthvað. Skondið nokk.

Já svo að ég bæti aðeins við þetta óviðjafnanlega flotta blogg þá er bara lítið að frétta af mér. Skólinn gengur vel, skíðaæfingar líka en hvað varðar ræktina er ég gjörsamlega að drulla á mig og þarf að gera bót þar á já seisei.

En svona til að gleðja seyðfirðinginn sem fyrr er getið í blogginu, þó ætla ég ekki að nefna nafn, en þá skellti mín sér með ormunum mínum á skíðamót í Stafdal um daginn. Er þetta skíðasvæði hið fínasta þrátt fyrir að vera reyndar bara ein brekka... sseeeeem er reyndar alveg ágætlega fjölbreytt brekka þannig lokaniðurstaða mun vera sú að gaman er að koma í Stafdal og þar er gott að skíða. Þetta var ein fáránlegasta setning sem ég hef skrifað. En nóg um það.

Þá er þessu bloggi lokið og ég bið ykkur vel að lifa veriði sæl.

P.s Ég verðskulda komment seyðfirðingur!!
08. mars 2008 klukkan 20:23
Jónína Harpa Njálsdóttir
Einar Bragi Bragason skrifar ...
Þetta er flott ég er mjög ánægður með þetta fyrir utan þetta einnar brekku dæmi þitt he he,,,,,,en það var bara líka fínt á Austfirska hólnum Oddsskarði í dag.......
08. mars 2008 klukkan 20:48
Lovísa skrifar ...
svei mér þá ef ég gæti ekki bætt við þennan lista ;)
en jájá alltaf gaman á skíðunum og svona:D haha
72 í marmaris eða?!;)
08. mars 2008 klukkan 22:49
Einar Bragason skrifar ...
Er verið að fara til Marmaris..........Það er hættulegur staður og mikið um pöddur.
Sérstaklega læðast þær um nætur og sjúga úr manni blóð.
Þetta er einnig einn að aðal útbreiðslustöðum fuglaflensu.
18. mars 2008 klukkan 22:13
Lovísa skrifar ...
einar minn.ég sensa öfund..villtu koma með?
21. mars 2008 klukkan 17:33

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur