Hallelúja lofum guð!
Hæhæ sæta fólk!
Alle gúdden að frétta af mér!
Okei... Núna er kominn júní, sem sagt, sumarið er komið. Þegar maður hugsar um sumarið á veturnar þá man maður alltaf bara eftir góðu sólardögunum, dögunum sem var frí í vinnunni og eitthvað.
Well eins og ég sagði þá er sumarið komið núna sem ég er búin að vera að bíða og bíða eftir.... en hvað en hvað.. ég er ennþá að bíða eftir eitthverju "skemmtilegu" svona eins og skemmtilegu hlutirnir bara eigi að byrja að GERAST núna. Sumarið er komið en samt ekkert... skemmtilegt. HAHA æji vá skilur mig einhver? Bull.
Well eins og ég sagði þá var Akureyrarferðin mögnuð! Þó að ég sé búin að vera að tala um sumarið væri ég alveg til í vetur líka bara til að geta byrjað að kenna krökkunum allt það gagnlega sem ég lærði á námskeiðinu!! Hehe!
Ég lennti reyndar í mestu vonbrigðum lífs míns, en eins og ég talaði um í síðasta bloggi var stefnan sett á Brynju en þegar þangað var komið var LOKAÐ! Líf mitt hrundi í þúsund mola.
Í gær fór ég og heimsótti tvær konur sem búa í íbúðum aldraðra í Breiðabliki, ég var fengin til að fara með þær í bæinn og svona ca. 1x í viku! Það er bara gaman sko og ætlum við einmitt að fara á krúsið núna á eftir hehe!! Þegar ég var að fara hitti ég síðan ömmu Andra og bauð hún mér í heimsókn og spjölluðum við örugglega í hálftíma! Bara snilld.
Sjómannadagshelgin gengin í garð! Alltaf smá líf í bænum þá! Reyndar er veðrið horbjóður en fólk má ekki láta það á sig fá!
Stefnan er sett á ball á Esk í kvöld með Í svörtum fötum og hlakka ég mjög svo til!!! Fyrsta 18 ára ballið mitt var einmitt með ÍSF í Köben þegar ég var í 9 klasse(10bekkur á Ísl) í Danmörku! Það var mjög töff samkoma og var ég manna hörðust þarna inni, í henson peysu merkt JÓNÍNA ´89 HAHAHAHA!
Það var einmitt sama kvöld og þegar ég byrjaði að heilsa einhverri konu á fullu og byrja smá að spjalla því ég kannaðist svo við hana... vissi bara ekki hvaðan.... Jújú þá var það einmitt Ísland í bítið konan sem hafði skellt sér til DK á ball! Ég skeit á mig.
En jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt! Kem máske með myndir af dansleiknum!
Ekki vera feimin við að kvitta hver sem þú ert!
Sí ja!
Jónína Harpa Njálsdóttir

en hahaha snilld með ísland í bítið... og ertu kanski að tala um ýkt svölu, hip og cool hensons peysurnar í 9.bekkjarferðalaginu??? þær eru mega flottar!