gobbedí
Erum við tumi ekki bara sætust?
Tja allavega hann!;)
Mig langar í útilegu. Við stelpurnar erum svona að plana það að fara þarnæstu helgi! Langar eiginlega bara strax núna um helgina:O En það er vinna vinna vinna.... Hverjum langar að vinna fyrir mig?
Eftir 2vikna frí í ræktinni (eða frí og frí, meira svona letikast að nenna ekki að mæta) fór ég aftur hér í fyrradag. Ég mætti gallvösk og tók bara mínar þyngdir sem ég var með síðast....
--> Afleiðingin var sú að ég er rétt byrjuð núna að gera sest niður, harðsperrur í rassi létu á sér bera! Dálítið svakalegt að mínu mati eftir 2vikna pásu sko.....
Ég fór á Jet black Joe síðustu helgi það var bara ekkert spes myndi ég segja? Sumir ekki sammála mér en það lá bara eitthvað illa á mér þetta kveldið;)
Síminn minn er fatlaður þessa dagana, er með sjálfstæðan vilja, skellir á fólk í tíma og ótíma og kemur með skrítið urg svona annað slagið m.a á nóttunni. Skemmtilegt nokk ég meina þetta er tilbreyting hehe.
Ég er búin að vera svona 20 mín að skrifa þetta stutta blogg sökum ritstíflu svo við látum þetta gott heita!
boj
27. júní 2007 klukkan 15:21
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

ég myndi grenja!;(