Nördablogg
Hæhæ! Jæja þá er þessi 4 daga og ljúfa helgi afstaðin og vinnan byrjuð við mikinn fögnuð allra. Grútsní og Snafskí mættu allavega keikir til vinnu í morgun hahahaha! Okay, enginn hlær, enda er þetta sorglegur frystihússhúmor.Ætti kannski bara að halda honum fyrir mig eða allavega svona innan hópsins;)
En já, fór til Sandvíkur með unglingadeildinni frá fös-sun, stórfín ferð þarna á ferðinni og eru komnar nokkrar myndir í albúmið Á eftir að bæta nokkrum við.
Þetta var fámennt en góðmennt, bættust reyndar tveir við á laugardagskveldið, Auður frænka og Pálmi... En þau voru sérlegir sendiboðar með nammi.
Ég og Rósa áttum mjög erfitt á tímabili vegna nammiskorts hahaha. Það var alveg geggjað veður og bara já... Magnað allt saman;)
Sérlega skemmtilegt atvik átti sér stað á laugardagskveldið... Ákváðum að fara að spila Rommý... Voða kósý stemning og svona.... En neinei, lá við að þetta leystist upp í skítafílu og allir færu grenjandi heim hahahaha.
Ég viðurkenni að ég var með þeim tapsárari þarna enda er þetta bara asnalegt spil!!!
Getið fengið nánari lýsingar á ferðinni inná www.blog.central.is/gerpirung
Enda þetta á mynd af mér og Rósu

Jæja... Fleira var það ekki að sinni... Takk fyrir lesninguna ef að einhver las og veriði sæl:)
Kv. Jónínaaaa
06. júní 2006 klukkan 21:35
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
