Fandalaggahojj (ekki misskilja Valgerður)
Halló halló og afsakið bloggleysið síðustu daga, hef einfaldlega ekki nennt úr af þreytu.... Já eða þetta er hugsanlega bara aumingjaskapur;)Haldiði að familian hafi ekki verið að panta ferð til Mallorca í júlí..! Þar mun maður grillast í hálfan mánuð og koma síðan (vonandi) vel brún til baka, ekki amalegt það óneiónei;)
Gaman að geta þess að þá næ ég líka fiskideginum..! Haha.... hljómar velJ Eins og Valla nokkur Guð sagði..: FISKIDAGURINN HELL YEAHH hahahahaha!
Eins og einhverjir vita (eða ekki vita) var familian að fá sér kajak... Skelltum oss út á sjó núna á þriðjudaginn sem var auðvitað bara magnað... Magnað að fjölskyldan geri eitthvað saman..!
Maður rifjaði upp gamla takta síðan í denninu, og já ég viðurkenni að maður var ekki alveg að gera sig á tímabili þarna en maður var fljótur að finna taktinn.
Og já, kannski best að hætta að tala um sig í karlkyni... Asnalegur ávani!
Annars ætlaði ég að blogga þetta blogg aftur á bak, hef ekki tíma í það núna en þið megið búast við afturábak bloggi á næstunni....
Svona í lokin, mynd af mér og bróa síðan á þriðjudagskveldið..

Med venlig hilsen Jónína Harpa Njálsdóttir
25. maí 2006 klukkan 23:59
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
