Snjór og læti

Já það er snjór og læti hér austan heiða!
Í gær fórum ég Lotta og Rósa á sýninguna Krummaskuð hjá VA. Ágætis sýning bara.
Eftir það fórum við í playstation heima hjá Rósu/Sævari.
Skemmtilegt nokk að núna snérist dæmið við, venjulega er það Andri sem segir: Ég ætla að vera í playstation með strákunum í kvöld en núna var það ég sem sagði: Ég er að fara í playstation með stelpunum!!
Og mér fannst það geðveikt töff HEHEHE.
Er við hættum í tölvunni fórum ég og Lovísa á smá torfærurúnt á POLO sem kemst allt og var það helviti gaman.
Ég er nú eitthvað búin að vera að skoða bíla á netinu, langar píííííínu í nýjan en samt finnst mér svo vænt um Prinsinn minn að ég veit ekki hvort að ég myndi tíma að láta hann frá mér. "Láta hann frá mér". HAHA það er eins og ég sé að tala um að láta ættleiða barnið mitt eða eitthvað.
En jæja. Veist þú um einhvern sem hefði áhuga á að kaupa Polo? Bara smá tékk hérna uppá djókið. Massa bíll hér á ferðinni hehe.

Annað í fréttum er að nú er troðarinn kominn í gagnið loksins. Það verra er að blíðan sem er búin að vera á hverjum degi síðan hann bilaði er farin!! Alveg týpískt!!
Ég komst á æfingu á föstudaginn og laugardaginn, var með 9 ára og eldri og það var alveg geggjað að hitta þau aftur hehe.

En ég bið að heilsa endilega kommmmmmmmenta folks.
18. mars 2007 klukkan 17:53
Jónína Harpa Njálsdóttir
Lovísa skrifar ...
er ég kem heim í búðardal (8)haha sjitt þetta var fyndnast..næstum eins fyndið og þarna "YOU!!" þegar við vorum að keyra á fagradalnum..hahahha eigum við bara svona asnaleg móment saman eða?:D

en prinspólí er klassa bíll- ekkert sem þessi eðalkaggi kemst ekki!
18. mars 2007 klukkan 18:04
Ragna Fanney skrifar ...
Þarna líst mér á þig gella torfærurúntur á Polo svona á klárlega að gera það..og ég geri nú ráð fyrir að þú sért komin með skíðagrindina á hann;D
18. mars 2007 klukkan 18:40
Valgerður Inga skrifar ...
Jói... við höfum nú tekið rúnt á Polo nokkrum sinnum. En við eigum ENN eftir að taka rúnt á Polo í polo bolum og borða prins polo!!
19. mars 2007 klukkan 12:43
Bjarney skrifar ...
huhh, og mér ekki boðið með? jæja ég fer þá ein á krummaskuð! En múmín bíða!
20. mars 2007 klukkan 15:55
Jónína skrifar ...
Þú varst veik bjarney mín;)
21. mars 2007 klukkan 10:12
Bjarney skrifar ...
JÁ JÁ, MAÐUR Á SAMT ALLTAF AÐ VERA FÚLL!
22. mars 2007 klukkan 11:22

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur