Titill

Já góðan dag.
Eins og flestir vita sem þekkja mig æfði ég nú skíði í mörg ár og hafði ROSALEGA gaman af, allavega oftast.
Ég fór m.a 2 sinnum til Geilo í Noregi í æfingabúðir, geggjaðasta skíðasvæði ever og fullt af skemmtilegu fólki og góðir þjálfarar.

Hluti af þessum æðislega stað..


Inga Þórey, ég og Silja á góðri stundu á skíðamóti fyrir tja... nokkrum árumHlæjandi


Jæja, ég hætti nú þegar ég flutti til DK í eitt ár en fylgist samt alltaf eitthvað með hvað er að gerast í öllu þessu dæmi.
Núna nýlega hafa 2 stelpur, sem voru einmitt að æfa í Geilo, gjörsamlega FLOGIÐ á hausinn við æfingar, önnur lamaðist og hin hryggbrotnaði og ég veit ekki hvað og hvað.
www.arnaokkar.bloggar.is og www.iris-geilo.bloggar.is

Var það kannski til hins betra að maður hætti þessu?
Já núna á ég eftir að fá komment um að ég eigi ekki að blogga um svona því ég er nú þjálfari.

En svona er þetta bara, það er alltaf eitthvað að gerast, ekki bara í skíðaheiminum.

En hey allir þið, farið varlega hvað sem þið eruð að gera!
Ég varð bara að blogga um þetta, mér varð svo um þegar ég fór að skoða myndir á annari síðunni.

En allavega, blogginu lokið í dag og takk fyrir að lesa litlu lömb!

P.s, komnar fleiri myndir frá Þorrablóti VA, fullt af myndum eftir en þetta er alt svo svipað eitthvað að ég nenni ekki að setja fleiri;)

P.s2:
ÉG ER ALLS EKKI AÐ HVETJA KRAKKA TIL AÐ ÆFA EKKI SKÍÐI
, ÞAÐ ER ALVEG ÓTRÚLEGA GAMANHlæjandi

16. febrúar 2007 klukkan 19:09
Jónína Harpa Njálsdóttir
Fannar kripplingur! skrifar ...
jamm ek mjög fallegar myndir af essari stelpu.. :S
16. febrúar 2007 klukkan 20:00
Íris Dögg skrifar ...
Jáhá það er sko skemmtilegast í heimi að æfa skíði og ég hef oft verið að hugsa það hvað mig langar mikið að vera ennþá að æfa en þegar ég sá þessar myndir þá fékk maður nú smá hroll og varð bara frekar fegin að vera ekki að æfa ennþá, aumingja stelpurnar.
16. febrúar 2007 klukkan 20:03
Bjarney skrifar ...
vá aumingja stelpurnar! þú ert ekkert að fara að slasa þig neitt... verðuru ekki bara í litlu lyftunni framvegis??
16. febrúar 2007 klukkan 20:11
Kamilla Mjöll skrifar ...
Ég hef aðeins eitt að segja við þessu, það er að nota þann öryggisbúnað sem í boði er og er almenn skynsemi að nota, hugsaðu þér grænmetið sem Íris Guðmunds væri ef hún hefði ekki verið með skjalböku eða hjálm. Spurning hvort hun hefði yfir höfuð lifað það af.
16. febrúar 2007 klukkan 20:32
Þú átt ekki að blogga svona þú ert nú þjálfari. Djók :) Ég veit ekki hvort að maður eigi að segja gott blogg en allavega athyglisvert..
16. febrúar 2007 klukkan 20:34
Ragna skrifar ...
Þetta fylgir hverri íþrótt málið er held ég bara líka að það er oft svo mikill hraði á skíðafólki og því þegar þú slasast slasastu kannski verr ég veit ekki, maður verður bara að velja og reyna að passa sig þetta er bara svo sjúklega gaman:D gott blogg samt;)
16. febrúar 2007 klukkan 22:51
Lea skrifar ...
hahahahahahah myndin af lovísu þarna eftir blótið en fyrir ballið (giska ég allavega) hahahahahahahahahahahahahah jihminn þetta bjargaði þessu ömurlega föstudagskvöldi! hahaha

en annars er ég ekki búin að kíkja á þarna með stelpurnar, en hljómar nú voða sorgleg!

btw flott kápa sem þú vars í jónína (jakki??)
17. febrúar 2007 klukkan 02:04
Salo skrifar ...
Uff hraedilega sorglegt med stelpurnar:( Fardu varlega nina min.....
17. febrúar 2007 klukkan 14:22
Birta Sæm skrifar ...
Það var gaman að skoða blótsmyndirnar þínar þó ég hafi verið hissa á því að sjá alla þessa beru kroppa í þessari myndahrúgu... ég var fljót að kveikja á perunni, en um tíma hélt ég að stripparar hefðu mætt á blótið!

Ég verð samt að spyrja: Var eitthvað dress code í hópnum ykkar? Þið eruð allar ótrúlega sætar í SVÖRTUM kjólum (fyrir utan Jóa sem var í brúnum)... Pössuðuð einstaklega vel við hvor aðra.
19. febrúar 2007 klukkan 13:34
Jónína skrifar ...
hehe neinei ekkert dress code, þetta var samt fyndið:D
19. febrúar 2007 klukkan 19:00

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Harpa Njálsdóttir
  • Netfang: joninaharpa@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: Nemi og skíðaþjálfari
  • Hjúskaparstaða: Ég á sætan kærasta;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur