Þetta er mannskemmandi

Jæja.
Hér í húsi er allt á rúi og stúi því það er verið að taka baðið í gegn, djöfull verður þetta flott þegar þetta klárast!! Vegna þessa þarf maður að troða sér inná annað fólk í bænum og fá að fara í sturtu hjá því hehe. Ég er búin að banka uppá hjá Svanhvíti Ara nágranna og ömmu og svona og fengið að fara í sturtu!
Hjá ömmu fékk ég líka lánaðar bækur! Jájá maður verður nú að hafa eitthvað að lesa í prófavikunni, ætti nú að vera að lesa skólabækur en neinei ég glugga í þær síðar.
Einu sinni sat ég ALLAN daginn og las eins og versta nörd og ætla ég að reyna að taka þessa iðju mína upp aftur, allavega eitthvað svona! Maður er nú í tölvunni allan daginn að tala við sama fólkið á msn um ekki neitt eða metast um við aðra hvor sé búinn að læra minna fyrir próf þann daginn o.s.fv.
Ég er líka farin að standa sjálfa mig að því að vera MJÖG sorgleg, sem sagt búin að skoða allar mögulegar bloggsíður sem hugsast getur og er einnig byrjuð að skoða blogg oft á dag hjá ca 90 ára gömlum kalli!!! ahahah! Til þeirra sem hafa áhuga:
www.mannvitsbrekka.blog.is ! Klárlega bitrasti maður Íslands!!
Ég held að hámarki sorglegheitana sé náð á þessum tímapunkti!!Hlæjandi
Byrjaði nú reyndar þegar ég sá þessa síðu inná blogginu hans Gillz, en þessi gamli maður var eitthvað að tjá sig um þann mann, einkar skemmtilegt.

Skíðaæfingarnar eru byrjaðar og er það bara stórskemmtilegt! Ég kemst í jólafrí á föstudaginn... Hver getur leikið í jólafríinu??

Sjáááumst;)

10. desember 2007 klukkan 14:10
Jónína Harpa Njálsdóttir
Bjarney skrifar ...
Ég skal leika eitthvað í jólafríinu, mitt byrjar 20. des!! Þessi maður er klárlega mannvistbrekka og alls ekkert bitur... Ég vona bara að þetta sé djók:S bæbæ beibí beibí gööörl
10. desember 2007 klukkan 15:41
Jóka skrifar ...
Ég, alla virka daga eftir kl 1 skal ég leika :D
10. desember 2007 klukkan 21:47
Lea skrifar ...
hahaha ég las fyrst að þú hafir fengið bRækur lánaðar hjá ömmu þinni! :')

ananrs tjekka ég á blogginu! sé mig jafnvel knúna til að kvitta aftur hjá þér, kemur allt í ljós mín kæra ;)


sælar!
11. desember 2007 klukkan 20:31
Inga Þórey skrifar ...
huuu ég get ekki leikið,.. ég get ekki stokkið yfir og horft á skíðamót.. ógreidd kl 7 á morgnana eins og undanfarin ár.. get ekki komið og borðað smákökur eða spilað á þverflautu með þér þessi jólin:(
Ég á svoooo eftir að sakna þess:*
13. desember 2007 klukkan 00:02
Petra skrifar ...
Ég get svo mikið leikið :)
13. desember 2007 klukkan 01:23
Saló skrifar ...
Hæ sæta hahaha:P Þetta er enginn biturleiki:P En ég er að koma eftir 4 daga og ég ætla að leika við þig:P:P
15. desember 2007 klukkan 12:40

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur