Tjútjú
Aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Ég er svo að verða kraftvangefin!! ÉG er búin aðs tija hérna í klukkutíma eða meira og reyna að henda inn myndum síðan í dag, þetta er alltaf voða lengi að lóda og gera og græja en hvað en hvað.... ENGAR MYNDIR. Svona tölvudrals gæti gert mig óða. Náði að setja nokkrar inn undir nafninu "Fyrstu sumarmyndirnar 07".
En jæja nú byrjar bloggið.
Hæhæ!
Já nú er öldin önnur en í síðasta bloggi! Ég held að sumarið sé að koma!
Dagurinn í dag var allavega helvv "sumarlegur" að mínu mati!;)
Fyrst var það vinna, eftir það var það sólbað á pallinum, labbitúr út í Urðir með Andra (já þið lásuð rétt, Andri Þór Magnússon fór í labbitúr!!), síðan tróð ég mér með strákunum í golf, síðan var það grill og eftir það tónleikar á Reyðarfirði! Vá löng setning!
Sem sagt fínasti dagur!! Svona eiga sumrin að vera!
Dagurinn er reyndar ekki að enda eins vel, ég skellti mér í sjoppuna, það er jú afsláttur, keypti nammi fyrir allt of mikið og hámaði það ein í mig á allt of stuttum tíma! Þannig nú er ég með mesta nammiógeð í heimi!
Labbitúrinn í urðirnar í dag var góður, smá myndabrot:) :
Voða krúttó!
Rosa gaman hjá Andra HEHEHE

Að sjálfsögðu var Jeremías Tumi með!
Andri er þarna uppi hahaha... klifri klifr!
En well.....
Sigurbergur og Jóhann fóru í kajakróður í Reyðarfirði í dag og er gist í nótt og haldið áfram á morgun! Mamma gistir með, skutlaðist með A-húsið í Reyðarfjörðinn! Sjæse ég væri svooo til í að vera með en það er ekki hægt að gera allt:) Fer bara með næst! Hérna voru þau að fara í hádeginu, sæta fjölskylda!:


Sumarskólinn gengur bara lala! Ég er ekki með neinn gífurlegan sjálfsaga en ég verð að hunskast til að læra;)
Er byrjuð á hótel Eddu, mjög fínt það sem er búið, erum ólíkar stelpurnar sem vinnum þarna sem er bara allt í lagi, vinnum vel saman held ég og ekkert vesen hingað til!
Mér finnst bloggin mín orðin alveg hundleiðinleg þegar ég les þau yfir... blogg "andinn" eitthvað að hverfa..... sjáum til hvað verður úr þessari síðu!
Sjáumst, kv Jónína Harpa
P.s Ég var svo klikkað lengi að gera þetta blogg að ég á það skilið á fá kvitt frá öllum sem nenntu að skoða;) GUTE NACHT
Jónína Harpa Njálsdóttir

En gaman að þessu bloggi...ég samt eiginlega veit ekki hvað ég á að segja því ég get ekki haldið augunum opnum, þú þekkir þetta;)
Leiter alígeiteeer