Jónína blogglausa

Jæjaerekkikominntímiáblogg!!!!

Dagarnir líða eins og venjulega, skóli, skíðaæfingur, rugl, sofa. Og jú smá heimalærdómur á milli.
Skólinn gengur vel fyrir utan stæ sem er að gera útaf við mig, vil ekki falla í þessum áfanga afturFýldur

Skíðaæfingarnar ganga líka vel fyrir utan veðrið stundum, þurftum t.d að hætta fyrr í dag vegna þess að krakkarnir voru byrjaðir að fjúka upp brekkuna í staðinn fyrir niður! Bara krúttleg. Svo ótrúlega dugleg!Hlæjandi

Ég var að gera lista áðan yfir iðkendur í skíðafélagi Fjarðabyggðar... Og hvað haldiði, SEXTÍU KRAKKAR!!!! Ooog það gæti verið að ég sé að gleyma einhverjum, held samt ekki. Pælið í því! Þar af 35 í 8 ára og yngri! Engin smá aukning og ég er rosalega ánægð með þetta. Auðvitað misvirk en 60 á blaði samt! Bara snilld.Svalur

Ég er búin að sjá sýninguna Bláa hnettinn sem Djúpið er að sýna, vel leikið, fyndið og margt sniðugt í kringum þetta en samt auðvitað uppúr barnabók... en samt fínt! Hehe.

Hefur svosum ekki margt drifið á daga mína síðan síðast þó heil eilífð sé síðan! Jú, öll dekkin mín vírslitnuðu í sömu vikunni!!! ÖskrandiGLEÐI! Og þetta voru ekkert slitin dekk, bara þroskaheft! Pirrpirr. Þessu hefur verið kippt í liðinn með nýjum dekkjum sem betur fer.

Ég, Birkir, Íris og Guðni höfum verið að hafa hittinga uppá síðkastið, þá aðallega spilahittinga! Ég hef alltaf haldið að hættuspilið væri ömurlegt spil en annað hefur nú bara komið í ljós!! Snilldar spil sem gengur út á að vera sem leiðinlegastur við meðspilara sína! HEHE og ekki finnst mér það nú leiðinlegt!!Skömmustulegur

Einnig fórum við útá sjó í gær í þessu BLÍÐSKAPAR veðri, neinei, við vorum komin rétt fyrir utan fjörðinn þegar þetta ógeðslega veður skall á og sjónum jós yfir mann! Jájá. Ég skelli nokkur myndum af þessu í enda bloggsins.

Þegar ég loksins ákveð að blogga verður hausinn tómur og ég veit ekki hvað ég á að skrifa en þó kemur eitt upp í huga mér... og ekki er það af skemmtilegra máli heldur en kvótaskerðingunni! Hahah!
Ég hélt að ég yrði nú ekki eldri þegar eitthvað æðra fólk ákvað að búa nú til tvö ný störf á austurlandi vegna þess að svo margir missa vinnuna vegna þessa! Mjög svo sniðug hugmynd.... EN það vildi ekki betur til að það var á EGILSSTÖÐUM! What the.......! Eini staðurinn á Austurlandi liggur við sem liggur ekki við sjó. Jeremías og jólaskór.
Jæja ég er nú ekki vön að tjá mig um svona „fullorðins“ mál þar sem ég hef ekki vit á þessu þannig að ég ætla að láta þetta gott heita.

Hér eru nokkrar myndir úr bátsferðinni, en eins og oft áður þá varð myndavélin batteríslaus!!

Birkir síhressi HEHE


Þessi mynd er algjört feik því það veiddst ekkert í ferðinni!!!



Den smukke by!!


Og den smukke Íris .... veit ekki hvaða fötluðu línur þetta eru...!

En þar hafiði það! Og kvittið svo annars kliiiiikkast ég.

Hilsen,
Jónína Harpa
23. febrúar 2008 klukkan 18:16
Jónína Harpa Njálsdóttir
Íris Dögg skrifar ...
Huggleg mynd með eindæmum af mér þarna..:P
En já aldeilis skemmtilegt blogg hjá þér kvinna:)
23. febrúar 2008 klukkan 19:13
Þetta er oft skrautlegt með þessi nyju störf sem eiga að bjarga heiminum.
En shit hvað eru margir krakkar hjá ykkur, ánægð með þetta (y)
23. febrúar 2008 klukkan 19:24
Pálína skrifar ...
Sæl Jónína.... ég er enn laumublogglesari hér ;)
jeremías og jólaskór á þesi störf á Egilsstöðum!
24. febrúar 2008 klukkan 14:49
Gullveig skrifar ...
Kvittery kvitt hér sko :) agalega voruði dugleg að skella ykkur svona út á sjó ég vildi að ég gæti gert svoleiðiss.. enn neei hér er allt í landi :)maður verður bara að fara að setja á flot held ég.
24. febrúar 2008 klukkan 22:11
Eyjólfur skrifar ...
dúndurblogg frá uppáhaldsdananum mínum!

venlig hilsen Eyjólfur :)
25. febrúar 2008 klukkan 14:32
Bjarney Stella Kjartansdóttirúff vírslitna....? og kvótaskerđing... sú er adult;)
Bjarney(mamma er alltaf skráđ inn..)
25. febrúar 2008 klukkan 22:25
Saló skrifar ...
Haha amaizing blogg hjá þér;) Já hættuspilið meikar það sko. En við erum náttla bestar í Party og co eins og við sýndum hérna um jólin haha:D Það er alltaf ljúft að vinna Lovísu,af því að hún er sko tapsárust:D En ohhhhh sakna svona parahittinga eins og þið eruð að hafa með Guðna og Írisi núna:S Ekki það að okkar hafi verið neitt heilsusamlegir eins og ykkur núna, þetta voru aðallega bara ferðir á kaffhúsið og rúntar með bingó kúllur haha:D En ég er að koma eftir 2 vikur..... sjáumst þá love love;*
28. febrúar 2008 klukkan 16:39
Bergey skrifar ...
Bara að kvitta, svo þú klikkist ekki.. ég nenni því sko ekki :)
29. febrúar 2008 klukkan 11:32
Silja Hrönn skrifar ...
Kvitt kvitt..
Veit ekki hvað ég á að segja..!
Svo..

Bæ.
06. mars 2008 klukkan 20:22

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Stađur: Neskaupstađur
  • Atvinna: Nemi og skíđaţjálfari
  • Hjúskaparstađa: Ég á sćtan kćrasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur