Krakkar mínir komiði sæl....

Ég er jólasveinninn...!
Veivei... Aðal einkenni síðasta sumars er komið í ljós hjá mér en það er blessuð vöðvabólgan!
Er eins og krypplingur herna og get varla lyft upp höndunum því að þá er eins og einhver sé að reyna að saga af mér axlirnar.  Sleppi því kajak í kvelle, en einnig stendur til boða að fara út á Skottu en neeei... Verð heima með poppskál mér við hönd í staðinn;)

Fór á bátanámskeið með Björgunarsveitinni um daginn þar sem að ég og aðrir voru að gera góða hluti og þar vil ég helst nefna Svönu, en sú unga dama var að gera góóóða hlutiHlæjandi  Hahahaha... Tók eitt lengsta hláturskast sem ég hef tekið lengi þarna, sem var samt ekki beint heppilegt þar sem að maður þurfti að einbeita sér að því að halda sér fastri...  Hahaha djöfull hló ég samt!!!

Annars held ég að sumarið sé bara komið í Neskaupstað City... Er búin að koma heim tvo daga í röð eftir vinnu og sofna værum blundi í sólinni hérna úti á palli, og dreyma þar af leiðandi eitthvað BULL því að sofna í sól er ekki það besta....

Annars verður alveg kyngilmögnuð helgi næstu helgi, heilir 4 dagar... Á stefnuskránni er að skella sér til Sandvíkur.... Síðan á að skíra systu og alle græjer...

Var að komast að því að þetta er búið að vera alveg ógeðslega langt og leiðinlegt blogg þannig að þetta er orðið nóg í bili.....

Veriði sæl.....

31. maí 2006 klukkan 00:39
Jónína Harpa Njálsdóttir
Guðný skrifar ...
ég las .. fínt blogg ;) hehe ..
31. maí 2006 klukkan 00:55
Steini skrifar ...
ég las líka´og þetta er fín tjáning
en er sanvík ekki aðal staðurinn um þessar mundir...heheh
en kvittkvitt:P
31. maí 2006 klukkan 01:11
jónína harpa skrifar ...
Jújú það mun vera aðal partý pleisið Steini hahahahahaa einmitt einmitt
31. maí 2006 klukkan 02:44
Svana skrifar ...
HAHAHAHAHA.. ég var að MEIKA'ÐA
02. júní 2006 klukkan 04:26

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur