JÆJA!!!!!!!

Þá er þýskuprófið afstaðið og ég veit ekki hvort að ég eigi að grenja úr gleði yfir að því að ég sé búin með það eða grenja úr gremju yfir frammistöðu minni í þessu prófi en hún var ekki uppá marga fiska!
Sjáum til hvort að þetta hafi ekki sloppið!

Í nótt (sem sagt nóttina fyrir prófið) dreymdi mig að ég hefði fengið papercut í augað í prófinu og fengið að sleppa málfræðihlutanum! Hahaha djöfulsins vonbrigði að vakna. Samt örugglega verst í heimi að fá papercut í augað!!

Á morgun er það saga. Ég setti mig í stellingar í dag og byrjaði að lesa glósurnar og jájá, allt bendir til þess að ég hafi verið andlega fjarverandi í öllum sögutímunum í vetur, kannaðist ekki við neitt af þessu hahaha! Ég dembi mér í þetta í kvellen!Hlæjandi

Spurning um hvort að maður eigi að gera eitthvað skemmtilegt á morgun í tilefni að þá er síðasta prófið? Ég veit ekki, allavega ætla ég að dansa villtan stríðsdans um leið og það er búið. Síðan kannski "lyftir maður sér upp" og leigir The Holiday með Lovísu, ekkert í annað skipti í þessum mánuði eða eitthvað neinei.
Gott dæmi um hvað það er þétt skemmtanadagskáin hjá manni haha!

Jæja ætlaði bara að hafa þetta stutt og laggott vona að engum hafi orðið meint af lestrinum þetta fjallaði jú bara um próf og almenn leiðindi!

Kvittið fyrir komuna eins og góðu fólki sæmir, verið sælHlæjandi
11. maí 2007 klukkan 18:18
Jónína Harpa Njálsdóttir
Unnur Inga skrifar ...
Haha væri reyndar til í að sjá þennan villta stríðsdans :D hahah, en ég held að þýskan verði nóló(grand) hjá þér, hef trú á þér ;) og ef þetta gengur ekki upp þá er bara eitt sem kemur til greina það er að sýna þessu tungumáli einn beinskiptann!!
annars bara kvitta fyrir skemmtilegt blogg og takk þú fyrir kvittið hjá mér, hlakka til að fá þig í sumar, ég kem svo til þín klárlega!!:D
11. maí 2007 klukkan 18:36
Böbbi skrifar ...
kviitt... góður draumur maður... een ööörugglega vont..
11. maí 2007 klukkan 18:46
Auður skrifar ...
Kvitterí kvitt!
Til lukku með að vera næstum búin í prófum.. alltaf góð tilfinning!
Knús Auður
11. maí 2007 klukkan 19:02
arney skrifar ...
Já sama segi ég, ég er að læra undir rekstrarhagfræði próf og ég get ekki sagt að ég hafi verið andlega viðstödd!
The Holiday er geðveikt góð mynd! :D
En gangi þér vel í seinasta prófinu og með stríðdansinn ;)
11. maí 2007 klukkan 19:27
Vilborg skrifar ...
kvitt kvitt:) usssss gæfi mikið fyrir að vera búin á morgun enn ég tek dansinn villta á mánudag um hádegisbil:)
11. maí 2007 klukkan 19:30
Rósa skrifar ...
ég skal sko taka þennan viltastríðsdans með þér ef ég fæ að taka garðslönguna með...! :)
holiday er ekki góð mynd...! VÆMIN út í gegn og fyrirsjáanleg... takk fyrir mig og kvitt kvitt
11. maí 2007 klukkan 20:03
Jónína Harpa skrifar ...
Rósa harða!!! hahaha:D
11. maí 2007 klukkan 20:26
Íris Dögg skrifar ...
Gvuð hvað ég er sammála þér með þetta helv**** þýsku próf..:) En Já það verður sko djammið annaðkvöld og ekkert rugl..:D
En sjáumst hressar í söguprófi í fyrramálið.:D
11. maí 2007 klukkan 20:50
Salo in Germany skrifar ...
Áááá pepercut í augad..... potttétt ógedslega vont en nei tú rústadir tessu prófi hugsa ég.....;) En hvad er málid med ad hafa próf á laugardegi??? Veit ekkert hvada mynd Holliday er en eflaust ágaet fyrst ad tid erud búnar ad leigja hana tvisvar í tessum mánudi hehe... en já heyrumst saeta;)
11. maí 2007 klukkan 23:50
Lovísa skrifar ...
SKO ÉG ER EKKERT AÐ GETA SOFNAÐ EFTIR ALLT ÞETTA MAGIC OG ÞRÚGUSYKUR !
12. maí 2007 klukkan 00:41
María skrifar ...
Til hamingju með að vera komin i sumarfrí...
ég get ekki talað við þig á msn:(
14. maí 2007 klukkan 17:10
Ragna Fanney skrifar ...
HAHAHAH þrúgusykur:')

En ég er að fýla þennan drau! Eða réttar sagt þá staðreynd að ég er greinlega ekki sú eina sem dreymir svona súrt;)
14. maí 2007 klukkan 23:00

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur