Lćrdómur eđa dauđadómur mađur spyr sig?
Jæja börnin góð! Hér af bæ er allt gott að frétta, búin að stúta 2 stórum páskaeggjum á mettíma!! Ógeð!
- Búin að vera sjúklega dugleg að læra í dag, klukka íslands - Íslandsklukkan kláruð og hið yndislega verkefni sem henni fylgdi. Tók svo sannarlega marga KLUKKUtíma.
- Búin að vera ógeðslega löt að hreyfa mig (gott eftir egg páskana) og sleppti meira að segja ræktinni í dag... fuss...Sjáum til á eftir!
- Á morgun er það EI KEI eða Akureyri - söngkeppni framhaldsskólanna! Ágæt tillhlökkun í gangi þar svosem..
- Að sjálfsögðu er stefnan sett á Brynjuís fyrsta kvöldið... Bragðarefur með pipar og Valla guð með í för, bara snilld
Annars er ég búin að vera með alveg SVAKALEGT ÆÐI núna... Langar allt í einu svo svakalega að verða sjúkraþjálfari.... Búin að vera að skoða og skoða og skoða á netinu og langar alltaf meira og meira. Halló halló les þetta einhver sem er að læra það??? Langar að fræðast
- Síðan er það bara heim á sunnudaginn... farið í skólann í 2 daga og síðan aftur til AK á ANDRÉSAR ANDARLEIKANA... júhú. Það verður vonandi æðislegt eins og alltaf.

Á þessari miklu skoðunarferð minni um netið sá ég að maður tekur sama inntölupróf og þeir sem ætla að verða LÆKNAR?!?!? Öll von datt úr mér......
Fiskur í raspi kallar... Mmm.... HEYRUMST


-Nína Njálsen
12. apríl 2007 klukkan 18:55
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
