Framtíð

Jæjajæja!
Vill svo skemmtilega til að í gær missti ég röddina, var með mikla ógleði, beinverki, algjörlega lystarlaus ofl ofl og hálf veik í dag líka. Þetta hlítur að ganga yfir!
Ég er byrjuð að þjálfa á fullu og er það bara gaman, vona að ég komist í fjallið á morgun...!

Silja Hrönn sem btw í Austurríki að tjilla, skíða og skemmta sér núna sendi mér MMS áðan eða; myndskilaboð. Þaaar sá ég flott útsýni á snargeðveiku skíðasvæði að mér skilst og ekkert smá gott veður. Stuttu seinna fékk ég annað sms þar sem maður sé útsýnið af svölunum þar sem hún ofl voru í sólbaði baraí gúddí eftir skíðin! Sko SVONA frí langar mér í! Ekki spurning.
Ég hef oft verið að velta því fyrir mér hvað væri gaman að gera eitthvað svona sniðugt eftir stúdentinn, taka eitt eða hálft ár í einhverja vitleysi, vinna og skemmta sér til skiptis. Náungi sem ég þekki er t.d núna í Sölden í Austurríki í 4 mánuði, bara vinna í kaffiteríu eða eitthvað og skíða og skemmta sér á milli. Örugglega mjög gaman.
Síðan var ég að tala við hana Írisi gellu á MSN áðan og hún sendi mér link sem væri náttúrulega alveg tilllllllllllllllvalinn en hérna getið þið séð þetta:
http://www.ninukot.is/index.php?id=413
Ertu búin að skoða linkinn? Ef nei þá kíktu.
Well þetta er svipað dæmi og ég var að tala um áðan en þarna borgar maður ákveðna upphæð, fer á tungumálanámskeið, er síðan að vinna í ca 8klst á dag við skíðakennslu og fær tvo frídaga í viku, er í hálfu fæði og fær vasapeninga og eitthvað...... Allavega hljómar spennandi!
Samt fer maður nú að hugsa, væri ekki sniðugara að fara eitthvað þar sem að maður lærir ensku en ekki þýsku þar sem að enska er miklu meira notuð í framhaldsnámi...?
Veit einhver um eitthvað svipað, eða bara ekkert svipað þar sem að maður gæti lært ensku í leiðinni?
Þessi síða í heild sinni er náttúrulega algjör snilld, væri ekki dáldið flipp að fara að vinna hjá sauðfjárbónda í ástralíu í nokkra mánuði?? hahaha!

Óboj mig langar að gera svo margt....

En já... takk fyrir lesturinn, kvitt kvitt

Kveðja,
Jónína Harpa

P.s óska eftir félaga til að gera allt þetta stuff með mér
18. janúar 2008 klukkan 16:01
Jónína Harpa Njálsdóttir
Gullveig skrifar ...
haha já ég var einmitt að skoða þetta og fór að fletta rásunum. og leyst svona svakalega vel á Svissneska dæmið. ehemm ég væri nú alveg game í skíðakennslunna líka ef ég hefði nú haldið áfram í þeirri íþrótt. but desverre.
18. janúar 2008 klukkan 22:03
PetraLind skrifar ...
Vá fyndið, ég er einmitt búin að vera hugsa svo mikið undanfarið um að gera eitthvað svona næsta haust og vetur, svona þegar maður tekur sér 1 árs frí í skólanum...
Aldrei að vita nema maður láti þann draum rætast. Þetta hljómar aðeins of spennandi :)
19. janúar 2008 klukkan 22:31
Silja Hrönn skrifar ...
Já alveg er maður nú til í að fara svona þegar maður er búinn með stúdentinn. Það er náttúrulega bara ólýsanlegt að vera á svona skíðasvæði, gæti búið í fjallinu ;)

Díll að við förum til Ítalíu eða Austurríkis eftir stúdent??
21. janúar 2008 klukkan 09:03
Íris Dögg skrifar ...
Sko ég er game að sjálfsögðu!!! en ég meina ef að við förum til austurríkis og lærum þýsku þá bara förum við í háskóla í einhverju þýskumælandi landi!! Það er nottla bara kúúúúl ..;)
22. janúar 2008 klukkan 20:19
Svana skrifar ...
Gerð'eitthvað svona.. ekki hugsa þig tvisvar um. Þú ert alveg örugglega ekki að missa af neinu allavega :)
30. janúar 2008 klukkan 00:37

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur