Landafræði er æði
Það vill oft þannig til að í prófavikunni blogga ég óvenju oft! Þá á þeim tíma sem ég á að vera að læra!! Það var einmitt á þessum tíma árs sem ég stofnaði fyrst bloggsíðu haha! Sérkennilegt hvað maður finnur sér allt til dundurs annað en að læra í prófavikunni! Las meira að segja einhvern kosningapistil áðan sem ég skildi reyndar ekkert í en það er nú allt önnur ella.Well, fjölskyldan farin til Noregs og maður er hér heima lærandi allan liðlangann daginn.
Svakalegt lífernið á manni hérna, finnst ég alltaf eiga það voðalega skilið að borða nammi í prófavikunni, liggur við að hver dagur endi á nammiógeði! Djöfulsins viðbjóður! Fer þó alltaf í mat til pabba á kvöldin, fór reyndar til tengdó í mat áðan, helvíti skondið að sitja þarna með þeim þegar Andri er bara á EI KEI að spóka sig
Fjarðabyggð er einmitt að keppa úrslitaleik í Lengjubikarnum við Aftureldingu í þessum töluðu orðum. Þessi lið áttust við í annari deildinni síðastliðið sumar og vann KFF báða leikina fyrst á Eskifjarðarvelli 4-1 og svo 5-1 í Mosfellsbænum. Óskandi að þeir standi sig jafn vel núna er það ekki!
AHAHAHA á ég að trúa því að ég hafi sagt þetta? Jújú, ein að lesa KFF.is
Eins og margir vita er ég anti-fótboltisti (whaat) nr1 þannig þetta er atburður sem vert er að skrá á spjöld sögunnar að ég minnist á fótbolta í mínu bloggi.
Bikiniið fræga er komið í hús. Ég ætla að geyma það að vígja það í sundlauginni eins og stúlka ein komst að orði. Náttúrulega alveg magnað að máta það sjálfur eftir að hafa séð það á svona feitri og ljótri manneskju haaa...

Það er samt ógó töffó maður.
Voðalega er þetta blogg orðið langt.
Ég er algjörlega komin í ruglið. Ætla að hlífa ykkur sem nenntuð að lesa og hætta núna!
KVITT VÆRU VEL ÞEGIN lömbin mín
Sjáumst í hringrásinni!
04. maí 2007 klukkan 20:24
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
