OOOOOONeeeeeeeeeei

Ohh. Ég var að pæla. Svona ef að maður nær EINHVERNTIMAN að klára stúdentinn, hvað ég á svo að læra???
Mér finnst ógeðslega margir búnir að ákveða það og eitthvað en ég er bara eins og álfur uppá hól og veit ekki neitt.
Ekki það að ég þurfi að ákveða það núna ooooooneeeeeeeei því ég er ekki að fara að klára stúdentinn í bráð oooneeeeei.
Ég bara fæ ógeðslega oft svona vonleysis tilfinningu um að ég geti aldrei orðið neitt,sérstaklega eftir þýskutíma HEHE.

En ahh. Einn jákvæður puntur. Loksins búin með íslenskuritgerðina mína, þvílíkur léttir.

Ert þú búin að ákveða hvað þig langar að læra (ef þú ætlar að læra meira og ert í framhaldsskóla)??
14. mars 2007 klukkan 22:13
Jónína Harpa Njálsdóttir
Ég á rúmt ár eftir í háskóla og er ekki búinn að ákveða hvort ég ætli að læra meira :)
15. mars 2007 klukkan 00:42
Unnur Inga skrifar ...
Þetta kemur allt á endanum, eitt sinn sagði ungur maður mér sem hefur lokið háskólanámi, að þegar ég fer í háskóla þá á maður eftir að skipta um skoðun oftar en einu sinni svo margt sem maður getur lært... Spurning um að dunda sér við stúdentinn og svo er hægt að skoða bara hvað maður vill gera ;) Ég ætla allavegana að gera það, ég er ekki viss enn þá þó svo að ég sé að læra fjölmiðlafræði, manni langar að verða svo margt :D :)
En hafðu það gott elskan, og mundu þú ert ekki vonlaus ;*
15. mars 2007 klukkan 11:53
Pálína skrifar ...
úff Jónína mín, held þú sért eins lítið vonlaus og hægt er að vera! Mér hefur alltaf fundist þú svo frábær :D Það er svo misjafnt hvaða fög okkur gengur vel að læra!
En þetta með Háskólann.... það er gríðarlega erfið ákvörðun. Mæli með háskólakynningum, og svo ef þú tekur ákvörðun og lendir á rangri hillu í háskólanum þá bara hoppar þú af henni og sest að í nýrri hillu haustið á eftir :)
15. mars 2007 klukkan 18:27
Lea skrifar ...
ég veit, skítt með skóla, förum til afríku or some og hjálpum fátækum það sem eftir er!
15. mars 2007 klukkan 21:44
Agnes Heiða skrifar ...
Hahaha, vonleysistilfinningu eftir þýskutíma??? Hehe, Jónína mín! Við skulum nú ekki fara byggja framtíð þín á því hvort að þú ert góð í þýsku eða ekki því það er viðbjóðslegt tungumál!! ooooj bara! Og ég held að það skitna fag fari nú ekki að ráða miklu nema að þú stefnir á BA gráðuna í þýsku í Háskóla Íslands! ;)
16. mars 2007 klukkan 10:25
Ragna Fanney skrifar ...
Já ég er alveg sammála Agnesi...þýskan skiptir þig nú litlu og það reddast eins og svo margt annað;) En það segja þetta allir með háskólann, þú byrjar í e-rju sem þér líkar vel við svo þegar þú kemst betur inní kerfið og svona og kannski áttar þig á því að það sem þú valdir á ekkert við þig þá bara skiptirðu þetta er ekkert mál:) Háskólakynningarnar eru mjög góðar sérstaklega þessar í bænum ég fór um daginn og kíkti á alla háskóla sem komu til greina hjá mér og það hjálpaði mér helling, síðan á ég bara eftir að leggjast yfir bæklingana. Ég fór einu sinni á egs og mér fannst þær ekki jafn góðar svo ég mæli bara með því að skella sér í bæinn þegar nær dregur eða kíkja ef þú átt leið um. Ég er að fara klára núna í vor vonandi og ég er ekki enn búin að ákveða mig svo ekki örvænta:)
16. mars 2007 klukkan 15:13
Jónína Harpa skrifar ...
Jú Agnes minn æðsti draumur að er að taka BA gráðu í þýsku. Hehehehe.
16. mars 2007 klukkan 20:46
Lovísa skrifar ...
úff þessi vonleysis þýskutilfinning:( maður missir áhugann á lífinu vegna þess að manni finnst maður ekki geta neitt! en allavega þá er ég ekki einu sinni búin með íslensku rítgerðina ( flott hjá mér)..ég held að ég verði van wilder verkmenntaskólans (fyrir utan það að stunda ekki félagslífið hér) og klári þennan stúdent bara aldrei ,mjög líklega vegna falls í þýsku... svo að ég held að frystihúsið,tja já eða álverið sé mín framtíð...niiice
17. mars 2007 klukkan 12:03
Jónína Harpa skrifar ...
Þetta er eins og skrifað af mínum fingrum (tala út úr mínum munni) Lovísa.
17. mars 2007 klukkan 14:27

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur