Ó fagra diskódís(8)
Aðal lagið hjá mér núna ásamt Harðsnúna Hanna.(Eðlilegt?)Um helgina var rústabjörgunaræfing í fjárhúsinu hjá Skúla og mér fannst það snilld
Dalvíkingar komu ásamt einhverjum héraðstubbum! Og alltaf eru Dalvíkingar jafn ruglaðir. Ég var eina stelpan, það er fínt stundum!Polo vakti athygli fyrir glæsileika og var í umræðunni að skipta út einhverjum af þessum stóru bílum og fá Polo eins og Prins Polo í staðinn.
Ég er ei að nenna inní nýja skólaviku o nei o svei. Síðasta vika var svo ljúf, tveir tímar alla dagana eða eitthvað en síðan bara próf og ves í þessari. Huhh. En síðan er nú páskafríið eftir 5 daga
Ekki samt að það sé eitthvað mikið að gera þá. Eða ég veit ekki.En ég vildi bara henda einhverju nýju hér inn, kvittiði litlu gemlingar.
-Jónína Harpa
PJÉ ESS: NÝ KÖNNUN
25. mars 2007 klukkan 20:43
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
