Í ruglinu
Vá er maður algjör aumingi ég er alltaf að vinna bara hálfan daginn en kem samt engu í verk, ekki einu sinni að blogga!!
Ég kom reyndar alveg slatta í verk í hittifyrradag en þá fór ég í vinnuna frá hálf sjö til u.þ.b 2 og fór síðan til Akureyrar, keypti mér bíl, fór í Brynju og keyrði síðan aftur heim og var komin um 00!
Talandi um að vera feitabolla og geta ekki sleppt Brynju í 20 min Akureyrarferð en ég meina þetta er bara partur af prógramminu þú skilur;)
Prins Polo er sem sagt seldur og það komu næstum tár þegar ég sá stelpurnar keyra í burtu á honum en það lagaðist nú allt eftir að ég var búin að kaupa þann nýja sem er btw Toyota Corolla árgerð 2003:)
Ég átti frídag í dag og í tilefni að því vaknaði ég með ælupest og ógeð! Alltaf jafn gaman að vera veik, elskaða.
Eins og þeir sem þekkja mig vita að ég hlæ mest af sjálfri mér og finnst ég oft vera mjög fyndin þegar aðrir eru með hneykslissvip og spurja hvort að ég sé vangefin. Ég var að lesa blogg sem að ég gerði í júní í fyrra sumar og ætla að birta það hér:
.ilib í ttog re atteþ ða ginnaþ kab á rutfa afirks ða ívþ á ðiel agelsðegó niðro re gÉ
.ikke sllA .uním ilat AGUFÖ usseþ ðem ðgienhnykmas és gé ða adlah óþ ikkE .rugufö fláh és ruðam ða amen ðagnaþ ikke agelurúttán ref ruðam ne ,raðrajfraðyeR lit gé róf naðíS ;)
ðijyerG !!!ðitildna í ksif kkéf nnah ða ívþ ðem iðadne atteÞ . alÓ iranúR munoh fa itlenie í ðgöl gé rav raþ go amítukkulk 8 í munitsyrfsual á rav gé ða mes raþ anunniv í róf ,rugad "ruðajggeg" arev ða niúb re atteÞ
.kab á tutfa ruðrev gglob atteþ ða ginnaþ nugrom í unimúr rú nigem ugufö ðiraf ifah gé ða gé dleh ruðim ívÞ
.nnigad nnaðóG
Haha mér finnst þetta bara fyndast í heimi að ég hafi nennt þessu. Ég man svo þegar ég gerði þetta, ég sat AKKURAT hér þar sem ég er núna í stofunni heima og var að reyna að tala við alla afturábak á MSN en engum fannst þetta sniðugt og ég bara ein í hláturskasti.
Fékk síðan smá móral eftir á þegar hláturskastið hætti yfir því hvað ég var örugglega pirrandi.
En nóg í dag, vildi bara hleypa lífi í þessa síðu hittumst heil en ekki hálf!
Jónína Harpa Njálsdóttir

Til hamingju með nýja bílinn :) það er ekki séns að sleppa Brynju þegar maður fer til Ak, alveg sama hvað maður stoppar lengi, skil þig vel ;)
sjáumst!