Ball ball ball

Haha í hverju var þetta aftur?  Ball ball ball hahaha.... Man örugglega enginn eftir þessu nema ég hehe..Jú Lovísa pottþétt.Glottandi

Við vinkonurnar skelltum okkur til Esk í gær á ball með Kung Fu... Fórum seint seint inn en þegar við dröttuðumst loksins var þetta alveg feikilegur dansleikur svona fyrir utan nokkra hluti.

Svona svo að ég tali um drengja úrvalið þarna þá var það ekki upp á marga fiska og ef að þið viljið nánari lýsingar, haldið þá áfram að lesa.

Aðal gæjinn á svæðinu var klárlega náunginn sem hoppaði út um allt í rauða íþrótta-samfestingnum, sem var b.t.w í tísku á árunum 1974-75 en hann var u.þ.b 30-40 ára og hélt að hann væri alveg með þetta og væri aðal maðurinn á svæðinu. 
Síðan má auðvitað ekki gleyma "how you doing" náungunum sem að mættu keikir frá Kárahnjúkum og buðu á barinn hægri vinstri við lítinn fögnuð viðstaddra.

Sem sagt allt alveg geggjað.


Ég er farin á rúntinn með faðir vor.


Sælar.

12. júní 2006 klukkan 00:47
Jónína Harpa Njálsdóttir
Lovísa skrifar ...
júhh hvað helduru;) ég man eftir þessari fleygu setningu;)
12. júní 2006 klukkan 01:03
Valgerður skrifar ...
Ég líka :D Reyndar bara úr smsinu í gær... þetta var pottþétt í einhverju öðru en því...

Össss...þetta er ekki nógu gott. Þú verður bara að koma til Dalvíkur. Nóg var nú um drengina í gær. En það er það nú ekki alltaf.... það var bara mikið að fólki frá öðrum stöðum en Dalvík.
Sem var nú ekkert slæmt :P
Enginn sem skar sig útúr með afbrigðilegheitum. hahahaha. Já ég mæli með Dalvík. Í besög til mín :D
12. júní 2006 klukkan 01:58
jónína harpa skrifar ...
Valla mín planið var nú þannig að þú kæmir fyrst þannig lets gó bara;)
12. júní 2006 klukkan 02:00
Daníel Geir skrifar ...
Hehe :) gott blogg Kárahnjúkar.is/jónínaaðhuztla ...... nei ekki alveg :)
12. júní 2006 klukkan 02:25
Valgerður skrifar ...
Je beibí jeee (H)

I´m comming. Eftir Króatíu samt. Brún og sælleg :) Er að fara á fimmtudaginn:D
12. júní 2006 klukkan 02:25
Kamilla Mjöll skrifar ...
Afhverju er mánudagurinn eftir sjómannadag ekki FRÍDAGUR :@
12. júní 2006 klukkan 02:56
"Halldóra" skrifar ...
þetta var bara hið fínasta ball...!:D:D hehe en já vildi bara skrifa firir mig ..

-er farinn í vinnu..!:*
12. júní 2006 klukkan 11:45
Svana skrifar ...
Haha.. var að lesa bloggið fyrir neðan líka og ætla bara að kvtta hér fyrir bæði bloggin!
Gaman að þessari flugferð þinni, hef aldrei séð annað eins! Ætla samt að taka það fram að ég var ekki við stjórnborðið!
13. júní 2006 klukkan 00:49
Steini skrifar ...
aðal kallarnir eru þeir sem segja "how you doing" HAHHA
þeir eru töff!
en takk fyrir mig
13. júní 2006 klukkan 01:33
Guðrún S skrifar ...
hæ kjútí, bara að láta vita af mér :) skemmtilegt blogg, sjáumst!!
14. júní 2006 klukkan 00:27
Valgerður skrifar ...
Mmmmm...Króatía... mmmmm

Vá þetta hljómar samt ekki alveg nógu vel. Króatía. Þetta er eins og eitthvað krónískt (ævarandi). Eða eins og stríðsland. Eða þar sem allir eru króaðir af.

Jæja, ég er farin til landsins þar sem ég fæ krónískan sjúkdóm, lendi í krónískum hermönnum í styrjöld og króast af útí horni.

Haha, ég held ég sé í svefnruglugalsa.

Jæja, ég heyri í þér eldsnemma í fyrramálið og svo þegar ég kem heim. 27.júní. :)

Heilsist þér:)
15. júní 2006 klukkan 05:40
Jónínaharpa skrifar ...
Hahaha.... djöfull var þetta gáfumannalegt komment Valla mín;) Haha... snilld að heyrast svona snemma á morgnanna...
15. júní 2006 klukkan 15:22

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur