Góðann og blessaðann!
Mikið rosalega er gaman að sjá fólk kvitta sem maður hefur ekki talað vil lengi!Héðan er hið fínasta að frétta, búin að vera mikil vinna en maður hefur ekkert nema gott af því!
Búin að vera tvö kvöld í salnum á Eddunni og fer aftur í kvöld... Mér finnst bara búið að ganga nokkuð vel, er allavega ekki búin að missa súkkulaðitertu í andlitið á einhverjum eða súpu í klofið á einhverjum hehe!
Ég hef á tilfinningunni að ég sé að kúka uppá bak í enskunni allavega í sumarskólanum, ekkert smá hvað maður hefur verið ofverndaður því að ég fer bara í ruglið ef að það er ekki kennari til að tyggja hvert einasta orð inní hausinn á mér!
Bara stutt hjá mér í dag... lærdómurinn/dauðadómurinn kallar..... Heyrumst:)
Kv. Jónína Harpa
14. júní 2007 klukkan 13:07
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
