Sýra
Merkilegt hvað maður festist á netinu þegar maður á að vera að læra.Núna festist ég á síðum hjá fullt af Norðfirðingum sem eru fluttir frá Nesk, svona fólk sem maður man eftir síðan einhverntíma, en veit pottþétt ekkert hver ég er.
Maður les svona blogg eftir blogg eftir blogg þangað til maður fattar hvað maður er sad.
Ég er ekkert að kvitta eða neitt, bara skoða.
Þetta er svona eins og maður sé að hnýsast í annara manna líf. Forvitnin að fara með mann.
Hefur einhver lennt í því að þegar þú ert búin að vera að læra fyrir próf , þá ferðu að sofa, og dreymir síðan efnið sem þú ert búin að vera að læra? Þetta er ALLTAF að koma fyrir mig. Mig dreymdi uppeldisfræði í ALLA nótt. Og ekki er það skemmtilegt.
Ég man líka þegar Lotta kom í heimsókn til mín til DK og við fórum í rússíbana.... Þegar við lokuðum augunum um kvöldið fannst okkur báðum við vera ennþá í rússíbananaum haha!
Annars....
VA blótið var tær snilld.
Ég tók einhverjar myndir, ekki margar. Nenni ei að setja þær inn. Vill einhver gera það fyrir mig??
06. febrúar 2007 klukkan 13:41
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

en hey settu inn myndirnar lata manneskja, ef þú nennir að lesa blogg hjá fólki sem veit ekki einu sinni hver þú ert þá ættiru nú að geta sett inn myndirnar ;)