-2007-
Dama nokkur sem er ein af þeim fáu sem stunda þessa síðu var alveg æst í að ég gerði annál fyrir árið 2007.... Málið er að ég kann bara ekki að gera annál en ætla þó að REYNA...! Ég gjörsamlega man ekki NEITT. Og já... ætla að taka þetta mánuð eftir mánuð í staðinn fyrir að hafa þetta í samfeldum texta.. Njótið þið sem nennið að lesa;)Janúar: Mánuðurinn byrjaði á hreint yndislegum nýjarsróðri á kajak.

Þá í þessum mánuði gerði ég mér lítið fyrir og byrjaði að þjálfa skíði! Þessu fylgdi mikið stress í fyrstu en áður en ég vissi af var þetta komið inní rútínuna og allir sáttir.. vona égJ Við vinkonurnar gerðum okkur lítið fyrir eitt blíðviðriskveldið og fórum út að renna... stigasleða-race!!
Febrúar: Þarna stóð þorrablót VA klárlega uppúr.
Skemmtilegt blót í góðum vinahóp.. úú rím. Var ekki bolludagurinn líka í þessum mánuði....... HEHE! Lýsandi hugsunarháttur fyrir mig.Mars: Mikill skíðamánuður... Mikill snjór og mikið gaman! Fór loksins á snjósleða og mikið fjör! Rústabjörgunaræfing var haldin hér þar sem að Prins Polo vakti mikla athygli fyrir glæsileika... Hvað annað:D Páskafríið byrjaði.. Ungfrú Austurland haldið í lok mánaðar þar sem sætu sætu Vilborg og Bjarney stóðu sig eins og hetjur... Ekkert smá fallegar:)
Apríl: Ég ætlaði að taka plat-daginn með trompi en náði ekki að plata neinn né neinn mig! Hvað er það? Risasvigsmótið var haldið í Oddskarði og ríkti þar mikil gleði er ég steig á verðlaunapallinn ole ole. ...Djöfull borðaði ég mikið af paskaeggjum í þessum mánuði ojj. Farið var á söngvakeppni framhaldsskólana sem var mjög skemmtileg ferð, þjappaði okkur stelpunum vel saman eftir ekkert of marga hittinga uppá síðkastið. Andrésarandarleikarnir voru helgina á eftir og þar er alltaf sprell!!
Maí: Prófin... óboy, ekkert skemmtilegt um þau að segja nema að eftir þau var sumarfríið skammt undan! Ég plippaði og ákvað að fara í sumarskóla... dugleg stelpa! Tók þjálfaranámskeið á Ak sem var mjög svo fræðandi!
Júní:
Sjómannadagshelgin... örugglega fín, man ekki?? Ég byrjaði í sumarvinnunni minni á hótel Eddu víí. 21.júní var mjög örlagaríkur dagur en þá seldi ég PRINS POLO, BEST CAR IN WORLD... Reyndar keypti ég mér annan samdægurs og náði í hann sama dag.. helv góður líkaJJúlí: Besti mánuðurinn því ég á afmæli;) Bauð stelpunum heim og við grilluðum, borðuðum kökur og spjölluðum! Bara gaman. Við vinkonurnar skelltum okkur í útilegu í Atlavík sem var hun fínasta!
Ágúst: Þar ber helst að nefna Neistaflug sem mér fannst snilld! Böllin allavega! Manni fannst sumarið vera að klárast bara.. slútt í vinnunni og svona.
September: Stelpan byrjaði í bootcamp! Ekki er öll vitleysan eins;) Harðsperrur gerði vart við sig en einnig fuku nokkur kg... gaman!:D
Október: Kannski ekki mesti gleðimánuður lífs míns,
átti þó góðan og eftirminnilegan dag með pabba og Hrafnhildi þegar við fórum í Mjóafjörð siglandiJ Við Andri hættum saman í byrjun mánaðarinsL Svona er lífið, maður verður að horfa á það jákvæða og halda áfram. Menningarferðin var fín og mikið brallað. Mig minnir að það hafi verið í október frekar en nóvember sem Páll Óskar var í Egilsbúð bæði fös og laugardagskvöld og að sjálfsögðu fór ég á bæði böllin, ekki að ræða annaðJNóvember: Fyrsta óveðrið og snjórinn... gaman gaman! Skíðasvæðið opnaði og ekkert nema gleði og kátína.. oftast allavegaJ
Desember: Þessi mánuður fór nú aðallega bara í bið eftir jólunum!:D
Prófin voru jú þarna og einhver gleði í kringum það........ Man ekki meira.. hvernig get ég munað minnst eftir mánuðinum sem var síðast??---------------------------------------------------------------------

Rosalega finnst mer þetta hafa verið eitthvað STUTT ár þegar ég lít svona yfir þetta... En allavega gleðilegt nýtt ár og hafið það gott á nýja árinuJ
Hilsen, Jónína Harpa Njálsdóttirrrrrrrrr
08. janúar 2008 klukkan 22:54
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

