Gleðileg jól allir
Hóhóhó hvað segja bændur! Oh shit ég er orðinn svo ömurlegur bloggari... spurning um að bæta sig í þessu eða hætta... ved ikke man.
Jólin að koma á morgun... einhvernvegin er ég ekki að meðtaka það því að jólaskapið hefur ekki náð hámarki enn! Kannski bara ekki komið yfir höfuðl... Er þó allt að koma því að það er allt orðið svo rosalega fínt hérna heima og allir að brasa eitthvað, pakka inn síðustu pökkunum og eitthvað:)
Í gærkvöldi fór ég á jólagleði í Egilsbúð sem var hið fínasta þó að fólk hafi mestmegnis setið og spjallað! Einmitt á þeirri samkomu fékk ég að heyra hvað bloggið mitt væri ömurleg frá einum aðila hér í bæ uss.... Skelli kannski inn myndum frá þessum fagnaði við tækifæri!
Jólafríið er búið að fara í allt og ekkert.... Hálsbólga dauðans hefur MIKIÐ látið á sér kræla... hef bara ekki fengið annað eins og vissi ekki að maður gæti grenjað svona mikið í öllum bara út af HÁLSBÓLGU... Eins og einhver aumingjaskapur sé í gangi en þetta er nu bara rosalegt hehe.
Ball annan í jólum... Allir þangað! Rosalega hlakka ég til hehe! Laaangt síðan ég hef farið á svona almeinilegt ball sem ég reikna með að þetta verði!
Ég ætlaði nu aldeilis að taka gelluheitin á þetta í gær... Skellti mér í ljós og svona... STeinsofnaði og það í gamla bekknum svo ég BRANN í framan feitast og er hérna eins og umferðarljós.
Vonum að það lagist hið snarasta;) Eftir þetta fór ég (eða mamma) að lita á mér augabrúnirnar... En það vildi nu þannig til að þar sem að húðin var svo sár og aum eftir ljósin tók hún 100x hraðar við litnum en venjulega og útkoman var ískyggilega dökkar augabrúnir hehe... Gaman að þessu;)
Jæja best að fara að koma sér í háttinn... Heyrði að jólasveinninn ætlaði að gefa mér í skóinn í nótt og ég verð nú að vera sofnuð áður en hann kemur!!!
Gleðileg jól allir!!!![]()

Ahahahahha
Kveðja,
JólaJónína
Jónína Harpa Njálsdóttir

