Alabaddarí fransí

Jæja hvað segja bændur??
Nú sit ég hér heima hjá FAnnari, Andri og FAnnar að horfa á mynd, Salóme að taka sér blund og ég í tölvunni... Félagslynda fólk!!!
En að öðru..

Þau hlaut að koma að því! ég náði að klúðra einhverju í vinnunni! í gær tókst mér að hella hálfri flösku af Fanta í hárið á einhverri útlenskri stelpu, sem betur fer var þetta fjölskylda sem gat hlegið að þessu, aðrir hefðu labbað út grenjandi eða eitthvað! Samt sem áður mjög vandræðalegt!!

Í fyrradag hélt ég á á L.ung.A ásamt fleira fólki! Það var mjög gaman svona fyrir utan tónlistina sem var alveg svakaleg, allt svona búmmbúmm tónlist sem er ekkki hægt að dansa við nema að maður sé á eiturlyfjum!

Móment kvöldsins var samt klárlega eftir ballið þegar heim var komið! Málið var þannig að ég kom heim klukkutíma á undan Andra, hann var í rútunni... Á ballinu hafði ég verið með fasta fléttu og síðan tekið hana úr mér á leiðinni heim, var því eins og versta útigangsbarn með hárið ALLT útí loftið bara eins og afró.. Well, ég kom heim til Andra og hvað og hvað.... HÚSIÐ VAR LÆST...!!!
Ég þurfti þá að taka til minna ráða og finna stiga og klifra INN UM GLUGGAN! Well ég fann stiga og byrjaði að klöngrast inn um hjónaherbergisgluggan, eins og indversk gleðikona að reyna að brjótast inn með hárið út í loftið, í sokkabuxunum og háhæluðu skónum niiiiiiiiiiiice! Hrundi inn á endanum!

Nú er mér spurn kæra fólk...Á ég að hætta að blogga hér og byrja að blogga á myspace eða bara halda áfram hér??? Hvad segiði??

ÉG við kommennnnnnnnnnnnnnnnnnnt;)

Sí ja
23. júlí 2007 klukkan 22:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
Lovísa;* skrifar ...
bahaha ég hló klárlega allt bloggið ,spá í svekkelsinu að ætla út að borða og svo hefði þjóninn sullað heilli fantaflösku í hárið á mér..held að ma og pa hefðu pissað á sig ur hlátri en ég farið að grenja.. en ég vil blogg hér:)
og ú eitt enn...tenerife eftir nokkra tíma, me like;)
sjáumst súkkulaðibrúnar og góða skemmtun um versló snúður;*
23. júlí 2007 klukkan 23:33
mamma skrifar ...
Bíddu varstu að troða þér inn um hjónaherbergis gluggann hjá Magga og Jonnu....hihi, hvernig brugðust þau við hehe.
Tek undir þetta með Lovísu, þú átt að halda áfram hér....hlýða mömmu elskan;o)
Knus og kram.
24. júlí 2007 klukkan 00:44
Jónína Harpa skrifar ...
Okei mamma, ég hlýði, En þau voru nú ekki heima ananrs hefði ég valið annan glugga ahahahahahahahahaahahah
24. júlí 2007 klukkan 08:29
Gunna Smára. skrifar ...
Hæ sæta! Halda áfram hér ég les mjög reglulega bloggið þitt og líkar vel það væri leitt ef þú hættir. Það hefði verið gaman að sjá til þín í glugganum ;) kv. Gunna
24. júlí 2007 klukkan 11:23
JókaSmára skrifar ...
Alveg er ég sammála öllum hinum, blogga hér :) Alltaf gaman að lesa þetta!
Sjáumst á eftir ;)
24. júlí 2007 klukkan 13:16
Gullveig skrifar ...
HAHA.. þetta hefði ég viljað sjá :D það hefur örugglega verið mjöög gaman í vinnunni þetta kvöld vildi óska að ég hefði verið þar :D og getað grenjað úr hlátri í uppvaskinu :D og eins þetta með Gleðikonuna og Gluggan, það hefur verið alveg einstakt. en allavegana halltu bara áfram hér.´myspace er stundum dálítið fatlað.
24. júlí 2007 klukkan 18:37
Ragna Fanney skrifar ...
Já iss piss...myspace er bara frat! En persónulega er þetta vegna þess að ég er ekki með svoleiðis, ekki acount, og þá skilst mér að ég geti ekki skoðað neitt...sem skýrir nú reyndar margt!:O
24. júlí 2007 klukkan 22:17

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Stađur: Neskaupstađur
  • Atvinna: Nemi og skíđaţjálfari
  • Hjúskaparstađa: Ég á sćtan kćrasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur