bloggeddíblogg

Sælt veri fólkið.
Ég dáist af sjálfri mér fyrir elju mína við að blogga!. Talandi um að standa sig vel! Ég mun bæta mig ég mun bæta mig.... Sjáum hvernig það gengur!
 
En það er nú ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, eins gott, því það væri nú sorglegt ef u.þb hálfur mánuður væri alveg tíðindalaus. Ó nei Ó nei.
Eins og ég minntist á í síðasta bloggi er mín byrjuð í bootcamp og verð ég að segja að þetta er mesta snilld sem ég hef prófað. Brosið er bara fast framan í manni eftir hvern tíma. Ég ætla ekki að taka aumingjan á þetta eins og ég gerði hérna um árið... En það var þegar ég skellti mér í body pump tíma og ætlaði svo sannarlega að vera svöl og massa þetta...
Eitthvað fór þetta nú örðuvísi, ég fékk gríðarlegar harðsperrur sem lýstu sér þannig að ég gat t.d ekki sest í bíl, á klósettið eða hvar sem maður gat hugsað sér að setjast í svona eina og hálfa viku... þurfti að HLAMMA mér allt til að öskra ekki og reyna á lærin við þessa gríðarlegu hreyfing. Ég mætti semsagt í tvo tíma og ákvað síðan að þetta væri asnalegt og hætti. Horfði síðan á hina sem voru í þessu fá árangur.
Góð saga Jónína.

En já.. Ég get ekki sagt sömu gleðisöguna um skólann en það tímabil sem maður tekur alltaf rétt eftir að skólinn byrjar "égætlaaðveraógeðslegaduglegískólanumþessaönnoglæraalltafheimaþágenguralltafalltmiklubetur" - tímabilinu, ER LOKIÐ.
T.d í gær,

ákvað ég að gefa lærdóminn upp á bátinn eftir að ég uppgötvaði að ég var búin að lesa ca. 5 kafla í njálu (sem eru alls í mesta lagi 10bls) á u.þ.b. einum og hálfum tíma en hafði hins vegar náð góðum árangri í að skanna bloggsíður hjá hinum og þessum aðilum sem ég þekki ekki rassgat.

Ég var meira að segja svo langt leidd að ég var byrjuð að lesa gömlu bloggin og myndirnar á 8-SKY síðunni sem var svo fræg hér um árið.. Minnir mann á skemmtileg dramamál sem komu upp í kjölfarið ..... sem kveikti hjá mér löngun til að blogga.

Furðulegt alveg hreint hvað manni dettur ýmislegt áhugavert í hug til að skoða eða gera, einmitt þegar maður ætti að vera að læra.

Manni leiðist kannski aðra daga og getur ómögulega látið sér detta í hug eitthvað til að gera. En núna, þegar maður á að vera að læra á fullu hinsvegar, sér maður skyndilega að það er aldeilis frábært úrval af alls kyns afþreyingu á boðstólnum!

Skyndilega grípur um mann gríðarleg löngun til að taka til, eða skoða alla tenglana á B2, lesa moggan.. name it.

Ég læt nú samt ekkert verða af öllu sem mér dettur í hug, eins og ástandið á herberginu mínu gefur til kynna. Ástæðan fyrir því að ég framkvæmi þetta ekki er yfirleitt sú að ég á að vera að einbeita mér að því að læra. Þess vegna getur maður stolist á netið af og til eða spjallað á msn án þess að vera beinlínis að hætta að læra. Lýtur mjög vel út þegar maður er búin að vera inn í herbergi í 4klst, kemur síðan fram AHHHHHHH og teygir úr sér eins og maður sé búinn að vera að læra eins og mofo í 4 tíma none stop.

Að ég skuli vera að tjá mig um þetta hér... Skömm að þessu... En kannast ekki einhver við þetta??

Síðasta hálfa mánuðinn er ég í stuttu máli búin að: vera í boot camp, fá harðsperrur, vera í skólanum, fara á fótboltaleik, festast á skarðinu (já í september), vera á skíðaþreki með litlu ofl ofl....

Í endan ætla ég að deila með ykkur tveim skemmtilegum myndum síðan á laugardagskvöld:


FLOTT UNDIRHAKA JÓNÍNASvalur


Svertingi und hvítingi!



Ég bloggaði- þið kvittið þannig gengur þetta fyrir sig er maður að heyra;)

Með lærdóms-baráttukveðju... JÓNÍNA HARPA.

17. september 2007 klukkan 10:31
Jónína Harpa Njálsdóttir
Svana skrifar ...
Þú hefur komið upp um mig ! ég er dyggur aðdáandi já :) og get ekki annað en kvittað núna..

hehe, en annars flott blogg hjá þér og mikið er ég nú sammála þér.
17. september 2007 klukkan 15:56
unnur inga skrifar ...
já núna er sko skólinn byrjaður, sem þýðir að maður er miklu meira í tölvunni enn í sumar, ákvað því að kvitta fyrir innlitið og lesturinn:o) ég er einmitt í boot camp líká 6:10 á morgnanna og er ég núna fyrst að losna við harðsperrurnar síðan í fyrsta tímanum :'o) Hvað gerir maður ekki fyrir gott útlit og flottann líkama hehe ;o) ennn heyri í þér vinan, vinnan kallar á mann :o)
17. september 2007 klukkan 16:44
Lovísa skrifar ...
hehe ég fann aldrei fyrir "égætlaaðveraógeðslegaduglegískólanumþessaönnoglæraalltafheimaþágenguralltafallt" tímabilinu í haust hvort sem er:(
og 8 ský var töff eða eithvað..hehe
17. september 2007 klukkan 22:24
Jóka skrifar ...
Guð minn góður! Ég segi ekki annað!!
17. september 2007 klukkan 22:34
Gullveig skrifar ...
alltaf jafn skondið að lesa bloggið hja þér :D ja ég er komin yfir þetta leiðindar tímabil ég er búin að fatta það að ég get bara ekki lært heima það er bara ekki fræðilegur möguleiki. frekar er það e-ð sukk á netinu.
18. september 2007 klukkan 12:24
Inga Þórey skrifar ...
ég er einmitt að byrja á þessu "ætlaaðlæraallaönninasvoalltganginúvelalokaprofinu" skeiði... ég er samt að hugsa um að reyna að halda því út alla önnina...hehe kannast samt við allt sem þú ert að segja sko;)
Batnandi mönnum er best að lifa jónina mín;)
En HEY ÉG VERÐ AÐ SEGJA ÞÉR EITT talaðu við mig þegar þú sérð þetta!!!! ÞETTA ERU ROSALEGAR FRÉTTIR!!!!
19. september 2007 klukkan 00:11
arnamekkin skrifar ...
Hæ ég kom og kíkti, og kíki reyndar alltaf á þig! :)
en það er glæsilegt að stóra syss er að láta ykkur púla, það er EKKERT betra en að fara í bað eftir tíma þar sem maður hélt að maður myndi bókstaflega láta lífið!! en skilaðu kveðju heim í fjörð, ég fékk heimþrá þegar ég sá þessa snilldarmynd á forsíðunni! :)

<farðu í skóla þar sem er enginn heimalærdómur! that's me!>
19. september 2007 klukkan 09:43

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur