Mér finnst þetta dálítið sniðugt sá þetta einhversstaðar;)
Var mamma þín vond? Mín var það! Við áttum
verstu mömmu í heimi. Þegar aðrir krakkar
borðuðu nammi í morgunmat fengum við
hafragrauut. Þegar aðrir krakkar fengu djús og
kex í hádegismat fengum við samlokur og
ávexti. Þú getur rétt ímyndað þér hvað hún gaf
okkur í kvöldmat! Mamma vildi alltaf vita hvar
við vorum ALLTAF, það hefði matt halda að
við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru
vinir okkar og hvað við vorum að gera með
þeim. Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum
við að vinna. Við þurftum að vaska upp, búa um
rúmin,læra að elda, taka til, fara út með ruslið
og vinna fullt af öðrum leiðinlegum störfum.
Við vorum viss um að hún lægi vakandi á
nóttunni bara til að hugsa um hvað hún ætti að
láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf
segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert
nema sannleikann. Þegar við vorum unglingar
gat hún lesið hugsanir okkar. Það var ERFITT
líf! Þegar allir fengu að fara á djammið og
skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við ekki að
gera neitt fyrr en við vorum 16 ára. Út af
mömmu okkar misstum við af svo mörgu sem
aðrir krakkar gerðu. Ekkert okkar hefur verið
tekið fyrir að stela í búð, eyðileggja eigur
annarra eða verið handtekið fyrir glæpi. ALLT
henni að kenna. Við urðum aldrei full byrjuðum
aldrei að reykja, vorum aldrei úti allar nætur,
gerðum aldrei þessa þúsund hluti sem margir
unglingar gera. Núna erum við flutt að heiman
og við gerum okkar besta til að vera vondir
foreldrar eins og mamma okkar var. Ég held að
það sé það sem er að heiminum í dag. Það er
bara ekki til nóg af vondum mömmum lengur.
Ég stefni á að verða vond mamma einhverntíman SEINNA;)
Jónína Harpa Njálsdóttir

en anyway bíó á þri eða miðvikudag?;)