Ný færsla

Jæja, nú fer skólinn að byrja sem þýðir að maður fer örugglega að blogga meira, hehe! Ég er alveg að vera vangefin á þessari síðu eins og ég gef örugglega sagt áður, en ég er alltaf að reyna að setja inn myndir en aldrei tekst það! Ég náði í stundatöfluna í dag en hún er eins og ostur, öll í götum OG árekstrum, þetta er náttúrulega alveg vangefið. Ætla að reyna að breyta þessu á morgun. Núna er vinnunni á hótel Eddu lokið og var haldið lokahóf á sunnudagskvöld eftir öll þrifin!Alveg æðislegt, byrjuðum á að fara í heitan pott.......

Ég eins og gremlings á þessari mynd ahahaha 


...síðan í hálfgert dekur á hótelinu, fótabað með einhverju voða dæmi, handamaski og andlitsmaski! Fengum líka dýýýýrindis mat t.d humar, svínalundir og kókosrækjur! Gæti það verið betra?


Vantaði Siggu í mannsmynd þarna en hún fékk að vera með á ljósmynd!


Fyndnar við hahaha! Hún fékk að koma með í pottinn og sat með okkur við matarborðið hehe! Tek það fram að hún er ekki dáin heldur var farin suður í skólann!!
 

Andri var að fá sér nýja kærustu en það er voðalega flott Acer talva! Stríð á milli mín og tölvunnar hehe! Neinei segi svona. Bara smá grín hjá mér Andri minn.
 
Jæja, mín er búin að læra póker. Ég er búin að horfa á strákana í þessu endalaust oft og aldrei skilið neitt, alltaf talað um að olsen olsen sé meira ég, en síðan tókst mér að læra þetta! Finnst þetta reyndar MJÖG asnalegur leikur og er Monicu brandarinn OFURFYNDNI(nei) um mig oft tekin upp þegar gripið er í spilin! 

Haldiði að mín sé ekki að fara til Reykjavíkur á morgun með familíunni! Bara svona skottúr, brúðkaup og svona! Ég hlakka til að fara í brúðkaup, hef ekki farið í þannig síðan ég var lítil og man næstum ekkert eftir því.
 

Jæja, ég ætla að taka rölt með ipodin, var að setja svo skemmtileg lög hehe! Heyrummmst
J

P.S ÉG náði að setja inn myndir!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Tékkið!
22. ágúst 2007 klukkan 21:45
Jónína Harpa Njálsdóttir
Lovísa skrifar ...
haha þú hefur hingað til ekki sýnt mikla gleði í garð Monicu nafnsins sbr þegar að krikketið var og já teiknispilið...á ég að segja meira?:)
ps. líka í olsen í frystó;D
24. ágúst 2007 klukkan 14:16
Valgerður Inga skrifar ...
ertu að tala um.... Monicu í friends? Djö er ég ánægð með þig :D Synd að við skyldum ekki hafa horft á þetta meira þegar þú varst hehe, þú varst ekki búin að uppgötva þetta nógu vel þá ;)

En ooo það er svo æðislegt í brúðkaupum! Ég fékk tár í augun síðast og átti erfitt með að halda þeim þar hehe ;)

Skemmtu þér vel í borginni Jói minn ;) love love ;**
24. ágúst 2007 klukkan 23:50
Gullveig skrifar ...
gasalega smart myndir hjá ´þér verð ég að segja. ég vildi bara óska ap æeg væri ekki svona agalega mygluð á þeim :S :D en takk fyrir undursamlegt sumar ;)
26. ágúst 2007 klukkan 22:11
Daníel Geir MoritzSpurning um að heimsækja frænda sinn í borginni hmm ;) Ávalt velkomin
27. ágúst 2007 klukkan 22:49
Jónína Harpa skrifar ...
Ekki fannst tími til eins eða neins í borg óttans þannig að heimsóknin varð að bíða:)
27. ágúst 2007 klukkan 23:31
Lea skrifar ...
hahahahha mér finst ógeðslega fyndin myndin af ykkur með lappirnar í bala og líka ar sem þið eruð með poka á höndunum!

en sjís þú ert orðin svo mikil mjóna stelpa! Hvað er málið með það? ætli maður skundi ekki í ræktina (yeah right) æj ég er allavega farin að fá mer vatnsglas og svo ætla ég að gera magaævingar í bumbubananum! YEAH!!!
28. ágúst 2007 klukkan 20:29
Kiddi skrifar ...
hæhæ... vildi bara rétt svo kvitta fyrir mig;)

heyrumst
29. ágúst 2007 klukkan 18:24

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur