Frystihússögur

Vitiði það... Ég gæti gjörsamlega ÆLT á fótinn á mér þegar það EYÐIST sem ég er búin að skrifa!!
En jæja.... Taka tvö.
Einhver bað um blogg... Greinilegt að þið viljið fá að heyra sögur úr frystihúsinu haha... Þar er ég búin að eyða flestum mínum stundum.  Ég get allavega komið með eitt skondið þaðan.
Í tvo daga var ég að vinna við að pakka frosnu(ji en glatað bloggefni samt að ég sé að koma með sögur úr frystihúsinu hahaha) en já... Ég var að pakka frosnu með tveimur pólverjum, kalli og konu.  Þau nýkomin til Íslands og skildu ekkert hvað ég var að segja eða ég hvað þau voru að reyna að segja við mig.  Halda pottþétt að ég sé eitthvað skrítin, lít líka út eins og rassálfur með þetta hárnet hahaha!
Ég var góð þarna með heyrnatólin að njóta þess að vera ekki komin með leið á FM og söng með hverju lagi af öllum lífs og sálarkröftum, bara stuð á kellunni.
Um hádegi í gær fattaði ég að það voru næstum engin vélarhljóð þarna... Og bara engin læti og enginn með heyrnatól (eða allavega ekki þau tvö sem ég hafði verið að vinna með) nema ég....... og eins og ég sagði, ég hafði sungið með allann tímann og EKKERT verið að spá í þeim sem voru í kringum mig.
Hugsum aðeins og leggjum saman tvo og tvo... Ekki skrítið að þau haldi að ég sé fáviti, örugglega bæði komin með heilaskaða sökum hljóðmengunar eftir að hafa verið þarna með mér úff úff.
 


Annars er bara fínt að frétta, búin að taka nokkra rúnta með mömmu á Polonum síðan ég kom heim.... Já nei nei það er enginn að segja mér að það sé ekki töff, sérstaklega með skiltið sko ÖSS!!
Síðan búin að hitta stelpurnar nokkrum sinnum´... Baka köku með Bjarneyju, taka réttarrúnt og fleira.  Ætlaði í ræktina með Lovísu en ákvaðum að kaupa okkur bugles og ídýfu í staðinn hahaha FEITABOLLUR(H)

Bloggið sem ég var búin að skrifa áðan var mun innihaldsríkara en þar sem að það eyddist og ég í brjáluðu skapi verður þetta ekki lengra..!
Enda þetta á tvemur myndum úr gönguskíðaferðinni sem ég fór í með pabba á sunnudaginn minnir mig:)





Viltu síðan vera svo vænn/væn að kvitta fyrir þig hver sem þú ert....:)

Kveðja Jónína Harpa

17. maí 2006 klukkan 22:46
Jónína Harpa Njálsdóttir
Bjarney skrifar ...
HAHAHAHAH.....sniiilld að syngja svo ein :') hahahahahaha en þú ert nú með svo fallega söngrödd:) grrr... en halltu nú áfram að brillera í frystihúsinu og ekki gefa þig með sönginn! sing for your life!
18. maí 2006 klukkan 00:22
Benjamín skrifar ...
heei... þú segir þó sögur af þér... Ég segi sögur af ÖMMU MINNI!!!
18. maí 2006 klukkan 00:24
jónína harpa skrifar ...
Hahahhahaha já Benjamín... Það er samt snilld:D
18. maí 2006 klukkan 00:32
Lovísa skrifar ...
heyrðu ég söng nú líka með í dag þegar ég var að pakka frostinu ...þau héldu hvort sem er að ég væri vangefin;) svo syng ég líka alveg gasalega vel....:D
en já,maður ætti kannski að drífa sig í ræktina og sleppa buglesinu?:D
18. maí 2006 klukkan 00:40
Jobbee! skrifar ...
Kvitt! og já, kenderí á morgun (fimmtudag) í tilefni undankeppninnar (eða er það undankeppnarinnar?) jæja, Splittar ekki! Kv. Jobbi
18. maí 2006 klukkan 00:49
Óttar skrifar ...
ef að kenderí þýðir það sem ég held, þá er ég sammála Jobbaa :D ef það þýðir ekki það sem ég held... whatever! :D
18. maí 2006 klukkan 00:52
jónína harpa skrifar ...
hahaha hingað til hefur nu ekki þurft beint tilefni fyrir kenderí hjá ykkur félögunum haha:D
18. maí 2006 klukkan 01:09
Kamilla Mjöll !! skrifar ...
Skoh, þú ert greynilega þvílíka útivistar gellan sko ;) Lýst vel á þig ;) En já frystihús, hárnet pólverjar, þú veist að pólverjarnir voru líka með þessu hárnet ekki rétt ? En fyndið, ég vinn í salthúsi, með hárnet, og fjórir pólverjar sem skilja ekkert í íslensku og bara einn talar ensku :D haha. .snilld :')
18. maí 2006 klukkan 01:49
inga þórey skrifar ...
gott blogg... hlakka til að sjá þig svo eftir hálfan mánuð;) stittist alltaf í sumarfríið hjá manni susssusss;)
18. maí 2006 klukkan 03:02
Eyjólfur skrifar ...
Sæl fröken! :) það vantar óneitanlega Jóa á vistina... hafðu það gott grís.. ;) ég sé að þú skemmtir þér í frystihúsinu .. hahaha... vel gert jói minn... :D
18. maí 2006 klukkan 05:26
Valgerður skrifar ...
Já það vantar Jóa SVO mikið :(

En hahaha þú hefur frábæra söngrödd. Vertu ekkert að halda aftur af þér og syngdu af innlifun, þá er örugglega skemmtilegra í vinnunni :)

En hvað er kenderí?

Og æðislegar myndir :D
18. maí 2006 klukkan 21:45
Arney skrifar ...
Hæ sæta ;) já vá ég væri sko meira en til í að heira þig singja :D hehehe úff ég myndi alldrei nenna að vinna á frystihúsi... :D hehe en það er bara ég :) en hafðu það gott og halltu áfram að singja fyrir pólverjana..þeir hafa POTTÞÉTT gaman af því ;) BÆ :D
19. maí 2006 klukkan 19:49
Auður skrifar ...
kvitt kvit og takk fyrir síðast!
21. maí 2006 klukkan 04:28
Steini skrifar ...
vááá hvað ég sé þetta fyrir mér!!! heheh snild
kvitt og kveðja
21. maí 2006 klukkan 21:07
Daníel Geir skrifar ...
Sætur söngfugl hér á ferð hehe :)
21. maí 2006 klukkan 23:02

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur