Pirringur


Smá upptalning hérna...  Bara fyrir mig þá finnst mér ógeðslega pirrandi ...

-að þurrka mér eftir sturtu
-Allskonar bíb hljóð sem koma þegar hurðir opnast og lokast í búðum
-Fólk sem talar ENDALAUST
-Fólk sem lýgur endalaust
-Alltof sjálfselskt fólk
-Slyddu
-Hengja upp sunddótið
-setja utan um sængurver
-Bíla sem rúnta 700 ferðir fram hjá húsinu mínu á kvöldin með ofur háa búmmbúmm tónlist
-Ofl.,ofl,. ofl........

Ég á það líka til að láta bara einhverjar ákveðnar manneskjur pirra mig alveg OFUR mikið og tuða um það allan daginn út og inn...

..En þá er komið að pointinu..
Ég var úti í búð um daginn og það var eitthvað endalaust pirrandi hljóð sem heyrðist alltaf í einhverju þarna og ég sagði við manneskjuna sem ég var með:
"Djöfull er þetta pirrandi hljóð!!!!!"
... Þá sagði maður sem stóð fyrir aftan mig og ég þekki ekki neitt

-það er ekki hljóðið sem er pirrandi heldur ert það þú sem lætur hljóðið pirra þig..!

Og sveimér þá... lesið þessa setningu aftur, það er svo mikið til í henni að maður fer næstum því að hlæja hvað maður er sjálfur oft að gera sér lífið leitt með því að láta eitthvað pirra sig..!

Fínído, mjög gáfulegt blogg takktakk

-Jónína Harpa
23. september 2007 klukkan 21:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jóka skrifar ...
Já, það er sko mikið til í þessu :)
Takk fyrir góða helgi sæta mín :*
23. september 2007 klukkan 21:44
Lovísa skrifar ...
Ef það er eithvað sem mér virkilega finnst leiðilegt þá er það að hengja upp sunddóttið:D haha
Vá hvað ég hefði orðið pirruð á því að heyra manninn segja þetta samt,þetta er svo rétt;)
23. september 2007 klukkan 21:44
Jónína Harpa Njálsdóttirhahaha ég pirraðist ekkert smá líka þegar hann sagði þetta hehe
23. september 2007 klukkan 21:45
Agnes Heiða ÞorsteinsdóttirLeiðinlegast í heimi er að hengja upp sunddótið sitt! Ég ætti að vita það sundferðirnar mínar í gegnum ævina eru orðnar nokkuð margar. En já ég segi eins og Lovísa, djööö hvað ég hefði orðið pirruð ef kallinn hefði sagt þetta við mig!

En flott blogg :)
23. september 2007 klukkan 22:09
Inga Þórey skrifar ...
HAHAHA snilld... þetta er dagsatt hjá kauða
24. september 2007 klukkan 00:41
Lea skrifar ...
hahaha uss hvað ég er sammála þessum pirr-lista :P sunddótaupphengingarnar og setja utan um sængurver er alveg eins og talað útfrá mínu hjarta! og reindar hitt líka!

var líka búin að skrifa helling um hvað þetta með kallinn hefði pirrað mig en þar sem ég var farin að hljóma eins og geðsjúklingur þá ákvað ég að stroka það út!

p.s. Prins Póló er í góðum höndum, manstu myndin þar sem hann var með brotið ljós, búið að laga það ;) hann er í topp formi ;p
24. september 2007 klukkan 05:04
Jónína Harpa skrifar ...
Mikið er gaman að heyra það Lea:D
24. september 2007 klukkan 09:47
Kamilla Mjöll skrifar ...
Djö er ég sammála þér með Þurrka sér eftir sturtu, hengja upp sunddótið og setja utan um :|
En þetta er alveg rétt hjá dude-inum, hvað hann samt að skipta sér af þessu ;) hehehe
hafðu það gott :*
24. september 2007 klukkan 12:33
Valgerður Inga skrifar ...
Hahaha vá hvað ég hefði ekki viljað heyra þetta sagt við mig! En vá hvað er mikið til í því! hehe ;)
24. september 2007 klukkan 16:57
Það er svo skemmtilegt að vera til þegar maður lætur ekki heimskulega hluti eða heimskulegt fólk fara í taugarnar á sér :)
26. september 2007 klukkan 11:29

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur