Tilefni til að blogga

Já eitt af aðaltilefnum til að blogga er auðvitað þegar maður á að vera að læra eins og núna, daginn fyrir lokapróf í sögu....!
Það er bara ekki fyndið hvað ég á erfitt með að BYRJA að læra... Er síðan dugleg þegar ég bara loksins byrja. Hræðilegar afsakanir alltaf hreint.
Strax eftir skóla eða kl. 15:15 VARÐ ég nú bara að fara að kaupa mér peysu í staðinn fyrir að læra jájájá bráðnauðsynlegt. Síðan þegar ég kom heim langaði mig auðvitað svo hriiiiiikalega að fara í  nýju peysuna og þá var auðvitað nauðsynlegt og hreinlega "tilvalið" að fara í sturtu áður en ég færi í nýju hreinu peysuna..... 
Hófst ég síðan handa við að gera hina ýmsu tilgangslausu hluti eins og að naglalakka mig, búa um rúmið, taka pínu til ofl. ofl....
Jæja eftir þetta allt saman lallaði ég inn í herbergi... eitthvað vantar nú. Já. Ég get nú ekki farið að læra án þess að hafa nammi til að borða með þannig ég skrepp út í búð og kaupi nammi.... nammið er LÖNGU búið en ég er ekki enn farin að læra neineinei hvað er AÐ.

Ég þarf á námsskeiði í sjálfsstjórn að halda!
21. nóvember 2007 klukkan 16:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jóka skrifar ...
Hefur einhver sagt þér Jónína að þú ert ÆÐI :)
21. nóvember 2007 klukkan 17:32
Íris Dögg skrifar ...
Já veitstu ég held að það veitti ekki af svona sjálfstjórnarnámsskeiði!:)
22. nóvember 2007 klukkan 14:17
Lovísa skrifar ...
ú hvernig peysu?:P
22. nóvember 2007 klukkan 22:09
Jónína Harpa skrifar ...
hehe 66°norður...
23. nóvember 2007 klukkan 00:26
Petra Lind skrifar ...
Vá mér fannst alveg eins og ég hefði verið að lesa blogg frá sjálfri mér...við erum greinilega alveg eins! :) Getum farið saman á svona námskeið!
24. nóvember 2007 klukkan 21:17
Bjarney skrifar ...
ahahahahha:') þetta er NÁKVÆMLEGA svona þegar ég ætla að fara að læra undir próf!!! Maður byrjar að gera hluti sem ekki hvarflar að manni að gera svona undir vernjulegum kringumstæðum!!;) en til hamingju með nýju peysuna!!
25. nóvember 2007 klukkan 12:33
Saló skrifar ...
Guð hvað ég er sammála... einmitt lokapróf í NÁT á morgun, sem að ég er ekki byrjuð á að læra undir!!! Hehe:P En afsakaðu hvað ég hef verið löt við að kvitta:S Verð að bæta mig;* Love you sætust.... sjáumst bráðum:P
25. nóvember 2007 klukkan 17:11
Kamilla Mjöll skrifar ...
Ef þu finnur svona sjálfstjórnunar námskeið, ætlarðu þá ða skrá mig með ;) hehehe.
ég var að hugsa hvort það er ekki hægt að fara í nálastungu við átfíkn hehehehe ?
25. nóvember 2007 klukkan 20:30
Jónína Harpa skrifar ...
aaaaaaaahahaha kamilla ég þyrfti líka á þeim nálastungum að halda ahahaha djöfull er maður mikill vibbi haha!
25. nóvember 2007 klukkan 23:14

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur